Ægir

Árgangur

Ægir - 01.05.1939, Blaðsíða 6

Ægir - 01.05.1939, Blaðsíða 6
106 Æ G I R nefndin ekld rætt það. En líklegt má telja, að aðalefni þess verði ekki ágrein- ingsmál, því allir, sem ég liefi rætt það við, hafa verið á einu máli um það, að með frv. sé stefnt að því, að leysa eitt liinna mikilsverðari vandamála þjóðfé- lagsins. 1. gr. Af óskiptum afla hvers íslenzks veiði- skips, sem hefir hlutaráðningu (þ. e. skips- höfnin tekur kaup sitt i hlutdeild í afla), skal í lok liverrar vertiðar greiða 1% af verðmæti aflans i óverkuðu ástandi. Útgerðarmaður stendur skil á gjaldinu. Fé þetta innheimta lireppstjórar og bæjar- fógetar, hver í sínu umdæmi, og rennur það óskert i sjóð, er nefnist jöfnunarsjóður afla- hluta. Skal það sent sjóðsstjórninni að loknum skiptum eftir hverja vertið. 2. gr. Rikissjóður leggur jöfnunarsjóði til fyrsta ár eftir stofnun lians jafnliáa fjárhæð og tekjur sjóðsins voru af aflahlutum það ár. Eftir það leggur ríkissjóður sjóðnum fjárhæð, sem janfgildir tekjum hans af aflahlutum frá byrjun, deildum með tölu ára frá stofnun lians. 3. gr. Sjóðnum skal varið þannig: Þegar hlutir á veiðiskipi verða ekki yfir 66% af meðalhlut skipsins 5 siðustu ár, miðað við úthaldstíma, skulu hlutir bættir upp eftir eftir- farandi reglum, meðan fé sjóðsins endist, sbr. þó síðustu málsgrein þessarar greinar: Hafi aflahlutur orðið 60—66% af meðalhlut 5 síðustu ára, skal hann bættur úr jöfnunar- sjóði með 30% af þvi, sem á vantar meðal- hlut. Hafi aflahlutur orðið lægri en 60% af meðalhlut, hækkar uppbótin við livern liundr- aðshluta, sem aflahluturinn lækkar, um 1% af því, sem á vantaði meðalhlut, þar til uppbótin er orðin 50%, sem er hámark uppbótar. Hafi skip gengið til veiða skemur en 5 ár, þegar til uppbótar kemur, skal þó miða við ineðalhlut þess, hafi það gengið tvö ár eða lengur. Ella skal miða við meðalhlut sambæri- legra skipa i sömu eða næstu veiðistöð. Við úthlutun úr sjóðnum til hlutauppbóta má aldrei ganga nær honum en það, að úthlut- að sé 80% af þáverandi eignum hans. 4. gr. Stjórn sjóðsins skipa þrír menn, kosn- ir hlutfallskosningu í sameinuðu Alþingi til þriggja ára i senn. Fiskveiðasjóður íslands annast daglegar framkvæmdir og reikningshald sjóðsins, fyrir Skúli Guðmundsson, alþm.: Hlutarútgerðarfélög. Fyrir Alþingi því, sem nýlega hefir ver- ið freslað, liggur meðal annars frumvarp til laga um hlutarútgerðarfélög, flutt af þrem þingmönnum í neðri deild þings- ins. Aðalástæðurnar fyrir því að frum- varp þetta er flutt, eru færðar fram í greinargerð, sem fylgdi frumvarpinu, en þar segir m. a. á þessa leið: „Það má öllum vera Ijóst, að þar sem sjávarútvegurinn er annar aðalatvinnu- vegur þjóðarinnar, er það mjög þýðingar- mikið, að þeim atvinnuvegi sé fundið það rekstrarfyrirkoimilag, sem hezt lientar. Er þess mikil þörf að finna þann starfs- grundvöll, sem veitir þeim mönnum, sem að útgerðinni vinna, mesta tryggingu f\T- ir réttlátum starfslaunum, og þeim stofn- þóknun, er stjórnum sjóðanna kemur saman um. 5. gr. Stjórn jöfnunarsjóðs geymir fé hans, og skal það ávallt geymt í banka. 6. gr. Skip, sem gerð eru út í sama kaup- stað eða sama hreppi, geta myndað sérstaka deild í jöfnunarsjóði, ef útgerðarmenn og starf- andi sjómenn i kaupstaðnum eða hreppnum óska þess. Geta deildir þessar ákveðið hærri iðgjöld en þau almennu og aflað sérsjóðum sínum annara tekna. Framlag rikissjóðs til þeirra miðast þó ávallt við 1% af verðmæti aflans í óverkuðu ástandi. Stjórn jöfnunarsjóðs getur við úthlutun hlutauppbóta úr sérsjóðum þessum vikið frá hinni almennu reglu- ef ástæða þykir til og óskir koma fram um það frá þeim, sem hlut eiga að máli. 7. gr. í reglugerð fyrir jöfnunarsjóð afla- hluta má setja ákvæði um stjórn sjóðsins og starfrækslu, eins og nauðsynlegt þykir, ])ótt ekki sé sérstaklega ráð fyrir þeim gert í lögum þessum, þó svo, að þau fari ekki í bág við nein ákvæði laganna. 8. gr. Lög þessi öðlast þegar gildi.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.