Ægir - 01.10.1938, Qupperneq 22
228
Æ G I R
Fréttir úr verstöðvunum.
28. okt.
Siglufjörður.
Reknetaveiði var stunduð þaðan, þar til viku
af október. Uin seinustu mánaðarmót var ó-
venju mikil veiði. Vélskipið Hrönn fékk t. d.
350 tn. i 45 net 30. sept. Einn bátur missti þá
20 net, vegna þess, hve mikil síld var í þeim.
Um þetta leyti sást sild vaða, bœði við Gríms-
ey og Rauðunúpa.
mjölsverksmiðjan á Bíldudal vinnur mjöl til
hænsnafóðurs úr rækjuskelinni. Sagt er, að til-
raunir með vinnslu á rækjuskelinni hafi tekizl
vel.
Akranes.
Bátar þaðan eru nú um það bil flestir hættir
reknetaveiðum. Afli hefir verið mjög misjafn,
sæmilegur á stundum. Minnst af aflanum hefir
verið saltað, eða aðeins um % hluti hans, en
hitt hefir verið sett í verksmiðjuna á Akranesi.
ísafjörður.
Þar hafa þorskveiðar verið stundaðar mjög
lítið þennan mánuð. Aðeins nokkrir smábátar
hafa sótt i Djúpið, en aflað frekar illa. Um 20.
okt. fóru 2 þiljaðir vélbátar á. veiðar, en hafa
lítið aflað siðan þeir byrjuðu.
Rækjuveiðar liafa lítið eða ekkert verið
stundaðar frá ísafirði þennan mánuð.
Bolungarvík og Hnífsdalur.
í Bolungavik hafa þorskveiðar aldrei verið
stundaðar jafn mikið óg i sumar. Afli hefir
yfirleitt verið góður. Framan af þessum mán-
uði var tregfiski, en þegar á leið glæddisl
veiðin. Seinustu viku vetrar hafði t. d. einn
8 smál. bátur 100 kr. hlut.
í Hnífsdal hafa ekki verið stundaðar þorsk-
veiðar siðan i vor. Haustvertið byrjaði þar
fyrir nokkrum dögum, og hefir aflazt vel.
Súgandafjöröur og Flateyri.
Súgfirðingar eru flestir á færaveiðuin ennþá.
Þar hefir verið góður færaafli i sumar og haust.
Frá Flateyri stunda nú tveir bátar drag-
nótaveiðar. Hefir annar þeirra aflað mjög vel
og fengið svo að segja allan sinn afla i Önund-
arfirði.
Bíldudalur.
Þar hafa þorskveiðar litið verið stundaðar
þennan mánuð. Tveir opnir vélbátar hafa
að staðaldri verið á veiðum og aflað ágætlega.
Talið er, að mikið af þorski hafi verið i Arnar-
firði i haust.
Einn bátur frá Bíldudal hefir stundað rækju-
veiðar i haust og aflað frekar litið. Áformað
er að tveir bátar stundi veiðar i vetur fyrir
rækjuverksmiðjuna. Ákveðið er að leggja niður
i 100 þús. dósir fram að nýári. Rækjur frá
Bíldudal eru nýkomnar á markaðinn. Fiski-
Reykjavík.
Togararnir eru nú allir á ísfiskveiðum, hema
þrír. Einn mótorbátur hefir verið á botnvörpu-
veiðum, en lítið aflað. Annar hefir verið á
lúðuveiðum vestur við Snæfellsnes og fiskað
mjög litið. Vélbáturinn Geir goði reyndi fyrir
noklcrum dögum með humarvörpu austur við
Eldey. Veður var slæmt og tæpast hægt að
liafast við. Fékk hann 17 kg af humar, 1 löngu,
8 þorska og 10 karfa. Ráðgert er að hann reyni
einnig vestur við Jökul næstu daga. Þessar
tilraunir eru gerðar fyrir atbeina stjórnar
S. í. F.
Aegir
a monthly review of tlxe fisheries and fish
trade of Iceland.
Puhlished hij : Fiskifélag Islands [The
Fisheries Association of IcelandJ Regkjavík.
Results of the Icelandic Codfislieries
from the beginning of the gear 1938 to
the 30 di of September, calculated in fully
cured state:
Large Cod25.157. Small Cod7.852.Had-
dock 75, Saithe 2.329, total 35A13 lons.
Total landings of herring of Sept. 17th
Common salted 99A3Í. Special cure salled
h6M7, Matjes 109.306, Spiced ¥7.592, Swee-
tened 16.566, Special cure 6.192,, total 325.
337 harrels. To lierringoil factories 1.523.
70k heciolitres.
Ritstjóri: Lúðvík Kristjánsson.
Ríkisprentsm. Gutenberg