Stúdentablaðið

Volume

Stúdentablaðið - 01.10.2002, Page 20

Stúdentablaðið - 01.10.2002, Page 20
þeirra sögn kviknaði hugmyndin að sögunni fyrir hartnær tíu árum. Myndin segir frá Bandaríkjamanni að nafni Simon (Keith Carradine) sem á í töluverðri lífskreppu og kemur til íslands að því er virðist til að hugsa sinn gang eilítið, en jafnvel í nokkuð róttækari tilgangi. Hann á ættir sínar að rekja hingað til lands og hefur meðal annars upp á íslenskum frænda sínum (Magnúsi Ólafssyni) í þorpi einu úti á landi. Hin óvænta heim- sókn Simons gleður frændann mjög en það sama verður ekki sagt um þorpslögguna Jóhann (Ingvar E. Sigurðsson) sem virðist hafa allt á homum sér. Simon kynnist hinni dularfullu Dúu (Margréti Vilhjálmsdóttur) sem fóstrað hefúr fálka nokkum, en ákveðin atburða- Fát í flugi Fálkar Friðrik Þór Friðriksson leikstýrði. íslenska kvikmyndasamsteypan ehf., Peter Rommel Productions, Filmhuset AS, Noregi og Film & Music Entertainment, Bretlandi í samstarfi við Invicta Capital Ltd., Bretlandi & ZDF/Arte, Þýskalandi framleiddu ísl- enska kvikmyndasamsteypan ehf. 2002 í lok september var kvikmyndin Fálkar, nýjasta mynd Friðriks Þórs Friðrikssonar, frumsýnd í Sambíóunum og Háskólabíói. Handritið skrifaði Friðrik í félagi við rithöfundinn Einar Kárason en að rás veldur því að þau flýja land og enda í Þýskalandi - með fálkann í far- teskinu - en þar lenda þau í ýmsum hremmingum. Það má segja að myn- din skiptist í tvennt; annars vegar það sem gerist á íslan- di og hins vegar það sem gerist í Þýskalandi. Fyrri hlutinn lofar nokkuð góðu og sterkur leikur Carradine er ekki til að skemma fyrir, en það verður því miður að segjast að myndin missir dampinn þegar á líður. Ófáar klisjur amerískra spennumynda fara að birt- ast og það skín óneitanlega í gegn að myndin er framleidd fyrir erlendan markað. Spennan sem reynt er að byggja upp finnst mér aldrei skila sér og má kannski segja að myndin komist aldrei á almennilegt flug. Það er ýmislegt jákvætt hægt að segja um Fálka. Leikurinn er góður, og þá sérstaklega hjá Carradine, og hvað leikstjóm og kvikmyndatöku varðar era greinilega fagmenn að verki. Akkilesarhæll myndarinnar er hins vegar handritið og hún líður - skiljanlega - mikið fyrir það. Væntingar undirritaðs voru þó nokkrar eflir að hafa kolfallið fyrir síðustu mynd Friðriks, Englum alheimsins, en fálkamir ná aldrei hæðum englanna. Kristján Hrafn Guðmundsson Sammann- legt siðferði Mannkostir Kristján Kristjánsson Háskólaútgáfan 2002 Listaverð: 3.690 kr. í haust gaf Háskólaútgáfan út nýtt ritgerðasafn eftir heimspeki- doktorinn Kristján Kristjánsson sem ber heitið Mannkostir. Þetta er þriðja verkið af þessu tagi sem kemur út eftír ffæðimanninn en hann hefúr áður sent frá sér bækumar Þroskakostir (1992) og Af tvennu illu (1997). í fyrri bókum Kristjáns hefúr eðli mannsins verið efst á baugi og heldur hann áfram á svipuðum nótum í Mannkostum. Nýja verkið inniheldur fimmtán rit- gerðir sem flestar tengjast siðfræðis- legu efhi á einhvem hátt. Kristján tekur á hinum ýmsu málefnum og skoðar út frá heimspekilegu sjó- narhomi og má þar nefna kennslu- og uppeldisfræði, heilbrigðismál, bókmenntir og listir. Síðast en ekki síst gerir Kristján grein fyrir afstöðu sinni til póstmódemismans og vega þær hugleiðingar óneitanlega þyngst í heildarverkinu. Þrátt fyrir að ritgerðimar taki á ólíkum málefnum eru viss samkenni sem binda ritgerðimar saman og gefa verkinu ákveðinn heildarsvip. Hin svokallaða siðferð- islega veraldarhyggja er rauði þráðurinn í gegnum bókina eins og Kristján minnist á í inngangi hennar. í ritgerðunum reynir höfundur að færa rök fyrir því að til sé eitthvert sammannlegt siðferði og notar hann hin ýmsu svið til að styðja mál sitt. Lesandinn verður var við ákveðinn blæbrigðamun þegar líða fer á verkið. Fyrstu ritgerðimar inni- halda fræðilegar athuganir á hinum