Ægir

Árgangur

Ægir - 01.05.1939, Blaðsíða 14

Ægir - 01.05.1939, Blaðsíða 14
114 Æ G I R rök verið leidd því til sönnunar, en þrátt fyrir það er ekki annað sýnilegt, en að innilokunarstefnan hafi enn þá hraðbyri. ítalir eru ein þeirra þjóða, er sækja ötullega að því marki, að verða sjálfum sér nógir. Fyrir nokkru síðan hárust hing- aðfregnir um það, að ítalir hefðu í hyggju að afla alls þess fisks, er árlega er etinn þar í landi. Þess var einnig getið, að þeir teldu sig þess umkomna að framkvæma þetta á tiltölulega skömmum tíma. Þessi fregn túlkar sennilega rétt hug 'Itala í þessum efnum, en þrátt fyrir það er á henni nokkur ólikindablær. Nákvæmar skýrslur eru ekki fyrir liendi um afla ítölsku togaranna síðastl. ár, en það er þó vitað, að hann var hverf- andi lítill liluti af öllu innflutningsmagn- inu. Síðastliðið ár voru alls fluttar inn til Ítalíu 50 þús. smál. af fiski, söltuðum, hálfverkuðum og fullverkuðum, og er þá afli þeirra eigin skipa talinn með. Er þetta meira magn en nokkru sinni áður hefir komið á land í Italíu, eða 6 þús. smál. meira en 1934, en það var metár í þessmn efnum. Sé magninu 1938 breytt í fullverkaðan fisk, lætur sem næst að það liafi verið um 40 þús. smál. Innflutningur íslend- inga til Ítalíu 1938 nam rösklega % af heildarmagninu. Félagið „Cippesco“ er stærsti fiskkaupandinn í Italíu. og flutti það inn síðastl. ár röskar 28 þús. smál. Um áramótin átti það talsvert f}rrirliggj- andi af óseldum fiski, en þrátt fyrir það liefir það keypt nokkuð af fiski á þessu ári, bæði frá Islandi og Noregi. Annað stærsta fiskinnflutningsfélagið er „Meri- tal“ og rekur það jafnframt togaraútgerð. Innflutningur þessa félags nam 5 500 smá- lestum 1938. Auk þessara félaga eru nokkur smærri félög, er bæði kaupa fisk og fást við útgerð. Um nokkurt skeið liafa Italir fullverk- að árlega talsvert af fiski í fiskþurrkunar- stöðvum, er þeir hafa komið upp. Und- anfarin 5 ár hafa þeir tekið til verkunar í þurrkunarstöðvunum eftirgreint magn, miðað við saltaðan fisk: Ár Sniál. 1934 5 400 1935 9 862 1936 8 765 1937 12 670 1938 (fyrstu 9 mán.) 5 513 Frakkar selja árlega talsvert af salt- fiski til Ítalíu og er jafnan megnið af honum fullverkað í fiskþurrkunarstöðv- unum. Síðastl. ár seldu Frakkar þangað 7 000 smál. af saltfiski, og var hann allur fluttur beint til fiskþurrkunarstöðvanna til verkunar. Nú er svo komið í Ítalíu, að sama og ekkert er fullverkað þar af fiski, undanskildum þeim, er kemur frá Frakk- landi. — Um þessar mundir er félagið „Genepesca Frigo“ að láta reisa fisk- þurrkunarstöð, er getur liaft til verkun- ar 100 þús. smál. í einu. I þessari þurrk- unarstöð mun nær einfarið verða verk- aður afli þeirra skipa, er félagið gerir út. Sú skoðun er annars mjög ríkjandi í Ítalíu, að sala á fullverkuðum og létt- verkuðum fiski muni minnka hröðum skrefum, en i þess stað muni fólkið nevta saltfisks. Stafar þetta af því, að það er trú ítala, að í söltuðum fiski (óverkuð- um) haldist hið eiginlega fiskbragð, en slíku sé ekki til að dreifa með fullverk- aðan fisk. Það er jafnvel hald manna, að i framtíðinni muni ítalir verða ginkeypt- astir fyrir nýsöltuðum fiski, og að hann muni að einhverju leyti koma í stað frysta fisksins, sem nú er seldur þangað. Þrjú ítölsk togarafélög gera nú út til þorskveiða í Norðurhöfum. Stærsta tog- araútgerðarfélagið er „Genepesca“, og á það nú 7 nýtízku togara, og eru þeir allir með dieselvélar. Skip þessi stunda öll

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.