Stúdentablaðið

Árgangur

Stúdentablaðið - 01.10.2002, Síða 17

Stúdentablaðið - 01.10.2002, Síða 17
17 }}Samfylkingin spillir fyrir með ótrúverðugum málflutningi í sjá- varútvegs-, efna- hags- og utan- ríkismálum44 99Stjórnkerfi ESB er þung- lamalegt og verður varla virk- ara nema með fórnum smærri aðildaríkja44 99Mál Þorfinns Ómarssonar snerist um lang- varandi bók- haldsóreiðu og vanrækslu í bókhaldi44 59 Ég hef ekki sett fram kröfur heldur viðrað að íslenskur menn- ingararfur verði varðveittur á Íslandi44 99Sjálfstæðis- flokkurinn vill að RÚV verði gert að hlutafélagi en Framskóknar- flokkurinn er því andvígur44 Bandaríkjanna að hafa hér vamarviðbúnað vegna þeirra eigin öryggismála og í þriðja lagi eru það hagsmunir Atlants- hafsbandalagsins að vamarliðið sé hér sem nauðsynlegur hlekkur í vamarkeðju NATÓ. Engin af þess- um þremur stoðum gefur tilefni til vangaveltna af því tagi sem í Æ spumingunni felast.“ Tók rétt á málefnum Þorfinns Telur þú rétt að taka hart á opin- berum starfsmönnum sem halda ekki vel utan um opinbert fé? ■ Tókstu rétta ákvörðun þegar þú vékst Þorftnni tímabundið frá ■H störfum? „Mál framkvæmdastjóra Kvik- myndasjóðs snerist um lang- HHHI varandi bókhaldsóreiðu og van- rækslu í meðferð og skilum á bókhaldsgögnum. Á slíkum málum er rétt og skylt að taka. Ég tel að ég hafí farið að mjög skýmm ákvæðum laga þegar ég vék honum úr starfi um stundarsakir. Lögskipuð nefnd taldi að bókhaldsóreiðan hafi ekki verið „nægilega mikil“ til að réttlæta brottvikningu. Þessi niðurstaða kom mjög á óvart og hún skapar mikla óvissu um hvernig stjórnendur í stjómsýslunni geta veitt nauðsynlegt aðhald í meðferð opinbers fjár.“ Hvaða rétt höfum við til að setja fram kröfur á Dani um skil á menningararfi? „Ég hef ekki sett fram kröfur af hálfu íslendinga, og því síður byggt málflutning minn á einhvers konar rétti. Ég hef haldið til haga því sjónarmiði Islendinga að íslenskur menningararfur verði varðveittur á íslandi. Ég hef lagt fram tillögu um stofnun íslensk-danskrar menn- ingarstofnunar sem staðsett yrði á íslandi og hýsti þessa muni og komið fram með þá hugmynd að efla samstarf og tengsl þjóðanna. Allt er þetta gert i þeim anda góðrar samvinnu, vináttu og bræðralags, sem einkennt hefur samstarf þjóð- anna.“ Hvað er að frétta af menningar- húsunum á landsbyggðinni? „Það liggur fyrir ákvörðun ríkis- stjómarinnar að ráðast í byggingu menningarhúsa. Þau mál em lengst komin á Austurlandi og þar er tjár- festing í húsinu hafín. Ég mun beita mér fyrir því að ganga frá skilgreind- um áfangamarkmiðum á þeim svæðum sem lengst eru frá höfuðborgarsvæðinu, þ.e. á Akureyri og Vestfjörðum. Vonir standa til að hægt verði að ganga frá samningum vegna uppbyggingu menningarhúsa á þessum svæðum á næstu mánuðum.“ RÚV á að velja hæfasta starfsfólkið Hvaða líkur eru á því að rekstrar- formi RÚV verði breytt í hlutafélag á nœstu árum? Það er ljóst að í núverandi stjórnarsamstarfí er Sjálfstæðis- flokkurinn fylgjandi því að RÚV verði gert að hlutafélagi í eigu rík- isins en Framskóknarflokkurinn er andvígur því. Það verður sem sagt að koma í ljós hvort okkur takist að auka fylgi við sjónarmið Sjálfstæðisflokksins. Af hverju er svona mikil tregða að breyta stjórnarháttum í Efstaleiti? „RÚV er gróin stofnun og lagafyrir- mæli um skipulag stofnunarinnar eru óþarflega nákvæm og þar eru ákvæði sem að mínu mati eiga alls ekki heima í lögum. Þess vegna tel ég að hlutafélag í eigu ríkisins gæfi RÚV tækifæri til að aðlaga sig betur nú- tíma aðstæðum og efla starfsemi sína.