Stúdentablaðið

Árgangur

Stúdentablaðið - 01.10.2002, Blaðsíða 15

Stúdentablaðið - 01.10.2002, Blaðsíða 15
15 Stúdentablaðið 19Sumir, sem einhverra hluta vegna hafa ekki haft mjög góðar eink- unnir í framhaldsskóla, finna sig mjög vel lögfræðinni og fljúga í gegn- um hana. Það má því setja spurningarmerki við það hvort rétt sé að velja menn fyrirfram úr eftir einkunnum á stúdentsprófi46 staka deildir eins og t.d. raunvísinda- deildin skilyrði um stúdentspróf af stærðfræði- eða eðlisfræðibraut. Aðsóknin að laganámi við H.í. sló öll met í ár. Alls hófu nálægt 260 manns nám við deildina og það þrátt fyrir að byrjað væri að kenna lögfræði annars staðar. Við höfum haft þann háttinn á að leyfa öllum sem hafa stúdentspróf að spreyta sig en í Háskólanum í Reykjavík var valin sú leið að velja úr hópnum fyrirfram. Auðvitað er ákveðin fylgni milli góðra einkunna í íramhaldsskólum og ffammistöðu í almennu lögfræðinni en það er þó ekkert einhlítt. Sumir, sem einhverra hluta vegna hafa ekki haft mjög góðar einkunnir í framhaldsskóla, fínna sig mjög vel í þessu námi og fljúga í gegnum það. Það má því setja spumingarmerki við það hvort rétt sé að velja menn úr eftir eink- unnum á stúdentsprófi. Eins og ég nefndi áður hafa verið gerðar mjög strangar kröfur til þeirra sem ljúka lagaprófi frá Háskóla íslands og hafa þeir átt mjög auðvelt með að fá vinnu að námi loknu. Og eftir því sem ég veit best hafa þeir einnig staðið sig mjög vel í ffamhaldsnámi við erlenda háskóla þar sem þeir etja kappi við lögfræðinga ffá öðrum háskólum. Af þessari ástæðu og reyndar með tilliti til þarfa þjóðfélagsins tel ég æskilegt að áffam séu gerðar miklar kröfur til þeirra sem ljúka embættisprófi í lögfræði. Þjónusta við nemendur eykst En fleiri breytingar má nefna varð- andi 1. árið. í haust var farin sú leið að skipta nemendum upp í fjóra hópa. Þeir eru að vísu fjölmennir því að þeir sem hófu nám í haust hafa verið óvenju áhugasamir og sótt tíma vel. Með því að skipta hópnum upp höfum við getað farið dýpra ofan í námsefnið og veitt nemendum betri þjónustu en áður var hægt. Því miður mætti gera betur en þar komum við að fjárskorti sem stendur allri þjónustu við nemendur og kennara fyrir þrifum. Lagadeild fær aðeins 2/3 hluta þeirra tekna sem hún aflar H.í. til eigin nota. Þetta er mjög ósanngjamt því að aðrir skólar sem eru í samkeppni við okkur geta notað allt það fé sem ríkið greiðir þeim vegna lagakennslu óskert til þeirrar kennslu og aflað sér að auki tekna með því að innheimta skólagjöld. Innan þess þrönga fjárliagsramma sem við búum við reynum við hins vegar að gera okkar besta. Nýtt meistaranám á ensku Frá og með haustinu 2003 verður tekið upp samfellt meistaranám á ensku við deildina. Undanfarin ár hefur verið boðið upp á mörg námskeið á ensku fyrir erlenda skiptistúdenta en nú hefur verið ákveðið að stíga skrefíð til fulls og gera þetta að fullgildu meistaranámi. Námið er fyrst og fremst hugsað fyrir erlenda laganema sem lokið hafa tilteknu grunnnámi erlendis og lýkur því með meistaraprófsritgerð. Séu nemendur með meiri undir- búning að baki er sá möguleiki einn- ig fyrir hendi að þeir ljúki meistara- náminu á einu almanaksári, þ.e. standi skil á tilskildum fjölda námskeiða á tveimur misserum og skrifi ritgerðina um sumarið á svipaðan hátt og í Englandi. Þetta nám er fyrst og ffemst hugsað fyrir erlenda laganema sem vilja taka meistarapróf hér á landi. Jafnffamt er það opið erlendum skiptinemum og síðast en ekki síst íslenskum laga- nemum, þ. á m. þeim sem stunda nám til embættisprófs. Þess má geta að nú í haust stunda þó nokkrir af íslenskum nemendum okkar nám við deildina sem fram fer á ensku. Þetta er að mínum dómi mjög góður undirbúningur fyrir þá íslensku laganema sem ætla sér að stunda síðar meir framhaldsnám í lögffæði á erlendri grundu. Gjörbreytt fyrir- komulag á náminu í heild En þetta eru ekki einu nýjungamar sem bryddað hefur verið upp á hér í lagadeild. Það má segja að námið og námstilhögunin hafi gjörbreyst á síðustu árum og þeir sem stunduðu hér nám fyrir einum áratug eða svo, ég tala nú ekki um fyrr á árum, myndu varla þekkja námið fyrir