Ægir

Árgangur

Ægir - 01.04.1942, Síða 13

Ægir - 01.04.1942, Síða 13
Æ G I R 99 Dvalarheimili aldraðra sjómanna. Sjómannadagsráð hefur nýlega sam- þykkt að stofna til almennrar fjár- söfnunar um land allt i því skyni, að koma upp dvalarheimili fyrir aldraða sjómenn. Hugmynd þessi er að minnsta kosti jafn gömul Sjómannadeginum, og liefur í huga þeirra, er að honum liafa staðið, verið nátengd honum frá upp- tiafi. Nú er hag Sjómannadagsins þannig komið, að sýnt þykir, að hann muni geta látið nokkuð af mörkum til þessa væntanlega dvalarheimilis, auk þess sem ákveðið hcl'ur verið, að tekjur Sjó mannadagsins, næstu árin, renni til þess. Eining sú og' samtök er verið liafa um Sjómannadaginn, hafa vfirleitt verið með ágætum og' sýnir glögglega, að sjó- mannastéttin getur eigi síður en aðrar stéttir verið samhent um liugðarefni sín. Verkefni Sjómannadagsins er í rauninni margþætt og margþættara en almenn- ingur mun gera sér ljóst. Ég þykist þess fullviss, að Sjómannadagsráð liefði ekki getað valið Sjómannadeginum verðugra liöfuðverkefni en það, sem hér er um að ræða. Efa ég' eklci, að hjá öllum þeim, sem nokkur kynni liafa af ísl. sjómanna- stétt, muni þetta verkefni vekja hlýít þellyndi og fórnfýsi, sem venju fremur uum hirtast í öðru en orðum. Fram til þessa hefur allmikið þótt á vanta í skilning á því, „að verkamaður- inn er verður launanna.“ Það er frekar óskemmtilegt að leiða hugann að því, hversu hörmulega hefur farið um margt ul því fólki í ellinni, er við erfiðusiu skilyrði hefur unnið áratugum saman við erfiðustu framleiðslustörfin. Það læfur goldið þjóðfélaginu Torfalögin i einu og öllu, skilað af hendi miklu og hagnýtu dagsverki, en undir kvöldið, þegar starfskraftarnir voru að þrotum, þegið að launum útigang á Kaldbak um- hyggju- og afskiptaleysis. Þeir, sem ein- hver kynni liafa af sjómannastéttinni, munu eflaust þekkja marga sjómenn, er orðð hafa að búa við slíkt lilutskipti siðasta áfangann. Hugmynd Sjómanna- dagsráðsins er fólgin í því, að svo miklu leyti sem þess er kostur, að koma í veg fyrir, að öldruðu sjómennirnir hljóti slík örlög. „Ægir“ vill hér með skora á alla les- cndur siua og aðra landsmenn, að styðja Sjómannadagsráðið í þessu starfi. Þótt enn hafi ekki verið neitt ákveðið um, livar dvalarheimili þetta verði reist, né með hvers konar fyrirkomulagi það verði rekið, hefur þó frá upphafi verið fyrirhugað, að það verði fyrir landið allt. Þcir, sem eitthvað vilja af mörkum leggja lil dvalarheimilisins, geta snúið sér lil Björns Ólafs skipstjóra i Mýrar- húsum á Seltjarnarnesi, en liann er gjaldkeri dvalarheimilisnefndarinnar, og auk þess hafa öll dagblöðin í Reykja- vík lofað að taka á móti fjárframlögum. Ég þykist þess fullviss, að sá hópur er stór, sem vill styðja þessa liugmynd í verki. Allri þjóðinni gefst hér tækifæri, til þess að sýna öldruðu sjómönnunum umhyggju sína og þakklæti. Látum þá hugmynd verða sem fyrst að veruleika, að öldruðu sjómennirnir geti í einlægni sagt, er þeir koma al- farnir heim af liafi og minnast sólhjörtu miðsumarskvöldanna: „Glaðir eldar, eins og fyrr, nndir kveldið loga.“

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.