Ægir - 01.04.1963, Blaðsíða 13
ÆGIR
115
Frá verðlagsráði sjávarútvegsins
i$>--------------------------------------——< t
Lágrriarlcsverð á karfa og rækju.
Með tilvísun til laga nr. 97 frá 18. desember
1961, um verðlagsráð sjávarútvegsins, hefur lág-
Warksverð á eftirtöldum fisktegundum verið á-
kveðið og skal það gilda frá og með deginum í
til og með 31. desember 1963.
Karfi, nothæfur til frystingar, hvert kg . kr. 2,99
Kækja (óskelflett) í vinnsluhæfu ástandi
°S ekki smærri en svo, að 350 stykki
fari í hvert kg ......................... — 4,50
Verðið er miðað við, að seljendur afhendi fisk-
'nn á flutningstæki við skipshlið.
Reykjavík, 8. marz, 1963.
VITAMÁL
4>------------------------------<©
iVí’. io. Austfirðir. Dalatangi radíóviti.
tónustutíma breytt.
^jónustutíma radíóvitans á Dalatanga
Kefur verið breytt þannig, að vitinn send-
lr nú stöðugt allan sólarhringinn.
Kallmerki: Ð. A. Öldutíðni: 305.7
krið/s.
Vitaskrá bls. 71.
Nr, ii' Suðvesturland. Hvalsnes.
adíóvita breytt.
Staður. 63°59'05" n.br.. 22°44'09" v.lg.
lnn 25. október 1962 verður hætt starf-
ræks!u radíóleiðarvitans á Hvalsnesi. Frá
Sarnn tíma verður starfræktur venjulegur
' adíóviti á sama stað.
Kallmerki: K F. Öldutíðni: 310.3
krið/s.
Heimild: Flugvallastjóri. Vitaskrá:
Hls. 68.
Norðurland. Kópasker. Dufl.
otaður: 66°17'47" n.br., 16°26'51" v.lg. Á of-
ftnefndum stað á Kópaskeri við Axarfjörð hef-
verið lagt út svörtu, kúlulaga dufli með stöng
PP ur miðju. Duflið er haft á bakborða, þegar
s»elt er að bryggju.
öjokort nr. 11 0g 61. Leiðsögubók II: Bls. 59.
Vitaskrá: Bls. 79.
Nr. 15. Austfirðir. Breiðdalsvik. Ljósdufl. Upp-
lýsingar um legumerki.
1. Á Breiðdalsvík hefur verið lagt út ljósdufli,
er sýnir hvítt leiftur á 1 sek. bili. Staður:
250° 318 m frá Selnesvita (64°47'07" n.br.,
14“00'40" v.lg.).
2. Legumerki er olíugeymir á miðju Selnesi,
sem ber í Selnesvita í 020° stefnu.
Sjókort: Nr. 73 og 74. Leiðsögubók III: Bls.
33. Vitaskrá: Bls. 50 og 81.
Nr. 16. Vestfirðir. Tálknafjörður. Dufl.
I sundinu sunnan Sveinseyrartanga hefur verið
lagt út svörtu, kúlulaga dufli með stöng upp úr
miðju. Duflið er haft á bakborða, þegar siglt
er inn sundið.
Vitaskrá: Bls. 76. Leiðsögubók I: Bls. 63.
Nr. 1. Suðvesturland. Grindavík. Leiðar-
merkjum breytt.
Staður: 63° 50' n.br., 22° 26' v.lg.
1) Mið-leiðarmerki (Snúningur) eru tvö stál-
grindamöstur með þríhymdum toppmerkj-
um, sem bera saman i 337° stefnu. Fremra
merkið er 271° 490 m frá hafnarvitanum (63°
50'13" n.br., 22°25'32" v.lg.) og fjarlægð milli
merkjanna 61 m. I merkjunum er komið fyrir
stöðugum grænum Ijósum, en til vara eru
leiftrandi ljós.
2) Innri-leiðarmerki (Ósmerki) eru tveir staur-
ar með þríhyrndum toppmerkjum, sem bera
saman í 004° stefnu og leiða inn á Hópið eft-
ir dýpkaðri rás. Fremra merkið er 227,5° 520
m frá hafnarvitanum og fjarlægð milli merkj-
anna 62 m. Stöðugum rauðum ljósum er kom-
ið fyrir í merkjunum, en til vara eru leiftrandi
ljós.
Sjókort: Nr. 7. Leiðsögubók III: Bls. 70. Vita-
skrá: Bls. 60, 83.
Nr. 2. Norðurland. Haganesvik. Nýtt vita-
Ijós.
Staður: 66° 04,3' n.br., 19° 08,1' v.lg.
Við fremri leiðarmerkjavörðuna á Haganesvík
hefur verið komið fyrir vitaljósi, er sýnir hvítt,
rautt og grænt leiftur á 5 sek. bili.
Sjónlengd: 8.0 sjóm.
Ljóshorn Eautt f. N. 136°
Hvítt 133y2°—136°.
Grænt f. S. 133%°.
Sjókort: Nr. 61. Leiðsögubók II: Bls. 44. Vita-
skrá: Bls. 34.