Ægir - 01.10.1938, Side 6
212
Æ G I R
Við aðalhúsið er sérbygging að stærð
3x/éX4 m. og er i henni gufuketill, sem
kyntur er með olíu. Kosturinn við að hafa
olíukyndingu er sá, að af henni stafa
engin óhreinindi, sem aftur á móti eru
samfara kolakyndingu.
Eins og formaður stjórnar S. í. F. gat
um í ræðu sinni, eru flestar vélarnar
keyptar hjá A. S. Kværner-Brug í Oslo,
og hefir verksmiðjan Héðinn annast upp-
setningu allra vélanna og smíðað gufu-
ketilinn.
Framleiðsla verksmiðjunnar.
Flestar tegundir sjávarafurða, grænmeti o.
fl. er hægt að leggja og sjóða niður í verksmiðj-
unni. Yörutegundir þær, sem verksmiðjan
framleiðir, eru þessar:
Þorskur. Hann er í Vi kg. dósum og er sett-
ur í þær með hrygg og roði og soðinn niður í
eiginn krafti. Þorskurinn er matreiddur á
venjulegan hátt með smjöri.
Lax. Hann er einnig í % kg. dósum og soð-
inn niður á sama hátt og þorskurinn og mat-
reiddur eins.
Murta, úr Þing\Tallavatni, í % kg. dósum;
hauslaus og kviðskorin og soðin niður og mat-
reidd á sama hátt og þorskur og lax.
Murta, í smærri dósum, flökuð og reykt og
lögð í olíu. Hún er höfð í álag á brauð.
Humar. Hann er soðinn niður á venjulegan
hátt og er í Vs kg. dósum.
Sjólax. Það er reyktur og litaður ufsi,
sneiddur niður og lagður i oliu. Sjólaxinn er
hafður á brauð. Hann er í % kg. flötum dósum,
og kostar dósin 50 aura.
Sjólaxpasta. Það sem ekki er hægt að sneiða
niður af ufsanum er malað og kryddblandað
og lítur þá út eins og fíngerð kæfa.
Kúfiskpasta. Þetta er malaður og kryddað-
ur kúfiskur, og er notaður á sama hátt og sjó-
laxpasta.
Kræklingur, lagður í edikssósu. Hann er i
V± kg. dósum og kostar 95 aura. Ivræklingur-
inn er tekinn i Hvalfirði.
Kavíar. Lituð grásleppuhrogn.
Kryddkavíar. Þorskhrogn möluð, krydd-
blönduð og sykursöltuð.
Kryddsildarflök í vínsósu. Þau eru i stór-
um dósum með smeltu loki. í dósinni eru 20
flök og kostar hvert flak 20 aura.
Bismarksíld í edikssósu. Síldin er beinlaus,
magaskorin og hauslaus. Hún er einnig i stór-
um dósum, með smelltu loki. í dósinni eru 12
sildar og er hvert stykki selt á 25 aura.
Síld í Hollandersósn. Það eru beinlaus smá-
síldarflök i sporöskjulöguðum dósum.
Sild í hlaupi. Smástykki beinlaus og eru i
litlum dósum.
Gaffalbitar. Af þeim eru þegar framleiddar
8 tegundir. Gaffalbitar í vínsósu, picklessósu,
lauksósu, pikantsósu, ostrusósu, dillsósu, tó-
matsósu og sinnepssósu. Gaffalbitarnir eru bæði
í stórum og litlum dósum.
Fiskbúðingur í Vi og 1 kg. dósum.
Gulrætur í % kg. dósum.
Blómkál, einnig i % kg. dósum.
Grænar baunir. Baunirnar eru keyptar frá
Belgíu, en soðnar niður i verksmiðju S. í. F.
Eru þær ódýrari en niðursoðnar baunir, sem
inn hafa verið fluttar.
Ætlunin er að niðursuðuverksmiðja S.
í. F. framleiði í framtiðinni allar þær
vörutegundir, sem hér hafa verið nefnd-
ar.
Frágangur vörunnar og umbúðir eru
ágætar og bera vott um smekkvísi. Verk-
smiðjan leggur meginálierzlu á vöru-
vöndun, enda er það aðalskilyrðið til
þess að hægt sé að vinna vörunni mark-
að.
S. í. F. hefir stofnað liér til merki-
iegra tilrauna með þessu fyrirtæki, til-
rauna, sem leiða eiga í ljós, hvort ekki
er hægt að gera liagnýtingu sjávarafurða
fjölbreyttari en verið hefir og hvort ekki
er liægt að hækka lítið eitt meðalverð
fisksins frá því sem nú er. Útgerðarmenn
og sjómenn eru fyrst og fremst þakklátir
fyrir þessa framkvæmd og þeir vona að
vel takist, því slikt yrði allri þjóðinni til
heilla.
Forstjóri verksmiðjunnar hefir verið
ráðinn Þorvaldur Guðmundsson, er áður
veitti forstöðu rækjuverksmiðjunni á
ísafirði.