Ægir

Árgangur

Ægir - 01.04.1962, Blaðsíða 17

Ægir - 01.04.1962, Blaðsíða 17
ÆGIR 131 Einar Jóliannsson: FISKBLOKKIR OG Eftirfarandi grein birtist í frétta- bréfi sjávarafurðadeildar S. í. S. — Við hjá Fiskifélaginu teljum, að hún eigi erindi sem víðast. Framleiðsla fiskblokka hefur á undan- förnum árum orðið æ stærri hluti af heildarframleiðslu frystihúsanna. Því er ekki að neita, að á mörgu hefur gengið °g ýmislegt farið afvega við þessa fram- leiðslu, þótt við getum nú verið nokkuð ánægðir með fiskgæðin og snyrtingu alla. Hins vegar erum við langt á eftir aðal keppinautum okkar, hvað snertir lögun °S útlit blokkanna. Ég átti þess kost nú í haust að fylgj- ast með vinnslu úr íslenzkum blokkum eg auk þess stund úr degi að sjá unnið úr kanadiskum blokkum. Samanburður á blokkunum, þ. e. a. s. lögun þeirra, var okkur mjög óhagstæður. Þær kanadisku v°ru mjög sléttar, hornréttar og allir fletir beinir. Úrgangur við sögun þeirra Var hverfandi lítill. Hins vegar voru ís- lenzku blokkirnar mjög misjafnar. Fram- leiðsla sumra húsanna var ágæt, en aftur a móti mjög slæm hjá öðrum. Aðal gallarnir, sem ég sá voru: 1. misþykkt 2. pappi í hornunum 3. blokkirnar holóttar 4. kantar ósléttir 5. blokkirnar bognar. Við skulum athuga þessa galla í sömu röð og þeir eru taldir. 1) Misþykkt blokkanna var í flestum filfellum 14", stundum meiri og stund- um aðeins minni. Vanalega reyndist ann- ar endinn Ys" þynnri en hann átti að Vera en hinn Vjs" þykkari, þótt mörg frá- vik væru hér á. Sú skýring, sem við höf- VINNSLA ÞEIRRA um látið okkur detta í hug, að sé réttust, er sú, að þegar tækjunum er lokað, lyft- ast frystiplöturnar ekki láréttar, heldur skekkist meira og minna. Við þetta komi þrýstingurinn skakkt á öskjurnar, fiskur- inn þrýstist út í annan endann (eða kantinn), og þrátt fyrir mikinn þrýsting á tjakkadælunum, jafnist fiskurinn ekki í öskjunum, heldur frjósi eins og hann er kominn. — Verið er nú að gera til- raunir með stýringar á tækjaplötunum um leið og slöngurnar verða lengdar, til þess að minni hætta sé á að þær strekki og togi í plöturnar og skekki þær. 2) Áberandi var, að pappinn vildi fest- ast í hornum blokkanna. Oftast mun þetta stafa af því, að þegar blokkunum er troðið í pönnurnar, vilja margir þrýsta hornunum inn. Þau rétta sig ekki aftur, heldur frjósa eins og þau eru á sig kom- in, og pappinn festist í fiskinum. 3) Holur í blokkum má greina í þrjá megin flokka: a) Holur, sem skapast vegna þess, að fiskurinn er svo stinnur og nýr,, að hann leggst ekki vel saman. Þá verður mjög að vanda niðurröðun eða lagningu flakanna í blokkirnar. Stundum er óhjákvæmilegt að merja flökin. b) Holur vegna þess, hve illa er lagt í öskjurnar. c) Holur vegna dropa, sem frjósa neð- an á frystiplötunum í tækjunum. Þetta má auðveldlega laga með því að þurrka af tækjunum áður en frosti er hleypt á þau eftir upp- þíðingu. Loks rákumst við á nokkrar blokkir, sem ekki höfðu fengið neina pressu með-

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.