Ægir - 01.04.1962, Blaðsíða 5
ÆGIR
119
Ólafsvík. Þaðan reru 13 bátar, þar af
v°ru 12 bátar með net og 1 með línu.
Gæftir voru góðar. Aflinn á tímabilinu
varð 1116 lestir í 127 róðrum. Mestan
afla í róðri fékk ms. Valafell þ. 11. marz,
21,1 lest í net. Aflahæstu bátar á tímabil-
inu voru:
Jón Jónsson (lína) með 109 lcstir í 9 róðrum
Bárðm- Snæf. (net) — 109 — - 13 —
Hrönn ........... — 108 — - 13 —
Gnmdarfjöröur. Þaðan reru 8 bátar,
Þar af voru 5 bátar með línu, en 3 með
^et. Gæftir voru góðar. Aflinn á tímabil-
inu varð 454 lestir í 63 róðrum, þar af
yar afli línubátanna 259 lestir í 39 róðr-
Um, en afli netabátanna 195 lestir í 24
vóðrum. Mestur afli í róðri á línu varð
Þ- 13. marz, 12 lestir hjá ms. Gnýfara,
en mestur afli í róðri í net varð þ. 15.
niarz, 15 lestir hjá ms. Farsæl. Afla-
hæstu bátar á tímabilinu voru:
Runólfur (net) .. með 106 lestir í 10 róðrum
Hnýfari (lína) ... — 78 — - 9 —
Parsæll (net) .... — 66 — - 11 —
Stykkishólmur. Þaðan reru 6 bátar
með línu og net. Gæftir voru allgóðar.
Aflinn á tímabilinu varð 259 lestir í 42
nóðrum. Mestan afla 1 róðri fengu ms.
Svanur 21,5 lestir og ms. Þórsnes 19,4
lestir þ. 15. marz í net. Aflahæstu bátar
a tímabilinu voru:
Þórsnes .......... með 67 lestir í 9 róðnmi
Svanur ........... — 66 — - 8 —
austfirðingafjórðungur
í febrúar.
í mánuðinum var ógæftasamt og ekki
stundaður sjór nema á stærstu bátunum,
en þeir reru allir með línu. — Afli var
fremur lítill eða sem næst 5 lestir í lögn.
Um mánaðamótin voru flestir að taka
þorskanetin. Seinast í mánuðinum byrj-
uðu nokkrir rninni bátar að róa með
handfæri. Öfluðu þeir stundum all vel. Á
hnuna var meirihlutinn ýsa og einnig
töluvert af löngu og keilu, einnig fékkst
stundum talsvert af lúðu, en hún var yf-
irleitt smá.
Rétt fyrir mánaðamótin varð vel fisk-
vart í Borgarfirði; var það vænn þorsk-
ur, úttroðinn af síli og fullur af hrogn-
um. Annars er sama og ekkert róið þaðan
á þessum árstíma, enda flestir sem ann-
ars stunda sjó, annars staðar í vertíðar-
vinnu frá áramótum til vors.
Djúpivogur. Þaðan voru gerðir út
stóru bátarnir 2 með línu, 3 minni þil-
farsbátar og einn opinn vélbátur, allir
með handfæri. Afli alls í mánuðinum var
192 lestir, þar af voru um 24 lestir af
bátum, sem gerðir voru út frá öðrum
verstöðvum. Farnar voru alls um 50 sjó-
ferðir.
Breiðdalsvík. Þaðan voru gerðir út
stóru bátarnir 2 með línu. Afli þeiri’a i
mánuðinum var samtals 195 lestir í 38
sjóferðum.
Stöðvarfjörður. Þaðan voru gerðir út
stóru bátarnir 2 með línu. Aflinn í mán-
uðinum var um 100 lestir í 21 róðri sam-
tals. Aflinn var að meirihluta ýsa.
Fáskrúösf jörður. Þaðan voru gerðir út
stóru bátarnir Hoffell og Ljósafell á úti-
legu og Búðafell, allir með línu. —
Afli þeirra í mánuðinum var samtals 215
lestir. Af því var aðeins hluti þorsk-
ue, en helmingur ýsa og 14 hlutinn ýms-
ar aðrar tegundir. Minni bátarnir voru
nú um mánaðamótin að búa sig á hand-
færaveiðar.
Reyðarfjörður. Þaðan var Gunnar gerð-
ur út á útilegu með línu. Aflinn var um
70 lestir.
Eskifjörður. Þaðan voru 4 stórir bát-
ar gerðir út, allir á útilegu með línu.
Aflinn var samtals 357 lestir. Einn minni
bátur hóf róðra síðast í mánuðinum með
handfæri.
Norðfjörður. Þaðan voru gerðir út
Hafþór og Stefán Ben, báðir á útilegu og
og Hafalda reri daglega. Afli var tregur,
oftast 3 til 6 lestir í lögn og gæftir voru
mjög slæmar.
Frá Seyðirfirði og fjörðunum fyrir
norðan var engin útgerð í mánuðinum.