Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1924, Blaðsíða 11
9
hard Prinz, f. í Bielefeld i Westfalen 15. júlí 1901. Foreldrar:
Gustav Prinz kennari og Clara Prinz kona hans. Stú-
dent 1920.
VI. Kenslan.
Guðfræðisdeildin.
Prófessor Haraldur Níelsson.
1. Fór með yfirheyrslu og viðtali yfir Matteusarguðspjall (á
grísku) 4 stundir í viku alt fyrra misserið og framan af
hinu síðara. Að því búnu yfir Markúsarguðspjall (í ís-
lenskri þýðingu) 4 stundir í viku og síðast 6 stundir í viku.
2. Fór með sama hætti vandlega yfir II. Korintubrjej (í ís-
lenskri þýðingu) 2 stundir i viku fyrra misserið, en með
hraðlestri yfir Ejesusbrjefið (í íslenskri þýðingu) 2 stundir
í viku framan af siðara misseri.
»Die Schriften des N.T.« aðallega notuð við kensluna.
Prófessor Sigurður P. Síverlsen.
1. Fór með yfirheyrslu og viðtali yfir trúarsögu Ngjatesta-
mentisins (síðasta hlutann) 1 stund í viku fyrra misserið.
Bók kennarans notuð.
2. Fór með yfirheyrslu og viðtali og fyrirlestrum yfir irú-
frœði (síðari hlutann) 4 stundir i viku fj'rra misserið,
fram að áramótum. — Livsforstaaelse eftir F. C. Iírarup
lögð til grundvallar við kensluna.
3. Fór með yfirheyrslu og viðtali yfir siðjrœði 4 stundir í
viku frá áramótum. — Notuð við kensluna Christianity
and Ethics eftir Archibald B. D. Alexander.
4. Flutti fyrirlestra um sálgœslu, fór með fyrirlestrum og
viðtali yfir helstu atriði prjedikunarjrœðinnar ognokkur at-
riði barnaspurningajrœðinnar og hafði æfingar í rœðugjörð
2