Ægir - 01.12.1975, Page 31
NÝ FISKISKIP
• ■/ • .... 0
/ þessu tbl. birtist lýsing á skut-
togaranum Haraldi BöSvarssyni
AK, sem keyptur var til lands-
ins frá Noregi, og tveimur 30
rúmlesta fiskiskipum sem byggð
eru innanlands og afhent voru á
s.l. sumri. Ægir óskar eigendum
og áhöfnum skipanna til ham-
ingju.
Haraldur
Böðvarsson AK 12
30. júlí s. 1. kom skuttogar-
inn Haraldur Böðvarsson AK
12 til Akraness í fyrsta sinn.
Þetta er 3. skuttogarinn, sem
Akurnesingar eignast en fyrir
eru á staðnum Krossvík AK
og Ver AK. Skuttogari þessi,
sem áður bar nafnið Baats-
fjord, var keyptur frá Noregi
og var afhentur fyrri eigend-
um í apríl á þessu ári. Skipið
er byggt hjá Storviks Mek.
Vcrksted A/S Kristiansund,
nýbygging nr. 67 hjá stöðinni,
og er svonefnd R-155 A gerð
frá Storviks. Þetta er fimmti
skuttogarinn í flota lands-
manna sem umrædd stöð hef-
ur byggt og sá fjórði af þess-
ari gerð, hinir þrír eru: Dag-
stjarnan KE 9, Framtíðin
KE 4 og Skinney SF 20. Stál-
vík h.f. hefur byggt tvo skut-
togaara af þessari gerð, en það
eru Stálvík SI 1 og Runólfur
SH 135. Haraldur Böðvarsson
AK er í eigu samnefnds hluta-
félags á Akranesi.
Haraldur Böðvarsson AK
mælist 299 rúmlestir, mesta
lengd 46.45 m, breidd 9.00 m,
dýpt að efra þilfari 6.50 m og
dýpt að neðra þilfari 4.35 m.
Lestarrými er um 280 m3,
brennsluolíugeymar 124 m3
og ferskvatnsgeymar 47 m3.
Aðalvél er frá MAK, 1500
hö, með Hjelset skiptiskrúfu-
búnaði og skrúfuhring. Hjálp-
arvélar eru tvær Mercedes
Benz, 160 ha, með 124 KVA
Stamford rafölum. Stýrisvél
er frá Tenfjord. í skipinu eru
tvær DIA8U togvindur (split-
vindur), sambyggð akkeris- og
grandaravinda og tveir kap-
stan frá Brattvaag svo og
flotvörpuvinda frá Norwinch.
Kapalvinda fyrir netsjártæki
er frá Elac, rafdrifin. Af öðr-
um búnaði má nefna fersk-
vatnsframleiðslutæki, lifrar-
bræðslutæki svo og blóðgun-
arkör, þvottakar og færibönd
á vinnuþilfari.
íbúðir eru samtals fyrir 17
menn. Undir neðra þilfari
(framskips) eru fjórir 2ja
manna klefar og einn eins
manns klefi. Á neðra þilfari
eru tveir 2ja manna klefar og
einn eins manns klefi. í þil-
farshúsi (á efra þilfari) eru
tveir eins manns klefar fyrir
yfirmenn og íbúð skipstjóra.
Helztu tæki í stýrishúsi eru:
Ratsjá:
Decca, gerð RM924, 48
sml.
Ratsjá:
Decca, gerð RM926, 64
sml.
Miðunarstöð:
Taiyo, gerð TD-A130.
Loran:
Decca DL 91, sjálfvirkur
Loran C.
Gyroáttaviti:
Anschiitz.
Sjálfstýring:
Anschutz.
Vegmælir:
Bergen Nautik, gerð FDU.
Dvptarmælir:
Simrad EQ 38.
Dýptarmælir:
Elac LAZ 71 m/botn-
stækkun.
Fisksjá:
Elac LAZ 61.
Netsjá:
Elac.
Talstöð:
Sailor T122/R106, 400
W SSB
Örbylgjustöð:
Simrad VHFon, gerð
PC 3, 25 W.
Að öðru leyti er vísað í lýs-
ingu á Skinney SF (14. tbl.
’75), en þessir tveir skuttog-
arar eru byggðir eftir sömu
teikningu, fyrirkomulag það
sama og véla- og tækjabún-
aður, þó með vissum undan-
tekningum. í Haraldi Böðvars-
syni AK er flotvörpuvinda og
einn kapstan umfram, en aft-
ur á móti er ekki losunarkrani.
Tæki í brú eru af sömu gerð,
nema fiskileitartæki. Hvílur
eru fyrir 17 í umræddu skipi
á móti 19 í Skinney SF, en
íbúðarrými er þó hið sama.
Skipstjóri á Haraldi Böðv-
arssyni AK er Kristján Pét-
ursson og 1. vélstjóri Jón
Skafti Kristjánsson. Fram-
kvæmdastjóri útgerðar er
Sturlaugur Böðvarsson.
ÆGIR — 385