Stúdentablaðið

Årgang

Stúdentablaðið - 01.10.2002, Side 14

Stúdentablaðið - 01.10.2002, Side 14
14 Kennsla í HÍ Aðsókn að lagadeild sló öll met í ár í haust hófu 260 manns nám við lagadeild Háskóla íslands og hafa aldrei jafn margir sótt um. Undanfarin ár hafa miklar breytingar átt sér stað og má segja að námið sé nú gjörbreytt frá því sem var fyrir áratug eða svo. Nýr deildar- forseti lagadeildar, EIRÍKUR TÓMASSON prófessor, greinir frá helstu nýjungum í starfi hennar. Breytingar á laganáminu sjálfu hafa þegar tekið gildi en aðrar breytingar gilda frá og með haustinu 2003. Nú hefur verið tekin upp sú tilhögun að grunnnámið sem tekið hefúr þrjú ár, og tekur enn þrjú ár, lýkur með B.A.-prófi í lögfræði. Þá geta þeir sem það vilja farið beint út á vinnumarkaðinn eða haldið áfram námi á öðrum fræðasviðum. B.A.-próf í lögfræði er hagnýtt nám eins og t.d. B.A.- próf í stjóm- málafræði og slíkum greinum. Starfsmöguleikar eru miklir hjá stjómsýslunni, fyrirtækjum og víða annars staðar. En til að fá starfsrétt- indi sem lögmaður eða dómari þarf að ljúka tveggja ára ffamhaldsnámi. Námið til embættisprófs í lögffæði er því fimm ár - þriggja ára B.A.- nám og tveggja ára ffamhaldsnám. Þetta próf jafngildir meistaraprófi í lögffæði. 99Almennu lögfræðinni hefur nú verið skipt upp í þrjár greinar. Á fyrri hluta haustmisseris leggja nemendur stund á inngang að lögfræði og taka próf í þeirri grein um miðjan október. Síðan er tekið próf í hinum greinunum tveimur í desemberU Fjölmargir möguleikar til sérhæfingar og samsetningar náms í ffamhaldsnáminu er hægt að sér- hæfa sig á ýmsan hátt. í fyrsta lagi býðst nemendum nú að velja um 50 kjörgreinar, auk þess sem í boði eru kjörgreinar sem eru kenndar á ensku og hafa þær alþjóðlega skírskotun. Ennfemur er hægt að taka hluta námsins í öðrum háskóladeildum. Lagadeildin hefur í mörg ár viðurkennt nám úr öðrum deildum við Háskóla íslands. Deildin hefúr t.d. skipulagt sérstakt nám í sam- vinnu við viðskipta- og hagfræðideild fyrir þá sem vilja tvinna saman lögfræði og við- skiptaffæði. Einnig geta nemendur tekið námskeið í félagsvísindadeild, heimspekideild og jafnvel í öðrum deildum. Loks eiga nemendur þess kost í ffamhaldsnáminu að stunda nám við háskóla á Norðurlöndum, í Evrópu og einnig í Bandaríkjunum á grundvelli samstarfssamninga Háskóla íslands við háskóla í þess- um löndum. Framhaldsnám við lagadeild hefúr einnig breyst á undanfomum tveimur ámm að því leyti að nú er lögð aukin áhersla á verkefnavinnu og rannsóknatengt nám. Um er að ræða hvort tveggja hópverkefni og einstaklingsverkefni. Almennu lögfræðinni skipt í þrennt Miklar breytingar hafa einnig orðið á náminu á 1. ári í lögffæði. Hingað til hefúr verið tekið próf i almennri lögffæði að loknu eins misseris námi við deildina, þ.e. rétt fyrir jól. Gerðar hafa verið strangar kröfur. Þannig hefur þurft lágmarkseinkunn 7 á prófinu og því margir ekki staðist það. Við ætlum okkur áffam að gera strangar kröfur en fyrirkomulaginu hefur verið breytt. Almennu lögffæðinni hefur nú verið skipt upp í þrjár greinar: Inngang að lögffæði, almenna lögffæði og ágrip af réttar- sögu. Á fyrri hluta haustmisseris leggja nemendur stund á inngang að lögffæði og taka próf í þeirri grein um miðjan október. Síðan er tekið próf í hinum greinunum tveimur i desember. Eins og ég sagði áður eru kröfumar enn miklar og þurfa nemendur að fá 7 í öllum greinunum til þess að geta haldið áffam. Við kennaramir höfum orðið varir við mikla ánægju meðal nemenda með að fá að skipta almennri lögffæði upp með þessum hætti og ætti þetta að auðvelda þeim að komast í gegn- um þann flöskuháls sem fyrsta árið óneitanlega er. Ef nemandi fellur í einni grein af þessum þremur þá þarf hann aðeins að taka upp próf í þeirri grein, en heldur einkunnunum í hinum tveimur. Öllum leyft að spreyta sig Allir sem hafa stúdentapróf eða ígildi þess geta hafið nám við Háskóla íslands en að vísu setja ein-

x

Stúdentablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.