Ægir - 15.03.1977, Qupperneq 16
Sjávarútvegurinn 1976
Nohhrir iorusimnenn í sjúnuriítvegi og fishiilinuiyi
gcfu í livssu og nivstu hlöúuin stutt gfirlit gfir
úriA sem leið og neða ústanil og liorfur
Tónms Þorvaldsson:
Saltfiskframleiðslan 1976
í tveimur síðustu
áramótapistlum
mínum hér í Ægi
hefi ég lýst skoðun
minni á því rang-
læti að leggja há út-
flutningsgjöld á að-
al útflutningsat-
vinnuvegina. Salt-
fiskútflutningur
varð þar harðast úti
og var það því SÍF
sérstakt ánægjuefni,
þegar þau voru lækkuð í 6%.; Sú ánægja er þó
nokkuð blandin, þar sem algjör niðurfelling
þeirra hlýtur að vera markmiðið. Auk þeirra
bættu samkeppnismöguleika erlendis, sem nið-
urfelling útflutningsgjaldanna hafði í för með
sér, einfaldaði það mjög hið svonefnda sjóða-
kerfi sjávarútvegsins og er það vel.
Það er augljóst, að til lengdar getum við
ekki staðist þá óheilbrigðu samkeppni, sem
Norðmenn og fleiri fiskútflytjendur stunda,
ef við erum skattlagðir á ýmsan hátt, en þeir
á sama tíma styrktir beint og óbeint um mikl-
ar fjárhæðir.
Sterkasta vopn okkar í sölustarfseminni var
um langan aldur sú staðreynd, að við gátum
ábyrgzt 35—45% af stærðinni 10/20 sporðar
í 50 kg. pakka.
Þetta er fiskur, sem lætur nærri að vera 97
94 — Æ GIR
cm langur upp úr sjó. Þetta vopn hefur nú
verið slegið úr höndum okkar að mestu, því
að þó ennþá sé þokkalegt hlutfall af þessum
fiski í sumum landshlutum, þá sést hann
varla annars staðar.
Á meðan f jölmiðlar slá upp fréttum af mok-
afla hér og mokafla þar án þess að hirða
um, hvort þar sé um að ræða fullvaxinn fisk
eða einungis verið að strádrepa ungviði, þá
er ekki von að vel fari.
Framleiðsla og sala.
Framleiðsla 1975 hafði verið áætluð 46.500
lestir, en birgðir um áramót reyndust meiri en
ætlað var og kom því í ljós síðar á árinu 1976
að framleiðslan alls hafði orðið 48.800 lestir-
Eins og fram kom í 5. tbl. Ægis 1976 var
það mesta framieiðsla í 20 ár.
Framleiðslan á árinu 1976 er skv. bráða-
birgðatölum talin verða tæplega 44.000 lestir-
Þar af hafa verið teknar um 3.300 lestir í
þurrkun, sem er mun minna en síðustu ár og
stafar af erfiðleikum á þurrfiskmörkuðum.
Útflutningur á saltfiski árið 1976 varð alls
rúmlega 49.000 lestir, sem er mesti útflutn-
ingur um mjög langt skeið. Birgðir í ársbyrj'
un voru talsverðar, en nú í árslok næsta litlar.
en í því liggur meðal annars skýringin. Cif
verðmæti þessa útflutnings mun nema ca-
13,8 milljörðum króna.
Útflutningurinn 1976 skiptist þannig:
lestir
Útflutningur alls...................... 49.446
Óverkaður saltfiskur alls ............. 40.751
Bretland .......................... 208
Grikkland ....................... 3.427
Ítalía .......................... 3.796
Portúgal ....................... 27.273