hið sama. En svo virðist sem þessar breytingar hafi farið ffamhjá mörg- um þeim sem starfa úti í þjóð- félaginu og þeir hinir sömu telji að allt sé við það sama, jafnvel er það útbreidd skoðun innan annarra deilda Háskólans að lagadeild standi öðrum deildum að baki hvað varðar náms- tilhögun og kennsluhætti. Ég hef séð marga reka upp stór augu þegar þeir hafa áttað sig á þeim breytingum sem orðið hafa og í vændum eru. Sem dæmi um breytta námstilhögun er að við hefjum nú kennslu í bytjun september og kennum samfleytt í sex vikur. Þá er gert hlé á kennslunni í eina viku sem notuð er til verkefna- vinnu og undirbúnings undir þau próf sem tekin eru á miðju misseri. Að því búnu tekur við kennsla í aðrar sex vikur og aðalpróftímabilið er svo í lok haustmisserisins, þ.e. í des- ember. Fyrirkomulagið verður með sama hætti á vormisseri. Lagaenska og þátt- taka í mál- flutningskeppni metin til eininga Vegna áhuga laganema á að fara utan til náms þá var boðið upp á einnar viku námskeið síðasta vetur þar sem farið var yftr bandarískt lagakerfí og lagamál. Kennarar voru tveir lagaprófessorar ffá Pittsburgháskóla sem haldið hafa slík námskeið víða um heim. Kennslan var mjög markviss og námefnið tiltölulega yfirgripsmikið miðað við hve stuttan tíma námskeiðið stóð. Það var mjög vel sótt bæði af laganemum og starf- andi lögffæðingum. Þeir laganemar, sem sóttu þetta námskeið og luku því með tilskildum árangri, fengu það viðurkennt sem hluta af laganáminu, þ.e. sem eina einingu af þeim 150 sem þeir þurfa minnst að standa skil á til embættisprófs. Þá hafa laganemar um árabil tekið þátt í norrænni málflutnings- keppni sem haldin er til skiptis á Norðurlöndunum. í keppninni er hverju sinni flutt mál þar sem reynir á skýringu á Mannréttindasáttmála Evrópu. Það er mjög lærdómsríkt að taka þátt í keppni sem þessari og í það fer heilmikill tími. Því hefur verið rætt um að fella norrænu keppnina inn í námið og veita viðurkenningu fyrir þátttöku í henni í formi eininga. Á sama hátt er til athugunar að veita sams konar viðrkenningu fyrir þátttöku í alþjóðlegri málflutningskeppni sem haldin er í Bandarikjunum ár hvert. Með þessu móti höfum við smátt og smátt verið að fikra okkur yftr í það að veita einingar fyrir það sem kalla mætti óhefðbundið laganám. Samkeppnisfær við aðrar lagadeildir á Norðurlöndum Við breytingar á tilhögun náms við deildina hefur verið horft til þess sem er að gerast i löndunum um- hverfis okkur, ekki síst í Danmörku. Þar í landi voru fyrir nokkrum árum gerðar breytingar á hinu hefðbundna laganámi, þar sem tekið var upp B.A.próf að loknu þriggja ára grunnnámi. Reynslan þar hefur verið sú að langflestir laganemar halda áfram námi til embættisprófs að loknu B.A.prófí. Við erurn sífellt að bera okkur saman við aðrar lagadeildir á Norðurlöndum og má fúllyrða að lagadeild H.í. er samkeppnisfær við þær deildir þrátt fyrir að þær séu flestar langtum stærri og hafi yfir margföldu fjármagni að ráða. Eins og ég gat um fyrr hefur íslenskum lögfræðíngum og reyndar einnig laganemum gengið vel að fóta sig í námi á erlendri grundu i samanburði við aðra. Vandamál okkar er hins vegar fámennið og bágur fjárhagur. Því kostar það sífellda baráttu að standast jöfnuð við það sem best gerist erlendis. Eitt af því sem hefur skipt miklu máli í því sambandi er að við höfum átt gott samstarf við lagadeildir víðs vegar um heim, ekki hvað síst við lagadeildir Kaupmannahafnarháskóla og Árósaháskóla í Danmörku en Danir standa okkur enn nær en aðrir á þessu sviði, vegna sögunnar og sameiginlegrar lagahefðar. Lagadeild Háskóla íslands - annað og meira en nám Við lagadeild Háskóla íslands er mjög öflugt félagslíf og er félag laganema, Orator eitt virkasta nemendafélagið í Háskólanum. Félagið gefúr út stærsta lagatímaritið hér á landi, Úlfljót og nýtur tímaritið mikillar virðingar meðal lögfræð- inga. Laganemar hafa einnig veitt almenningi ókeypis lögffæðiaðstoð og tekið virkan þátt í evrópsku sam- starfi laganema. Það má því segja að félagslíf nemenda sé ein af traustustu stoðum deildarinnar.

x

Stúdentablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.