Ægir - 01.05.1967, Side 7
ÆGIR
137
Sjávarútvegurinn við áramót
I- » I. u fi m' c i n.
SVEINN BENEDIKTSSON:
SíIdarverksniiAJurnar á Nordur-
Austurlandi 1966.
Síldveiðin fyrir
Norðurlandi og Aust-
fjörðum hófst, að
þessu sinni, fyrr en
nokkurntíma áður.
Eins og árinu áður
aflaðist fyrsta sildin
á m/s Jón Kjartans-
son, skipstjóri Þor-
steinn Gíslason. Fékk
skipið 160 tonn hinn
12. mai um 160 sjó-
ftúlur SAS af Seley. Var sildin frekar smá
°g mögur og talin hafa gengið frá Færeyja-
svæðinu. Á útleið í öðrum túr fékk skipið
góðan afla 80 sjómilur frá landi í sömu
stefnu, var sú síld miklu stærri og fallegri
en síldin í fyrri túrnum. Gangan, sem fyrsta
veiðin fékkst úr, virtist mjög öflug og ganga
•dla leið norður undir Jan-Mayen og ekki
koma aftur á Austfjarðamiðin sunnanverð
fyrr en komið var langt fram á haust.
Heildaraflinn 1966 var i hámarki, þrátt
fyrir það, að þrjá fyrstu mánuði veiðitímans
varð að sækja meginhluta aflans á veiðisvæði
100—200 sjómílur A og NA af landinu og
alla leið til Jan-Mayen nm 360 sjómílna leið.
Veður spillti veiði haust- og vetrarmánuð-
ma i október—desember.
Engin veiði var fyrir Norðurlandi s.l. sum-
ar, en ágæt veiði fyrir Austfjörðum frá því
1 miðjum ágúst fram í miðjan nóvember, að
m]ög dró úr veiðinni, sökum veðurs og
rninnkandi þátttöku.
Skipin hættu öll veiðum nokkru fyrir jól.
I byrjun veiðitímans var síldin að mestu
leyti mjög mögur og erfið til vinnslu, en
fitnaði þegar kom fram á sumarið. Hélzt
fitumagnið hátt fram á haustið, en þá fór
það minnkandi að vanda.
Miklu meira magn veiddist af stórri, gam-
alli og feitri síld en búizt hafði verið við,
einkum í júní og frá síðari hluta ágúst-
mánaðar fram í nóvembermánuð, en eftir
það var síldin mjög blönduð smærri síld.
Talið er, að síldarárgangar, 10 ára og eldri,
hafi niunið um 22,6% af heildarmagninu
miðað við þyngd, þar af tæpur helmingur 16
ára árgangur frá árinu 1950. Meðalþyngd
pr. stk. var 496 grömm á 16 ára síld og
meðallengd 37,3 cm.
Áætlað er að 7 ára árgangur hafi numið
um helming aflans og 6 ára árgangur 18,5%,
meðallengd fyrrnefnda árgangsins var 33,4
cm. og þyngd 360 grömm og hins síðamefnda
32,5 cm. og 330 grömm.
Mun þetta vera þyngri síld, miðað við ald-
ur, en kunnugt er um áður.
Stóra síldin virtist, að sumra áliti koma,
að verulegu leyti austan frá Bjarnareyjar-
svæðinu.
Verð á bræðslusíldarafurðum, síldarlýsi og
síldarmjöli, fór ört fallandi, þegar fram á
sumarið kom, einkum á lýsinu. Kom þetta
verðfall mjög hart niður á síldarverksmiðj-
unum vegna þess að hráefnisverðið hafði ver-
ið ákveðið fyrú tímabilið frá 10. júni til 30.
september miðað við miklu hærra afurða-
verð en raun varð á.
Af þessum sökum voru síldarverksmiðjum-
ar flestar reknar með tapi s.l. ár.
Saltsíld til útflutnings tókst að selja fyrir-
fram með nokkru hærra verði en árinu áður,
og hækkaði hráefnisverð saltsíldar úr kr.
350.00. uppsöltuð tunna i kr. 378.00.