Ægir - 01.06.1965, Page 6
176
Æ G I R
Aflahæsti bátur á tímabilinu var Blíð-
fari með 43 lestir í 5 róðrum.
Heildaraflinn á vertíðinni varð 5.270
lestir í 494 róðrum, en var í fyrra 4.109
lestir í 420 róðrum hjá 7 bátum.
Aflahæstu bátar á vertíðinni voru:
Farsæll með 833 lestir í 73 róðrum
Runólfur — 819 — - 60 —
Skipstjóri á m.s. Farsæl var Sigurjón
Halldórsson.
Stykkishólmur: Þaðan réru 9 bátar með
net, aflinn á tímabilinu varð 227 lestir í
36 róðrum.
Aflahæsti bátur á tímabilinu var Gull-
þórir með 82 lestir í 6 róðrum.
Heildaraflinn á vertíðinni var 4.573 lest-
ir í 484 róðrum, en var í fyrra 3.646 lestir
í 362 róðrum hjá 5 bátum.
Aflahæstu bátar á vertíðinni voru:
Þórsnes með 852 lestir í 63 róðrum
Gullþórir — 742 — - 64 —
Skipstjóri á m.s. Þórsnesi var Kristinn
Jónsson.
NORÐLENDINGAFJÓRÐUNGUR
í apríl.
Aflabrögð í fjórðungnum voru léleg.
Þakti ís heil svæði og gátu sjómenn ekki
komið veiðarfærum í sjó. Seinnihluta mán-
aðarins fjarlægðist ísinn og gátu menn þá
lagt hrognkelsanet. Öfluðu menn sæmilega
í þau, og má segja að það hafi verið aðal-
veiðin á nokkrum stöðum.
Höfðakaupstaöur: Bátar héðan lögðu net
innan um ísinn og fengu nokkurn afla til
að byrja með, en svo töpuðu þeir netunum,
og hafa ekki fundið þau.
Sauöárkrókur: Héðan réru 2 dekkbátar
fyrri hluta mánaðarins og öfluðu lítið. Síð-
an hefur ekki verið hægt að komast út úr
höfninni fyrir ís. Hrognkelsaveiði hefir
ekki verið hægt að stunda af sömu ástæð-
um.
Siglufjöróur: B.v. Hafliði landaði úr 3
veiðiferðum 322 tonnum. Hringur reyndi
með japanska togvörpu og aflaði 15—20
tonn, ís og ógæftir hömluðu veiðum.
Hrognkelsaveiði var góð.
Dalvík: Héðan réri 1 dekkbátur með net
og aflaði 45 tonn. Auk þess lögðu netabát-
ar frá Árskógsströnd og Hrísey á land
karfa. Varð aflinn 57 tonn, sem landað
var hér. Opnir bátar voru á hrognkelsa-
veiðum og öfluðu sæmilega, en ísrek hefir
valdið erfiðleikum, og menn hafa misst net
undir ísinn.
Hrísey: Héðan réru 7 dekkbátar og öfl-
uðu 111 tonn í 73 sjóerðum. Is hamlaði
veiðum, annars góðar gæftir.
Akureyri: B.v. Kaldbakur landaði hér
66 tonnum. Opnir bátar lönduðu hjáKEA
59 tonnum og 20 tonnum hjá Kr. Jónssyni.
Grenivík: Hafís lá nærri landi, svo að
fara varð með bátana af legunni til Dal-
víkur og Akureyrar. ísinn eyðilagði hrogn-
kelsanetin. Hnísur veiddust nokkuð.
Grímsey: Reynt hefir verið við fisk
nokkrum sinnum í mánuðinum, en ekki
orðið vart. Grásleppuveiðin er nýbyrjuð og
aflast sæmilega.
Húsavík: Héðan réru 4 dekkbátar og 12
trillur, og öfluðu 239,5 tonn ósl. í 206 sjó-
ferðum. Is og ógæftir hömluðu veiðum.
Fiskafli Norðmanna
ÞORSKVEIÐIN
Heildara/Ii Hert Saltað ísað Fryst Meðalal.
smál. smál. smál. smál. smál. hl.
1965 22/5 71.781 25.818 12.822 9.032 24.109 25.302
1964 23/5 60.531 23.753 18.085 6.264 12.429 23.459