“ Nú stendur oft styrr um manna- ráðningar innan RÚV. Finnst þér eðlilegt að menn sem eru fulltrúar stjórnmálafiokka í sveitarstjórnum eða trúnaðarstörfum séu ráðnir sem þáttastjórnendur Itjá RÚV? „Hlutleysi í fréttaflutningi og dagskrárgerð er afar mikilvægt og hafa verið uppi skiptar skoðanir um hvemig til hefur tekist hjá RÚV. Almennt fínnst mér mestu máli skipta að hæfustu einstaklingamir séu ráðnir til hvers starfs hvort sem um er að ræða þáttastjómun eða önnur störf. Hins vegar verður að gera kröfú til allra starfsmanna RÚV að þeir gæti hlutleysis í fréttum, efnistökum og vali á viðmælendum í þætti svo dæmi sé tekið." Kennaraforystan var á móti Áslandsskóla Iivernig finnst þér að meirihlutinn í Hafnarfirði hafa tekið á málefnum Áslandsskóla? „í kosningabaráttunni fyrir síðustu sveitarstjórnarkosningar lýsti for- ystumaður Samfylkingarinnar og núverandi bæjarstjóri Hafharfjarðar, Lúðvík Geirsson, því yfír að samn- ingi Hafnarijarðarbæjar og íslensku menntasamtakanna yrði sagt upp ef Samfylkingin kæmist til valda. Ég get ekki betur séð en að Samfylkingin hafí alltaf verið á móti þessari tilraun og hafí í málinu litið framhjá hagsmunum bama, foreldra og þróun skólastarfs í landinu." Voru kennarar og kennaraforystan ekki tilbúin að taka þátt í til- rauninni? „Ég tel að kennarar almennt séu jákvæðir í garð hvers kyns tilrauna og þróunarstarfs í skólamálum. Það hefur margoft sýnt sig - t.d. varðandi innleiðingu upplýsingatækninnar í skólastarf. Hins vegar hefur komið fram opinberlaga að kennaraforystan var á móti þessari tilraun sem mér fínnst satt að segja umhugsunarefni.“ Má ekki letja nemendur til vinnu Hvert er meginhlutverk Lánasjóðs íslenskra námsmanna að þínu mati? „Ég er í stórum dráttum sammála því meginhlutverki sem kveðið er á í lögum en þar er að meginatriðið að tryggja tækifæri til náms án tillits til efnahags. Þó nokkrar breytingar voru gerðar á úthlutunarreglum námslánanna á þessu ári. Tekjutenging maka var afnumin og grunnframfærsian hækkuð um 8,7%.“ ILvað verður skoðað sem næstu skref í því að bæta lánasjóðskerfið, fritekjumark, skerðingarhlutfall eða grunnframfœrsla ? „Allir þessir þættir þurfa að vera til skoðunar þegar næstu skref verða tekin. Næstu skref fela væntanlega í sér fleiri en einn af þessum þáttum og geta fulltrúar stúdenta væntanlega haft sín áhrif á hvemig forgangs- röðunin verður. Ég tel reyndar mikil- vægt að úthlutunarreglumar letji stúdenta ekki til vinnu." Margir eiga erfitt með að framfleyta sér á 75.500 krónum á mánuði. Telur þú að það sé nógu há upphœð? „Við útreikning á grunnframfærslu er gengið út frá því að einhleypur námsmaður í leiguhúsnæði á íslandi hafí um 1.280.000 kr. til ráðstöfunar ef ég man rétt. Þessi tala endur- speglar að það er talið eðlilegt að taka tillit til tekna námsmanna og horfa þannig ekki einungis á láns- fjárhæðina.“ Hvernig metur þú framtíð HÍ? Eru undirstöður hans það traustar að hann geti keppt við innlendar og erlendar háskólastofnanir? „Háskóli íslands hefur að mínu mati sterka stöðu bæði hér innanlands og einnig í samanburði við erlendar háskólastofnanir. Að sjálfsögðu er ekki gefíð að sú staða haldist óbreytt um ókomna framtíð. Háskólinn verður eins og allar aðrar mennta- stofnanir að vera í stöðugu þróunar- og umbótastarfí til að standast samkeppnina. Það er fyrst og ffemst í höndum skólayfírvalda hvemig til tekst.