Tímarit lögfræðinga - 01.10.1955, Síða 3
TIMARIT LOGFRÆÐINGA
J. hefti 1955.
Skrá um lagabókmenntir eftir íslenzka
höfunda eða í íslenzkum þýðingum
til ársloka 1955.
FRIÐJÓN SKARPHÉÐINSSON
tók saman.
Skrá sú, sem hér fer á eftir, nær aðeins yfir prentuð
rit og ritgerðir eftir íslenzka höfunda, svo og rit erlendra
höfunda, þýdd á íslenzku. Engar ritgerðir eru þó taldar
hér, sem birzt hafa í dagblöðum eða vikublöðum, og ýms-
um smágreinum í tímaritum er sleppt, svo sem flestum rit-
dómum. Auk þess fer naumast hjá því, að sézt hafi yfir
meira eða minna af ritum og ritgerðum, er rétt hefði verið
að taka með í skrána. Væri ég þakklátur hverjum þeim,
sem gæfi mér bendingar um það.
Þá er þess að geta, að oft orkar tvímælis, hvað taka beri
í skrá slíka sem þessa. Á þetta þó einkum við rit og rit-
gerðir, er fjalla um réttarsögu eða stjórnskipunarr'étt, en
eru sögulegs eða stjórnmálalegs efnis að meira eða minna
leyti. Við samningu skrár þessarar tók ég þann kost að
taka einungis slík rit, ef höfundur var lögfræðingur, og þá
því aðeins, að efni ritanna eða ritgerðanna fjalli að veru-
legu leyti um réttarsögu eða stjórnskipunarrétt. Nokkrar
undantekningar eru þó gerðar um ýmis meiri háttar rit,
svo sem kirkjusögur biskupanna Finns og Péturs, rit Jóns
173