Stúdentablaðið - 01.10.2002, Page 16
16
Stúdenf|blaðið
Sjálfstæðis-
flokknum er
best treystandi
fyrir mennta-
málum
Tómas Ingi Olrich
menntamálaráðherra gaf
sér tíma til að ræða við
EGGERT ÞÓR AÐAL-
STEINSSON um mennta-
mál og stjórnmál í miðju
amstri kosningavetrar.
Tómas Ingi hefur setið á stóli
menntamálaráðherra í rúmt
hálft ár og átt sæti á þingi
síðan árið 1991. Hann ætlar sér
sjálfur stóra hluti og stefnir á 2. sætið
á lista sjálfstæðismanna í Norð-
austurkjördæminu.
Göngum til
kosninga með
óbundnar hendur
Um hvaða málefni verður rætt um á
kosningavetri?
„Ég held að það sé erfitt að sjá fyrir
hvemig umræðan þróast eftir að hún
fer í gang en ég hygg að mikið verði
rætt um byggðamál og vonandi í
meira mæli í tengslum við menntun
og menningu. Það má velta vöngum
yfir því að hvort það verði einhver
umræða að ráði um um sjávarútvegs-
mál. Hins vegar hef ég ekki til-
finningu fyrir því að umræðan um
Evrópusambandið verði fyrirferða-
mikil.“
Hvaða sæti sækist þú eftir á lista
Sjálfstœðisflokksins í Norðaustur-
kjördæmi? Er ekki eðlilegt að
ráðherra skipi 1. sœti?
„Það er eðlilegt að þeir þingmenn
sem njóta mests trausts til
ábyrgðarstarfa fyrir flokkinn skipi
efstu sætin á framboðslistanum.
Æskilegt er að stuðningsmenn Sjálf-
stæðisflokksins hafi sem mest um
það að segja hvemig listinn er
skipaður hveiju sinni og því hef ég
verið þeirrar skoðunar að prófkjör sé
oftast heppilegasta aðferðin til að
velja á lista. Ég væri ekki þar sem ég
er nú ef ég hefði ekki gengið í gegn-
um prófkjör. Samstarf þingmanna
Sjálfstæðisflokksins í nýja kjör-
dæminu hefur verið gott.
Menntamálaráðherra starfar jafnt
fyrir alla landsmenn og í samræmi
við það hef ég litið til hagsmuna
Austurlands ekki síður en
Norðurlands. Nú hefur verið ákveðið
að stilla upp framboðslista í
Norðausturkjördæmi en það á eftir
að koma í ljós hvort það var heppi-
legasta aðferðin að þessu sinni.“
Ef Sjálfstœðisflokkurinn fær umboð
til stjórnarmyndunar eftir kosningar
nœsta vor myndirðu vilja sjá Fram-
sóknarflokkinn sem samstarfsaðila?
„Samstarf flokkanna hefur gengið
með ágætum. Ég tel hins vegar
eðlilegt að gengið verði til kosninga
með óbundnar hendur að því er
varðar framhaldið.“
Samfylkingin er
ótrúverðugur sam-
starfskostur
Er Samfylkingin raunhœfur
stjórnarflokkur með Sjálfstæðis-
flokknum?
„Samfylkingin er sinnar eigin gæfu
smiður. Hingað til hefur henni ekki
gengið vel að fylla upp í þann stakk,
sem hún sneið þegar flokkurinn var
stofhaður. Hún hefúr spillt fyrir sér
með ótrúverðugum málflutningi, t.d.
í sjávarútvegsmálum, efna-
hagsmálum og utanrikismálum. Ef
Samfylkingin nær að skapa sér
meira traust og tiltrú kann hún að
verða álitlegri samstarfskostur en
hún er nú um stundir."
Myndir þú telja að Sjálf-
stœðisflokknum sé betur treystandi
fyrir málaflokknum menntamálum en
öðrum flokkum?
„Já, það tel ég tvímælalaust. Það
hefur verið mikil gerjun í mennta-
málum að frumkvæði mennta-
málaráðherra og mikið gerst í þeim
málum. í tíð vinstri stjómar, áður en
Sjálfstæðisflokkurinn tók við
menntamálaráðuneytinu, var gerður
svokallaður „tímamótasamningur"
við kennara. Blekið var varla þomað
á þeim samningi, þegar hann var
svikinn af ríkisstjóm vinstri manna.
Nú hefur ríkið gert mikilvægan
samning við kennarastéttina, sem
tryggt hefur kennurum miklar og
tímabærar kjarabætur. Ömgg stjóm
efnahagsmála, jafnvægi í efna-
hagsmálum og tiltrú á stjórn
þjóðmála hefur leitt til þess að
atvinnulífíð sækist eftir vel mennt-
uðu starfsfólki og hefur stóraukið
fjárfestingu í þekkingu, í vísindum
og rannsóknum. Hið opinbera og
atvinnulífið hafa því tekið höndum
saman um að styrkja íslenskt efna-
hagslíf með því að efla menntun,
vísindi og rannsóknir. Þetta er ein af
meginforsendum þess að kjör
íslendinga hafa hafa batnað langt
umfram það sem gerst hefur hjá
nágrannaþjóðum okkar og þeim, sem
við berum okkur saman við.“
Telur þú að ESB sé nægilega sterkt
afl til að vera leiðandi aðili í
alþjóðamálum ?
„ESB hefur ekki gengið vel að hasla
sér völl sem leiðandi afl í
alþjóðamálum. Þar hefur fremur
borið á einstökum aðildaríkjum en
sambandinu sjálfu. í raun er stjóm-
kerfi sambandsins
þunglamalegt og svifaseint, og
verður sennilega ekki gert virkara
nema með fómum og á kostnað
hinna smærri aðildaríkja sam-
bandsins. í öryggis- og vamarmálum
hefur sambandið ekki komið fram
sem sterkur aðili út að við á
alþjóðavettvangi.“
Er hœtta á að ísland muni einangr-
ast ef það sœkir ekki um inngöngu i
bandalagið?
„ísland er í nánari tengslum við
umheiminn en nokkm sinni áður í
sögu þjóðarinnar. Allt tal um
einangrun styðst ekki við raun-
vemleikann. Það er brýnt að halda
nánu samstarfí við Evrópu-
sambandið og ríki álfunnar en hafa
frjálsar hendur um að þróa samstarf
okkar og viðskipti við önnur lönd á
okkar eigin forsendum.“
Hvernig metur ráðherra stöðuna i
íraksmálinu og hvaða líkur telur
hann á þvi að ráðist verði á stjórn
Husseins?
„Það er því miður mjög líklegt að
stefha íraksstjómarinnar og
þrotlaus viðleitni hennar til
að koma sér upp gjör-
eyðingarvopnum, m.a.
kjarnorkuvopnum, muni
leiða til átaka á þessu
svæði sem hefur svo
mikla efnahagslega
þýðingu fyrir öll hagkerfi
heimsins."
Ef varnarliðið fer á brott
hvernig eiga íslendingar að
haga landvörnum sínum?
„Öryggismál íslendinga eru
reist á þremur stoðum: í fyrsta
lagi hagsmunum íslendinga af
þvi að hafa hér vamarstöð.
Önnur stoðin eru hagsmunir
551 tíð vinstri stjórnar-
innar var gerður
svokallaður „tímamóta-
samningur" við kennara.
Blekið var varla þornað á
honum þegar hann var
svikinnU