Ægir - 15.06.1965, Qupperneq 9
Æ GIR
191
2. mynd.
sléttu, en á djúpmiðum úti af norðaustan-
verðu landinu var talsverð áta á stóru
svæði. Þá var einnig
talsverð rauðáta úti
af Austf j örðum
norðanverðum.
Síldar varð fyrst
vart hinn 21. maí
um 190 sjómílur
ANA af Langanesi.
Torfurnar voru
þai-na í austurjaðri
Austur-íslands
straumsins eins og
greinilega kemur
fram á skýringar-
mynd 2. Hinn 22. maí
fundust allmargar
torfur um 130 sjó-
mílur austur af
Langanesi, og hafði
sá hluti síldargöng-
unnar þá gengið inn í
kalda sjóinn. Fyrsta
veiði sumarsíldar-
vertíðarinnar fékkst
á þessu svæði tveim-
ur dögum síðar eða
hinn 24.
maí. Hinn 25. og 26. maí fundu síldar-
leitarskipin Hafþór og v/s Ægir svo marg-
ar stórar torfur 76 sjómílur og 55 sjómíl-
ur úti af Dalatanga eins og skýringarmynd
2 sýnir. Virðist þannig vera óvenju-
mikið síldarmagn í stórum torfum á all-
stóru svæði austur og ANA af landinu.
Athuganir á sýnishorni, sem tekið var af
fyrstu veiðinni sýna, að hér var einkum
um síld af norskum uppruna að ræða.
Næstu daga mun síldarleitarskipið Hafþór
fylgjast með síldargöngunni úti af Langa-
nesi og hinn 1. júní mun v/s Pétur Thor-
steinsson einnig hefja síldarleit. Þá mun
v/s Ægir fara í aðra rannsóknarferð
hinn 1. júní og verða þá endurteknar rann-
sóknir úti af Vestur-, Norður- og Austur-
landi, áður en hinn sameiginlegi fundur
norskra, rússneskra og íslenzkra haf- og
fiskifræðinga hefst á Seyðisfirði hinn 21.
júní.