Ægir

Árgangur

Ægir - 01.10.1938, Síða 11

Ægir - 01.10.1938, Síða 11
Æ G I R 217 Bókasöfn sjómanna. Islendingar hafa fengið orð á sig fyrir að vera bókhneigðir, og er sennilega margt ósannara um þá sagt en það. Hér á landi koma út fleiri hækur á ári hverju miðað við mannf jölda en í flestum öðrum löndum. Fróðleiksþorsti þjóðarinnar var mikill og svo er enn, þótt liann sé nú orð- ið með nokkuð öðrum hætti en áður. Hraðinn og aukin menning hafa hér leikið sinn þátt, beint huganum að fjölþætt- ari efnum til Imgarléttis og stundarfróun- ar, sprett á þann stakk, sem kvöldvakan var í. Enn lifa margir, sem muna kvöld- vökuna, og þeir minnast hennar með hlýleik og trega. Kvöldvakan var sólskins- hletturinn í skannndeginu, á henni var reynt að slökkva fróðleiksþorstann, veita hirtu og vl í hugi fólks, einskonar mót- eitri gegn húminu og kuldanum. Þeir, sem „réru út“, sem svo var kall- að, höfðu ekkert af kvöldvökunni að segja eftir að vertíð byrjaði. Þótt landlegudag- ar væru jafnan nokkrir á liverri vertíð, þá gátu þeir ekki komið í stað kvöldvök- unnar, því að menn höfðu sjaldnast með sér hækur í verið, að minnsta kosti ekki fyrrum. Eftir að verstöðvar risu upp i stórum stíl, áttu vermenn jafnan ekki kost á lesefni, þótt þeir liefðu endrum og sinnum tíma til að gefa sig að slíku. Sjó- mennirnir sjálfir virðast lieldur ekki hafa haft áhuga eða getu, til þess að mynda með sér samtök til bókakaupa. Ætla má, að slík leið hefði þó verið mjög heppileg. Ekki er mér kunnugt um nema eina verstöð, þar sem sjómenn komu sér upp bókasafni, en það var í Þorlákshöfn. Það var um 1890 að sjómenn í Þorlákshöfn bundust samtökum um þetta efni. Sýndu vermennirnir málefni þessu mikla alúð, enda varð safnið á skömmum tíma all- stórt, eftir því sem vænta mátti, af ekki fjölmennari hóp en að því stóð. Safnið var mikið notað, og kom það greinilega í ljós strax á fyrstu vertíðinni, eftir að það var stofnað, að þar hafði verið stigið heillaríkt spor. Vermenn úr Þorlákshöfn hafa sagt mér, að tómstundirnar hafi orð- ið mun ánægjnríkari, eftir að þeir áttu nokkurs úrkostar með lesefni. Þegar út- gerð úr Þorlákshöfn hætti svo að segja alveg, lagðist hókasafnið niður. Enn þá er þó nokkuð til af bókum úr safninu. Meðal sjómanna í Þorlákshöfn var nokk- ur áhugi á síðastliðinni vertíð fjTÍr að reisa safnið á ný. Ekki varð þó af því i það skiptið, en talið er, að á vetri kom- andi verði því hrundið í framkvæmd. Um margra ára skeið hefir Bæjarbóka- safn Reykjavíkur annazt bókalán til skipa, sem gerð eru út frá Reykjavík. Sigurgeir Friðriksson, bókavörður, skrifaði fyrir nokkrum árum langa og merkilega grein um nauðsyn þess að lána sjómönnum bækur úr safninu. Þótt þessari grein hafi máske ekki verið veitt sú athygli sem skyldi, og líklega ekki komið fyrir sjón- ir nema örfárra sjómanna, mun hún eigi að síður hafa liaft veruleg áhrif fvrir ýmsa þætti þessa máls. Sigurgeir liefir með hverju ári reynt að auka þessi hóka- lán og stutt að því, sem föng hafa frek- azt levft, að sjómenn fengju mikið les- efni og gott. Sá hluti Bæjarbókasafnsins, sem ein- göngu er lánaður til skipa, er nú um 1400 bindi. Útlánunum er hagað þannig, að liverju skipi er í senn lánaður einn hóka- pakki, en i honum eru 40 bindi. Láns- tíminn er ekki bundinn við ákveðinn tíma. Stundum hafa skipin hækurnar í mánaðartíma og stundum í þrjá mánuði, allt eftir því livernig á stendur i livert skipti. Mörg skip fá t. d. lánaðar bækur, þegar þau fara á síld og skila þeim ekki fyrr en að vertíðinni lokinni. Hvert skip,

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.