Stúdentablaðið

Volume

Stúdentablaðið - 01.10.2002, Page 6

Stúdentablaðið - 01.10.2002, Page 6
Syndir bókhaldsdónanna Hvernig tókst möppudýrum að komast í heimsfréttirnar? Bjarki Stefánsson, BS í viðskiptafræði/fjármálum frá golfhöfuðborg Bandaríkjanna, Myrtle Beach í Suður- Karólínufylki, er nú að bæta við sig þekkingu í Háskóla Islands. Hann fór létt með að skýra frá Enron-málinu og áhrifum þess fyrir ÞÓRHALLI ÁSBJÖRNSSYNI, enda orðinn sjóðheitur eftir fjórfaldan tíma í Reikningshaldi VI. Hvað gerðu stjómendur Enron af sér? „Enron átti mikinn fjölda dóttur- og systurfélaga. Hluti þeirra gegndi þeim eina tilgangi að taka lán, telja þau sem tekjur og kaupa fyrir þau þjónustu af Enron sem taldi greiðsl- umar sem hluta af sínum tekjum. Þetta var gert með aðstoð hæfra endurskoðenda og íjármálamanna. Reikningar fyrirtækisins sýndu 40- 60% vöxt fyrirtækisins á ári sem er auðvitað óraunhæft til lengri tíma í samkeppnisheimi, sérstaklega í ljósi þess að fyrirtækið var að keppa á orkumarkaði sem er gamalgróinn. Nýir markaðir eru mun líklegri til að bjóða upp á óvenjulegan gróða.“ Áttu menn þá að vera búnir að ,,/inna skítalykt af málinu “ fyrr? „Ég hef lesið skýrslur frá Qár- málamönnum sem mæltu með því að selja bréf í Enron mörgum mánuðum áður en að svikin komust upp; kannski var það vegna þess að þetta „meikaði ekki sens“ lengur. Engu að síður mælti meirihluti ijármálasér- fræðinga óhikað með kaupum í Enron síðasta haust, rétt áður en að svikin komust upp. Vandinn er að stórfyrirtæki eru mörg hver orðin svo umfangsmikil að það er erfitt að átta sig á bókhaldi þeirra.“ Hvernig gátu stjórnendurnir grætt á þessum brellum? „í starfssamningum er stjómendum gjaman tryggður réttur til þess að kaupa hlutabréf á ákveðnu gengi í viðkomandi fyrirtæki. Það eru svokallaðir valréttarsamningar eða „stock options“. Þess vegna þjónar það hagsmunum stjómenda að bréfm hækki sem mest í verði. Ef þeir fá að kaupa bréf á 10 dollara á hlut og verðið rýkur upp í 100 geta þeir hagnast gríðarlega. Þegar brellum er beitt til að hækka verð bréfanna, líkt og í Enron-málinu, ráða ferðinni persónulegir hagsmunir stjómenda, en ekki hluthafa, sem er einn helsti gallinn á þessu fyrirkomulagi. Hluthafar em gjaman langtímafjár- festar en brögð sem hækka verð hlutabréfa til skamms tíma eru líkleg til að skaða hluthafana til lengri tíma litið.“ Hvernig komst upp um svikin? „Ég held að reikningar Enron hafí hreinlega verið komnir í of mikla flækju. Á síðasta ári bókfærði Enron milljarð dollara sem gjöld án þess að geta gefíð viðunandi skýringar á þeim. í kjölfarið fór í gang rannsókn á því hvað þama væri á seyði. Þegar upp komst um svikin hmndi gengi bréfanna nánast niður í núll og em hluthafamir því illa brenndir af málinu. Stofhanir og sjóðir, sem fjár- fest höfðu í fyrirtækinu töpuðu fleiri hundmð milljónum dollara. Verst fór fyrir starfsmönnum Enron sem fengu Iífeyrisgreiðslur í formi hlutabréfa í Enron að megninu til og þurrkaðist því lífeyrir þeirra nánast út.“ Hver hafa áhrijin af bókhaldshneykslunum verið? „Þar sem Enron komst upp með ýmislegt í bókhaldi sínu fóm menn að spyija sig: „Hvað með öll hin stórfyrirtækin sem hafa óskiljanlega reikninga?" Fjárfestar vita ekki lengur hveijum þeir geta treyst og hafa margir dregið sig út úr hlutabréfasjóðum. Það hefur valdið offramboði á hlutabréfum með tilheyrandi verð- lækkunum, sem valda því að enn fleiri vilja losna við hlutabréf og þess vegna hafa þau lækkað enn meira. Gengi bréfa á hlutabréf- amörkuðum hefur lækkað um 20-30% síðan upp komst um málið og sér ekki fyrir endann á því. Ég býst við að á næstunni muni mikill kostnaður fara í að bæta eftirlit og reglugerðir og að með tímanum muni tiltrú fjárfesta ná sér aftur á strik.“ ,55Með aukinni reynslu í bókhaldsbrellum hljótum við íslendingar að eignast einhverja svívirðilega svikara á þessu sviðiU Er það rétt að George W. Bush forseti hafi tekið þátt í þessari gerð svika ,á árum áður? „Ég efast nú um það. Þeir sem staðið hafa í þessum svikum eru örugglega mjög klárir. Bush forseti og reyndar Cheney varaforseti voru báðir viðskiptamenn í olíu- fyrirtækjum í Texas og þekkja forstjóra Enron, hr. Lay, mjög vel. Leiða má líkur að því að Enron- málið hafí komið fram í dagsljósið síðar en ella vegna tengsla þeirra. Framlög Enron í kosn- ingasjóði Bush voru víst talsvert há. Annars heyrði ég því fleygt að einn stjórnarmeðlima Enron fyrirtækisins sé eiginkona bandarisks þingmanns. Þessi kona var víst formaður í reikn- ingsskilanefnd Enron og því nátengd málinu. Þingmaðurinn á hins vegar hátt setta vini innan fjármálaeftir- litsins bandaríska og á víst hönk í bakið á háttsettum aðila þar. Nú er þingmaðurinn sagður beita áhrifum sínum fyrir því að málið gegn stjómarmönnum Enron verði fellt niður.“ Gœti verið að einhver íslensk stórjyrirtœki séu að leika sama leik? „Ég verð að segja að það sé ólíklegt. Stór hluti af svikunum hafði að gera með afleiðusamninga ýmis konar og þeir eru ekki notaðir mikið hér á Islandi. Annars held ég að með aukinni reynslu í bókhaldsbrellum hljótum við að eignast einhverja svívirðilega svikara á þessu sviði. Það gæti tekið nokkur ár en það gerist örugglega einhvem tímann." Er ekki bara verið að kenna ykkur bókhaldsbrellur í Reikningshaldi VI þar sem að þið kunnið allt annað í faginu nú þegar? „Nei, ég held að Reikningshald V sé hjálplegri fyrir þá sem vilja læra að eiga við bókhald. Annars veit ég að áfanginn Bókhaldsbrellur er kenndur í Endurmenntunarstofnun Háskólans af Stefáni Svavarssyni, sem hefur mikinn áhuga á þessu og tekst að koma vel frá sér skoplegu hliðunum á þessu efni.“

x

Stúdentablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.