“ Hvernig líst þér á þau markmið Háskólans sem sett voru á dögunum fyrir árin 2002-2005? „Mér fínnst mjög mikilsvert að Háskólinn hafí framtíðarsýn og kynni hana. Hún varpar ljósi á stöðu hans og þá umræðu sem fer fram innan veggja hans.“ Náttúrufræðihúsið í notkun að hluta 2003 Er raunhæft að Náttúrufrœðihúsið verði tilbúið á nœsta ári? I frum- varpi tilJjárlaga er gert ráð fyrirþvi að Náttúrufrœðihúsi verði ekki lokið fyrr en árið 2004 en ekki árið 2003 eins ogfyrri áœtlanir segja til um. Er ásœttanlegt að stúdentar og aðrir aðilar biði lengur eftir þessu húsi? „í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2003 kemur fram að samkvæmt endurskoðaðri framkvæmdaáætlun skólans og aðhaldi sem gætt er í ríkisútgjöldum ljúki ffamkvæmdinni ekki að fullu árið 2003. Það er stefnt að því að húsið verði að hluta tekið í notkun 2003 án þess þó að ég geti sagt fyrir um að hvað miklu leyti.“ Hvað finnst þér um hugmyndir SHÍ að fyrirtœki sem leggi framlag til rannsóknarstarfs innan Háskólans fái einhvers konar skattaafslátt? „Það sem er mikilsverðast í þessu sambandi er það að fyrirtækin sjái sér beinan hag í því að fjárfesta í rannsóknum og vísindum og hefúr það verið að gerast á íslandi á undan- fomum ámm. Það er mjög mikilvægt að fyrirtækin sjái sér beinan efna- hagslegan hag í því að fjárfesta í vísindum fremur en að búa til sérstakan skattalegan hag af þvi.“ / kennslusamningi fyrir 2002 var gert ráð fyrir því að Háskóli íslands fengi fjárveitingu vegna 4300 virkra nemenda þó að þeir liafi verið 4500 sem hefur valdið töluverðum erfiðleikum í rekstri skólans á árinu. Er fyrirhugað að tryggja skólanum fjárveitingu vegna allra virkra nemenda fyrir árið 2002? „Þó að formlegir samningar séu ekki hafhir sem þó verður um miðjan þennan mánuð hefúr ráðuneytið gert ráð fyrir að ársnemendum fjölgi um 200 umfram ákvæði núgildandi samnings auk þess sem áætlað er fyrir um 66 milljónir til viðhalds- framkvæmda umffam ákvæði samn- ingsins. Ráðuneytið gerir hins vegar ráð fyrir að nýr samningur verði undirritaður íyrir árslok.“ Hvaða nýjungar sérðu fyrir þér í menntamálum? „Ég sé fyrir mér ffekari uppbyggingu innan Háskólans og innan framhaldsskólanna. Það sem mun einkenna þessa þróun er sveigjan- leiki og fjölbreyttari valkostir fyrir nemendur sem geta þá sótt námskeið til annarra skóla en þeir eru skráðir í. Ég hygg að samkeppni milli skól- anna muni vaxa og það er ákjósan- legt. Menn munu bera saman próf- gráður ffá mismunandi skólum og reyna að vega og meta í því sam- hengi gæði menntunnar sem boðið er upp á í skólunum. Ég tel einnig að samkeppnin muni draga fram nýj- ungar í skólastarfinu og skólamir marki sér sérstöðu og tryggi gæði í þjónustu við nemendur. Sú áhersla sem ríkisstjómin hefur lagt að færa stefhumörkun í rannsóknum og vísindum upp á ríkisstjórnarstig og gefa þessum málaflokkum sérstakan sess leiðir til þess að sú þróun að tengja saman atvinnulífið og vísindastarfið á eftir skapa enn frekari hagvöxt." Þar áður var hann aðstoðarrektor og kennari við MA.

x

Stúdentablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.