og þessum málefnum undir siðfræðilegum formerkjum. Um- fjöllunin er laus við harða gagnrýni til aó byija með og er öll fremur þægileg. Þar ber að nefna ritgerðina „Þjóðsögumar og manneðlið“ þar sem er að finna skemmtilegar vangaveltur um siðfræðilegt gildi þjóðsagna. Sama má segja um rit- gerðina „Fjársjóður fordómanna" en þar færir höfundurinn rök fyrir því að fordóma mætti nota sem kennsluffæðilegt vopn! En smám saman breytist tónninn í rit- gerðunum og verður gagnrýnin í þeim heldur hvassari. Þetta nær hámarki í kjölfar ritgerðinnar „Tíðarandi í aldalok" þar sem höfundur gerir grein fyrir andófi sínu gegn póstmódemismanum og sparar ekki stóru orðin. Þessari rit- gerð fylgja harðar ritdeilur sem fjöragt er að fylgjast með þar sem Kristján kemst í kast við fjölmarga þekkta menn úr íslensku menningar- lífi. Kristján hefur unnið sér inn orðspor fyrir rökfestu og hér sem fyrr dregur hann ekkert undan. Kristján er mjög mælskur og kann að koma fyrir sig orði og endur- speglast það í stíl bókarinnar sem er í senn kröftugur, skemmtilegur og ögrandi og heldur lesandanum við efnið. Mannkostir er prýðislesning og hefur að geyma margar áhugaverðar og fræðandi hugleið- ingar um málefni sem eiga erindi til allra. Þormóður Dagsson Listmunauppboð nr. 18 Á Radison SAS, Hótel Sögu Listmunauppboð era haldin annað veifið á íslandi og eitt þeirra var haldið á vegum Listmunasölunnar Foldar á Hótel Sögu sunnudaginn 22. september s.l. Uppboð þessi vekja auðvitað alltaf nokkra athygli, enda eiga þá listaverkaunnendur þess kost að kaupa verk nýju og gömlu snillinganna á reyfara- kaupum. Það var þó ekki laust víð að greinarhöfundur, óharðnaður há- skólanemi, sem getur varla greint á milli verka Errós og Þorvaldar Skúlasonar, hafi mætt á staðinn án þess að gera sér grein fyrir því hvort það væri kvíði eða spenna sem olli þessum seyðingi í maganum. í besta falli kæmi ég aftur út jafn fátækur í andans og veraldlegri list og ég var fyrir sýninguna - kannski öllu fróðari hvemig svona uppboð fara fram. í versta falli færi ég heim stjarfur með 800.000 kr. Kjarvals-málverk undir höndunum og velti því fyrir mér hvemig plata mætti bankann til þess að semja um lán. Uppboðið hófst á slaginu 19:00 og þar sem að 161 verk beið þess að vera boðið upp sagði Tryggvi Friðriksson uppbjóðandi, að hann yrði að hafa hraðar hendur á. Svo hófust hamarshöggin og ffamm- íköllin. Fyrst í uppboðsskránni var grafíkverk eftir Baltasar sem fór á 7.000 en matsverð var nærri fjórfalt hærra. „Aha,“ hugsaði ég með mér. „Kannski að maður geti gert góð kaup.“ Svona gekk þetta, upphæð við hamarshögg var í flestum tilvikum hvergi nærri matsverði og oftar en ekki aðeins helmingur af uppsettum prís. Málverka- folsunarmál hafa skilið listverka- markaðinn í miklum lægðum. Tryggvi bauð upp stúlkumynd eftir Jón Engilberts og fékk hæsta tilboð sem var mörgum þúsundköllum frá matsverði. „Þetta er ekkert verð fyrir þessa mynd,“ sagði hann alvar- legur í bragði. Þá kom mynd sem mig lang- aði í: Olíumálverk eftir Tolla sem nefnist Morgunn. Myndin seldist eins og önnur verk á verði sem var undir „markaðsvirði" en þegar á hólminn kom gugnaði ég og sagði ekki neitt. Ætli að maður verði ekki frekar að huga óvæntum útgjöldum eins og dekkjaskiptum fyrir veturinn eða jafnvel kuldaskóm á bamið? Fyrst maður hafði ekki þor í að taka þátt í atganginum var allt eins hægt að sitja á rólegur og fylgj- ast með þegar vcrk gömlu meist- aranna rannu í gegn. Kjarval, Jón Stefánsson, Scheving, Lousia Matthíasdóttir o.fl. voru slegin nýjum eigendum sem og síðasta verkið, Sólarlag í Reykjavík, eftir Ásgrím Jónsson. Það er vonandi að myndlistarmarkaðurinn sjái fram á tíma þannig að þeir sem og keyptu hafi gert góð ip. En sjálft uppboðið var skemmtilegt og fróðlegt. Eggert Þór Aðalsteinsson

x

Stúdentablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.