Ægir

Volume

Ægir - 01.10.1938, Page 14

Ægir - 01.10.1938, Page 14
220 Æ G I R að veita þvi athygli, liversu Finnar styrkja sína útgerð og þó er afrakstur hennar ekki nema örlítið brot af heild- artekjum þjóðarinnar. Fisksalarnir og* húsmæðurnar. Ekki veit ég hvað fiskneyzla fslend- inga er mikil að meðaltali á mann yfir árið, en hitt er óhætt að fullyrða, að liún er meiri en hjá flestum öðrum fiskveiða- þjóðum. Engin þjóð er eins vandlát jneð fiskmeti sem fslendingar. Þegar litið er á það eitt, þá virðist þeim, er einhver kynni liafa af fisksölunni hér í Rej'kja- vík, að kvarlanir húsmæðranna yfir þvi hvað fiskurinn, sem þær verka í pottinn, er oft slæmur, séu ekki alltaf að ástæðu- Jausu. Fiskskúrarnir, sem eru við Tryggvagötu, eru aðaf fiskliöllin! í bæn- um. fíver skyldi trúa því, að fólk, sem ekki er á lægra menningarstigi en Reyk- víkingar eru yfirleitt, skuli láta hjóða sér mótmælalaust annan eins sölustað og fiskskúrarnir eru. Þar er seld aðal neyzluvara Reykvíkinga, þótt tvísýna virðist vera á því, að liægt sé að koma þar við fullnægjandi þrifnaði. Þessir sölustaðir hlasa við útlendingum strax og þeir koma upp úr flæðarmálinu. Hvaða hugmyndir ætli slík sjón gefi þessu fólki um meðferðina á aðalneyzluvöru horgarbúa? Fisksalarnir munu ekki ganga þess duldir, að söluskúrarnir fullnægja á eng- an liátt þeim kröfum, sem kaupendurnir gera til slíkra sölustaða. En livað á að gera til þess að hæta úr því ástandi, sem nú er? Sú hugmynd liefir stungið upp kolli, að hyggð verði fiskhöll á lieppileg- um stað og þar verði miðstöð fisksölunn- ar. Sölustaður þessi verði með því sniði, að hann fullnægi kröfum nútim- ans, livað hreinlæti snertir, gejunslu á fiskinum og afhendingu. Þessi uppá- stunga virðist ganga í rétta átt, og getur tæpast talist sæmandi, að ráðamenn bæjarins láti sér aðeins nægja að spjalla um þetta mál, en skeyti ekkert um fram- kvæmd þess. Mest af þeim fiski, sem seldur er liér í Reykjavík, er fluttur liingað á hílum sunnan úr Keflavík, Sandgerði og Grinda- vík. Fiskurinn er settur i eina kös á bíl- ana og elr þvi oftast leftir flutníngjinn meira og minna marinn og skemmdur. Enginn efi er á því, að á þessu má ráða bót, með því að liafa á bílunum 50 eða 100 kg. kassa og flytja fiskinn i þeim. Oftar en einu sinni áður hefir verið minnst á þetta í einu dagblaði bæjarins, en svo virðist, að fisksölunum hafi ekki þótt ástæða til að taka þá bendingu til greina. Húsmæður bæjarins sjá sjaldnast hvernig fiskurinn lítur út í kösinni á bílunum, en þær vita, þegar þær verka liann í pottinn, að hann er miklu verri en hann þyrfti að vera. Þessi vitneskja elur óánægjuna, sem alltaf er að aukast og verða almennari. Ef það er trúa fisksalanna, að það skipti minnstu máli, hvernig vöru þeir selja, því hún verði keypt, hvort sem hún er góð eða vond, þá eru þeir aðeins að beita skálkabragði, sem hlýtur fyrr eða siðar að löðrunga þá sjálfa. Það er krafa fiskneytendanna i bæn- um, að fiskurinn verði framvegis fluttur í kössum á bílunum, og við þeirri kröfu geta fisksalarnir tæpast daufheyrst. Meiri fisk og betri fisk! Þetta er kjör- orð þeirra bæjarbúa, sem unna hollu mataræði.

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.