Ægir

Árgangur

Ægir - 01.09.1984, Síða 37

Ægir - 01.09.1984, Síða 37
ERT ÞU KAUPANDI ÚTVEGS ? Vilt þú vita um afla og aflaverðmæti allra báta og togara á s. I. ári Vilt þú vita hvað hvert fiskvinnslufyrirtæki á landinu tók á móti miklu fiskmagni á s.l. ári svo og aflaverðmæti þess fisks. Vilt þú vita hve mikið fiskmagn var unnið í hverri verstöð landsins á s.l. ári svo og s.l. 10 ár. Allar þessar upplýsingar auk fjölmargra annara er að finna í Útvegi '83. Fiskifélag íslands Sími 10500 Pósthólf 20-121 Reykajvík Kveðja til dr. Björns Jóhannessonar frá Jóni Sigurbssyni í tilefni af svargrein dr. Björns Jóhannessonar við grein minni í Ægi nýveriðum laxahafbeiterrétt að eftirfarandi komi fram sem lokaorð um þetta efni af minni hálfu. Vegna áburðar dr. Björns í þá veru, skal hann fullvissaður um, að greinarkorn af þessu tagi er ég maður til að skrifa sjálfur. Starfs- menn Veiðimálastofnunar sáu ekki ástæðu til að svara upphaf- legri grein dr. Björns. í þeirra sporum hefði ég heldur ekki gert það eins og greinin var úr garði gerð. Eftir lestur athugasemdar dr. Björns kýs ég að eiga ekki frekar orðastað við hann um þetta efni. Umfjöllun hans öll einkennist af slíkri meinsemi, sem jaðrar við heift út í starfsmenn Veiðimála- stofnunar og Kollafjarðarstöðina, að viti borin umræða um málið verður ómöguleg á þeim grund- velli. En hverjar sem skoðanir dr. Björns eru á laxeldisstöðinni í Kollafirði og þeirri starfsemi, sem þar hefur farið fram undanfarna áratugi, er hætt við að við værum í ýmsu tilliti enn skemur komnir á þessu sviði en við þó erum, ef þeir menn, sem á sínum tíma höfðu frumkvæði að því að koma eldisstöðinni á fót, hefðu ekki gert það. Og vel mætti dr. Björn við tækifæri biðja flesta helstu frumkvöðla í laxeldi hérlendis að telja saman þau ár, sem Kolla- fjarðarstöðin hefurflýtt uppbygg- ingu þeirra af því að hún var til reiðu til aðstoðar, þegar þörf bar til vegna slysa, sjúkdóma eða af öðrum ástæðum. JS 11.07.84 ÆCIR — 493

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.