Ægir

Árgangur

Ægir - 01.11.1966, Blaðsíða 13

Ægir - 01.11.1966, Blaðsíða 13
ÆGIR Saga togaraútgerðarinnar Framhald af bls. 323 Af ýmsum ástæðum hafði mjög sorfið að togaraútgerðinni allar götur frá 1927 íram að síðari heimsstyrjöld. Hafði togur- um farið fækkandi á þessum árum og voru þeir ekki nema 37 talsins þegar styrjöldin skall á 1. sept. 1939. Meiri hluti fiskiskipaflota landsmanna var þá gamall og hrörnandi, og stórkost- 'egt atvinnuleysi hafði verið frá 1931, og Mmenn skuldaskil hjá landbúnaði 1933 og hjá bátaútvegsmönnum 1935—1936. Það sem mest amaði að á þessum árum, var röng gengisskráning, almenn við- skiptakreppa, upplausnarástand og borg- arastyrjöld á Spáni, sem var annað aðal- aiarkaðsland fyrir íslenzkan saltfisk. Tíu Prósent innflutningstollur hafði verið sett- Pr á í Bretlandi eftir Ottawa ráðstefnuna 1933, og jafnframt var innflutningurinn skorinn niður á íslenzkum ísfiski til Bret- 'ands, og fór kvótinn minnkandi ár frá ári, °g var svo komið í september 1939, að inn- Hutningskvótinn fyrir það ár var fullnot- aður. Mikil hjálp var í því á síðustu árum lyrir styrjöldina, að innflutningskvóti á Isfiski fékkst rýmkaður í Þýzkalandi fyrir atbeina Jóhanns Þ. Jósefssonar síðar fjár- P^álaráðherra. Þegar stríðið hafði staðið liðlega eitt ár, afléttu Englendingar 10% innflutnings- l°llinum, en innflutningshömlunum (kvót- apum) á íslenzkum fiski í október 1939. I október 1939 hófu því Islenzku togar- ai'nir siglingar til Bretlands að nýju, og slgldu allt stríðið með afla til sölu á brezk- PPi markaði, og önnur fiskiskip og flutn- JPgaskip með ísfisk og hraðfrystan fisk, s®m aflazt hafði á íslenzka bátaflotann. Á vlssu tímabili var talið, að 70% af neyzlu- ilski Breta hefði aflazt á íslenzk fiskiskip. ^lglingarnar til Bretlands á stríðsárunum fyrstu árin eftir stríðið bættu mjög af- f°niu íslenzka sjávarútvegsins og þjóðar- 'hnar í heild. Hin mikla gjaldeyriseign Is- lendinga í stríðslok hafði fyrst og fremst komið frá sjávarútveginum. En þessar siglingar höfðu í för með sér mikla hættu fyrir áhafnir og skip. Sam- kvæmt upplýsingum Slysavarnafélags Is- lands, er talið að í síðari heimsstyrjöldinni, 1939—1945, hafi 10 íslenzk skip farizt af styrjaldarástæðum. Með þessum skipum fórust 163 Islendingar auk þess sem 5 sjó- menn biðu bana, er kafbátur réðst með skothríð á íslenzkan línuveiðara. Af þess- um 10 skipum voru 5 togarar og með þeim fórust 99 íslendingar. 1 stríðinu hafði verið heimilað að safna fé í nýbyggingarsjóði hjá útgerðar- og skipafélögum. Kom þetta fé í góðar þarfir í stríðslokin, því að auk skipatjónsins voru þau skip, sem enn voru við lýði, flest 20 ára eða eldri, orðin úrelt og ekki til frambúðar, þrátt fyrir það að þeim hafði verið vel við haldið síðustu árin. Ríkisstjórn ólafs Thors, nýsköpunar- stjórnin, hófst handa um nýsköpun togara- flotans. Samið var um smíði á 30 togur- um í Bretlandi árið 1945, og tveim til við- bótar 1946. Árið 1948 samdi stjórn Stefáns Jóh. Stefánssonar um smíði á 10 togurum. Af þessum 42 togurum voru 4 dieseltog- arar, 2 af þeim fyrstu 30 og 2 af þeim 10 síðustu. Mjög hagstæð kjör fengust um smíði og afgreiðslu fyrstu 32 togaranna, sökum þess að enskir útgerðarmenn höfðu þá ekki gert það upp við sig hvort þeir ættu að smíða svo stóra og dýra togara að þeirra áliti. Er óhætt að fullyrða, að ný- sköpunartogararnir hafi verið beztu tog- ararnir, sem nokkursstaðar höfðu verið smíðaðir fram til þess tíma. Það er fyrst nú síðustu árin, að rætt er um að ný gerð togara taki nýsköpunartog- urunum að sumu leyti fram, enda eru þessi nýju skip margfalt dýrari í stofn- kostnaði en nýsköpunartogararnir voru. Hinn 1. sept. 1946 var 10% innflutn- ingstollurinn á ísfiski látinn taka gildi að nýju í Bretlandi. Fiskmarkaðurinn þrengd- ist og verðið fór lækkandi eftir því, sem fleiri skip tóku þátt í veiðunum og meira

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.