Ægir

Árgangur

Ægir - 01.11.1966, Blaðsíða 17

Ægir - 01.11.1966, Blaðsíða 17
ÆGIR 331 r-------------------------------------------s Frá Verðlagsráði sjávarútvegsins V___________________________________________/ Síldarverð sunnanlands og vestan Yfimefnd Verðlagsráðs sjávarútvegsins hefur ákveðið eftirfarandi lágmarksverð á fersksíld veiddri við Suður- og Vesturland, þ.e. frá Horna- firði vestur um að Rit, eftirgreind tímabil. Síld til frystingar, söltunar og í niðursuðuverksmiðjur, tímabilið 1. okt. 1966 til 28. febr. 1967 pr. kg kr. 1.70 Verð þetta miðast við það magn, sem fer til vinnslu. Vinnslumagn telst innvegin síld, að frádregnu Því magni, er vinnslustöðvarnar skila í síldar- verksmiðjur. Vinnslustöðvarnar skulu skila úr- gangssíld í síldarverksmiðjur seljendum að kostn- aðarlausu, enda fái seljendur hið auglýsta Þraeðslusíldarverð. Þar sem ekki verður við komið að halda afla bátanna aðskildum í síldarmóttöku, skal sýnis- hom gilda sem grundvöllur fyrir hlutfalli milli síldar til framangreindrar vinnslu og síldar til hræðslu milli báta innbyrðis. Síld ísvarin til útflutnings í skip, tímabilið 1. október 1966 til 28. febrúar 1967, pr. kg ......... kr. 1.55 Verð þetta miðast við innvegið magn, þ.e. síld- >na upp til hópa. Síld í bræðslu tímabilið 1. október til 31. október 1966 pr. kg .... kr. 1.12 Verðin eni miðuð við, að seljandi skili síldinni a flutningstæki við hlið veiðiskips. Seljandi skal skila síld til bræðslu í verksmiðju- Pró og greiði kaupandi kr. 0.05 pr. kg í flutnings- £jald frá skipshlið. Heimilt er að greiða kr. 0.22 lægra pr. kg á ?>ld til bræðslu, sem tekin er úr veiðiskipi í flutn- 'neaskip. Reykjavík, 30. september 1966. Verðlagsráð sjávarútvegsins. Síldarverð norðanlands °9 austan Verðlagsráð sjávarútvegsins hefur ákveðið ®ftirfarandi lágmarksverð á síld í bræðslu og síld 11 söltunar, sem veidd er á Norður- og Austur- landssvæði, þ.e. frá Rit norður um að Horna- firði, frá og með 1. október til og með 31. október 1966. Síld í bræðslu: Hvert kg ................... kr. 1.37 Verðbreytingin tekur gildi kl. 24.00 þann 30. september miðað við afhendingu. Heimilt er að greiða kr. 0.22 lægra á kg fyrir sild, sem tekin er úr veiðiskipi í flutningaskip utan hafna, enda sé síldin vegin eða mæld eftir nánara samkomulagi aðila við móttöku í flutn- ingaskip. Verðin eru miðuð við, að síldin sé komin í löndunartæki verksmiðjanna eða umhleðslutæki sérstakra síldarflutningaskipa, er flytji síldina til fjarliggjandi innlendra verksmiðja. Inneign sú, sem verður í flutningasjóði síld- veiðiskipa þann 30. september 1966, skal yfirfær- ast til hins nýja verðtímabils og vera til ráð- stöfunar, ef nauðsyn krefur, samkvæmt reglum sjóðsins, sem birtar eru í tilkynningu Verðlags- ráðs sjávarútvegsins nr. 9/1966. Ekki er gert ráð fyrir greiðslum í sjóðinn af bræðslusíldarverði þetta verðtímabil. Síld til söltunar: Hver uppmæld tunna (120 lítrar eða 108 kg) .................... kr. 278.00 Hver uppsöltuð tunna (með 3 lög- um í hring) .................... — 378.00 Verð þessi eru miðuð við, að seljendur skili síldinni í söltunarkassa eins og venja hefur verið á undanförnum árum. Þegar gerður er upp síldarúrgangur frá sölt- unarstöðvum, sem kaupa síld uppsaltaða af veiði- skipi, skal við hafa aðra hvora af eftirfarandi reglum. a) sé síld ekki mæld frá skipi, skal síldarúr- gangur og úrkastssíld hvers skips vegin sérstak- lega að söltun lokinni. b) Þegar úrgangssíld frá tveimur skipum eða fleiri blandast saman í úrgangsþró söltunarstöðv- ar, skal síldin mæld við móttöku til þess að fundið verði síldarmagn það, sem hvert skip á í úrgangs- síldinni. Skal uppsaltaður tunnufjöldi margfald- ast með 378 og í þá útkomu deilt með 278 (það er verð uppmældrar tunnu). Það sem þá kemur út, skal dregið frá uppmældum tunnufjölda frá skipshlið, og kemur þá út mismunur, sem er tunnufjöldi úrgangssíldar, sem bátunum ber að fá greidda sem bræðslusíld. Þeim tunnuf jölda úr- gangssíldar skal breytt í kíló með því að marg- falda tunnufjöldann með 108 og kemur þá út úr- gangssíld bátsins talin í kílóum. Hluti söltunar- stöðvar miðað við uppsaltaða tunnu er eins og áður 25 kg.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.