Ægir - 01.07.1966, Qupperneq 7
ÆGIR
209
Sjötugur:
VILHJÁLMUR ÁRNASON
Af þeirri kynslóð íslenzkra fiskimanna,
Sem segja má, að vaxið hafi upp með tog-
araútgerð á Islandi, eru nú fáir orðnir eft-
sem enn fást við þann atvinnurekstur.
Einn þeirra varð sjötugur 27. maí s.l. Var
Pað Vilhjálmur Árnason, fyrrv. skipstjóri
^úverandi framkvæmdastjóri hf. Venus
1 Hafnarfirði.
...Togaraútgerðin, sem hófst á fyrsta og
°?}'um tug aldarinnar olli gerbyltingu í
sJávarútvegi hér á landi. Þá í fyrsta skipti
engu íslenzkir fiskimenn tæki í hendurn-
ai\
iend,
sem gerðu þeim kleift að keppa við er-
a starfsbræður sína á jöfnum grund-
velli og það stóð ekki á því, að dugmiklir
ungir menn gripu það tækifæri. Vilhjálmur
var einn þessara manna. Hann kom frá
hafnleysu suðurstrandarinnar, fæddur og
uppalinn á Stokkseyri, þar sem hann hafði
hafið sína sjómennsku á unglingsárum, en
hugurinn stefndi til hinna stóru nýtízku
veiðiskipa, sem gátu stundað sínar veiðar
hvar sem var á hafinu umhverfis landið
og víðar ef æskilegt var talið. Þegar 24 ára
gamall var Vilhjálmur kominn á togara
eftir að hafa lokið námi við Stýrimanna-
skólann og 31 árs gamall varð hann skip-
stjóri á Gylli. Á því skipi sigldi hann fyrst-
ur með fisk á Þýzkalandsmarkað árið 1930.
Hann gerðist árið 1936 meðeigandi í tog-
araútgerð og þá jafnframt skipstjóri á
Venusi. Þegar uppbygging togaraútgerðar-
innar hófst eftir styrjöldina, tók Vilhjálm-
ur, ásamt félögum sínum, þátt í því og
skipstjórn hélt hann jafnframt áfram til
ársins 1956, síðustu árin á hinu nýja skipi
Venusarfélagsins, Röðli. Eftir að hann kom
í land gerðist hann framkvæmdastjóri fé-
lagsins og er það enn. Hefir hann, auk út-
gerðarinnar, fengizt við fiskverzlun í all-
stórum stíl.
Vilhjálmur var annálaður aflamaður á
skipstjórnarárum sínum og farsæll í starfi
og hefir það fylgt honum ætíð, og fyrirtæki
sitt hefir hann rekið svo að til fyrirmyndar
hefir verið.
í tilefni af þessum tímamótum sendi ég
Vilhjálmi árnaðaróskir og vona að hann
eigi enn um hríð eftir að starfa að mál-
efnum sjávarútvegsins. D. Ól.
SJÓSTÍGVÉLIN
Gamla g-óða merkið
TRETORN
FULLHÁ — ÁLÍMD — LÁG og
með lausum svampgúmmísóla.
TRETORN GÚMMÍVETTLINGAR
Einkaumboðsmenn:
JÓN BERGSSON H.F.
Laugavegi 178 — Reykjavík — Sími 35-3-35
L