Ægir - 01.06.1967, Side 14
192
Æ GIR
Síldveiðamar 1966
Eftirfarandi skýrsla um afla báta á
sumar- og haustsíldveiðum er að mestu
leyti byggð á upplýsingum frá kaupend-
um. Þar sem líkur benda til þess, að í sum-
um tilfellum hafi gleymzt að tilkynna mót-
tekinn afla, verður tækifærið notað til þess
að brýna fyrir hlutaðeigandi aðilum, að
sýna árvekni í skýrslugjöf, svo að afla-
skýrslur megi verða sem allra réttastar,
og ná þeim tilgangi sem þeim er ætlaður.
Ef litið er yfir síldveiðar ársins má sjá,
að Austurlandsveiðarnar lágu niðri frá
því seint í janúar fram undir miðjan maí,
en á Suðuriandsmiðum veiddist einhver
síld alla mánuði ársins, þótt stundum væri
magnið óverulegt.
I vetrarvertíðarskýrslu, sem birtist á
bls. 409—415 í 22. tölubl. Ægis, árið 1966,
er að finna samanlagðan þann síldarafla
skipa, sem fékkst sunnanlands á tímabil-
inu 1. janúar til 31. maí og Austurlands-
aflinn í janúarmánuði.
Því hefur aflaskýrslan sem hér birtist
inni að halda þann afla sem fékkst á Aust-
fjarðamiðum frá því í maí til desember-
loka, en Suðurlandsaflinn á skýrslunni
fékkst á tímabilinu 1. júní til 31. desem-
ber.
Austurlandsveiðar hófust þann 12 maí,
þegar Jón Kjartansson, STJ-111, fékk
fyrstu síldina um 150 sjóm. ASA af Seley,
og voru veiðarnar stundaðar óslitið eftir
því sem gæftir leyfðu fram undir miðjan
desember, en þá hættu flestir veiðum og
héldu heimleiðis.
Af alkunnum orsökum voru aflabrögð á
Suðurlandsmiðum rýr, og á þeim slóðum
stunduðu vart aðrir bátar veiðar en þeir,
sem smæðar vegna eru óhagkvæmir til
úthafsveiða.
Aflahæsta skip vertíðarinnar var Gísli
Árni frá Reykjavík, skipstjóri Eggert
Gíslason, sem veiddi 12.692 lestir.Tvö önn-
ur skip fengu yfir 10.000 lestir, Jón Kjart-
ansson frá Eski-
firði og Jón Garð-
ar frá Garði.
Alls tóku þátt í
veiðunum 202 skip
með hringnót,
meðalstærð áhafn-
ar 11,9 menn og
meðalafli var
3.620 lestir á 174
úthaldsdögum.
Auk þessa reyndu
tveir togarar fyr-
il' sél' með síldar- Eggert Gíslason.
flotvörpu, en ár- Aflahæstur á sildveiðun-
, . .um 1966.
angur þeirrar til
raunar var lítill.
Árið 1965 tóku þátt í veiðunum 234
skip, meðalstærð þeirra var 145 rúmlestir,
meðalstærð áhafnar 11,4 menn og meðal-
afli 2.747 lestir á 163 úthaldsdögum.
Þessar meðaltölur ber samt að skoða
með töluverðri gagnrýni. Skýrari mynd af
hlutunum mætti fá með því, að taka vegin
meðaltöl með tilliti til úthaldsdaga, þótt
þeir gefi e.t.v. ekki til kynna raunverulega
fyrirhöfn við veiðarnar.
Um hagnýtingu aflans er það að segja,
að á bls. 110 í 6. tölubl. Ægis þessa árs, er
að finna nákvæma sundurliðun eftir verk-
unaraðferðum, og látið nægja að vísa til
greina merktra II, III, V og VI.
Aflinn skiptist þannig eftir mánuðum:
%
Maí ......................... 4.0
Júní ...................... 14.5
Júlí ...................... 10.2
Ágúst ..................... 20.8
September ................. 18.4
Október ................... 12.8
Nóvember .................. 14.2
Desember .................... 5.1
100.0 %