Ægir - 01.12.1927, Síða 8
260
ÆGIR
mjög mikið af skarkola i Garðsjó og inn-
ineð (um 170 í drætti), margt af sand-
kola, skrápflúru og smáýsu, en mjög fátt
af öðru. Yfirleitl var útkoman lik og
endranær: miklu fleira af fiski í land-
helgi en utan, eins og eftirfarand yfirlit
sýnir (tölurnar í svigum merkja fiska-
tölu á togtíma):
Utan línu Innan línu
Þorskur .... 195 (7,8) 151 (L7)
Ýsa 087 (26,3) 1782 (59,4)
Lýsa 45 (1,8) 375 (15,0)
Lúða 282 (11,7) 318 (10,6)
Skarkoli 352 (14,1) 3675 (122,5)
Sandkoli 3712 (148,9) 11799 (393,3)
Þykkvalúra . 12 (0,5) 354 (11,8)
Skrápflúra . . 305 (12,2) 7812 (200,4)
Steinbítur . . 17 (0,7) 243 (8,1)
Tindaskata . 40 (1.0) 140 (7,2.)
Þegar þessi afli er borinn saman við
Jiað sem „Þór“ hefir fengið á öðrum
tínnim ársins (t. d. í haust, eins og skýrt
er frá á öðrum stað í þessu blaði), þá
sést það greinilega, að mest er um flat-
fisk og smáýsu í landhelginni á sumrin.
Loks voru g'erðar (meðfram með nýju
verkfæri eftir prófessor Martin Knud-
sen) botnrannsóknir til og frá um fló-
ann, alt inn að Kollafjarðarbotni. —
Síðustu nóttina var legið á Krossvik. Þar
var þá nýveiddur í reknet, á einn mót-
orbót Haralds Böðvarssonar, . 8% m.
langur beinhákarl, vestur í Jökuldjúpi.
Fengust úr honum ca. 1000 lítrar af’lif-
ur, en sjálfur var hann skorinn i sund-
ur og borgaði tæplega skemdir þær. sem
hann hafði gert á netunum.
Nú átti „Dana“ að lara norður fvrir
land og svo heim á’ leið og hefði cg orð-
ið með, hefði cg treyst mér. Þótti mér
leitt að verða af ferð norður á „Hala“,
sem var rannsakaður töluvert með lil-
liti til strauma, svifdýra- og botndýra-
lífs, eftir ósk minni. Reyndist dýpið yfir-
leitt eins og ég hafði skýrt frá, eltir upp-
lýsingum Guðm. Jónssonar skipstjóra á
„Skallagrími", og sjávarhitinn mjög
hreytilegur (straumar sitt á hvað og
mjög stríðir) og iskalt við botn úti í
djúpinu.
Svo voru gerðar rannsóknir á síld og
sviflífi fyrir Norðurlandi, fiskað með
vörpu í Eyjafjarðarál og á Skjálfanda.
í álnum fekst margt af þorski og svarta-
spröku (grálúðu), eins og oftar, og mik-
ið af þorski og ýsu, en mjög tatt af skar-
kola, á Skjállanda. Var svo haldið á leið
til Færeyja, með litlum töfum og Jiaðan
heim.
Skipshöfnin var að mestu leyti hin
sama og undanfarið. Meistararnir Táning
og Bruun sáu um fiskirannsóknirnar og
í stað próf. Schmidt var Táning foringi
fararinnar, en Thomsen framkvæmdi sjó-
rannsóknirnar eins og áður. Gengu þeir
að starfinu með söniu elju og áhuga og'
áður og ekki síður. Mag. Jespersen var
á Siglufirði við síldarrannsóknir eins og
hann hefir sagt frá í Morgunblaðinu, 202.
tbl. J). á. — Kristján Kristjánsson frá
Meðaldal var aðstoðarmaður við veiðarn-
ar eins og áður og var nú skipstjórans
önnur hönd — með heiðri. Mér þótti leitt
að geta ekki verið lengur með J)eim góðu
félögum, en við því var ekkert að gera
— á sjó er litið iið að lasburða manni.
Óráðið er enn, hvort „Dána“ kemur hing-
að að sumri, en komi hún ekki verður
hennar saknað af öllum, sem unna vis-
indum og rannsóknum.
B. Sæm.