Stúdentablaðið - 01.10.2002, Side 23
búin um hádegi. Síðan fer ég og
athuga tölvupóstinn til að sjá hvort
að fólkið heima elski mig ennþá.
Síðan tekur við annað hvort
matarinnkaup eða lærdómur. Við
notum oft ffítímann til að labba um
bæinn og förum líka oft í sund.
Gufubaðið er í uppáhaldi hjá mér en
heitu pottamir eru líka góðir. Það er
mjög gott að fara í sund héma því
það er ekki jafn mikið af klór i sund-
laugunum hér og heima. Á kvöldin
hef ég verið að pijóna sem ég lærði
að gera í Nýja-Sjálandi en hér á
Gamla garði em mörg okkar farin að
prjóna, jafnvel strákamir. Eg er búin
með 2 húfúr og er núna að prjóna
vettlinga auk þess sem ég hef verið
að hjálpa hinum með pijónið sitt.
Það er auðvitað ósköp misjafnt hvað
fólk er að gera héma á kvöldin.
Margir lesa bara á kvöldin, svo er
það alltaf bjórdrykkja og stundum
spilum við eða horfúm á sjónvarpið.
Síðan förum auðvitað oft út að
skemmta okkur saman, djömmum
um helgar og lærum á virkum
dögum. Við emm í rauninni ekkert
öðruvísi, komum bara ffá öðru landi.
Nú býrð þú eins og svo margir
erlendir nemar á Gamla garði,
hvemig er að búa þar?
Það er gott að búa á Gamla garði. Ég
viðurkenni að fyrst vildi ég ekki búa
með hinum erlendu stúdentunum
heldur langaði mig að búa í ibúð
með íslenskum krökkum. Ég er samt
sem áður ánægð að búa hér. Hér er
ég nálægt miðbænum, nálægt
skólanum og bý með fullt af góðu
fólki. Við emm auðvitað öll að upp-
lifa sömu hlutina; pirringinn yfir að
skilja ekki islenskuna, hvað allt er
dýrt héma og margt fleira. Þetta að
við séum öll að gera hlutina hér í
fyrsta skipti er gott að sumu leyti en
slæmt að öðm, sérstaklega þar sem
ekkert okkar veit meira en hinn,
nema kannski garðsprófasturinn sem
þarf að þola endalausar spumingar
ffá okkur. En þetta gengur vel og
okkur kemur vel saman enda emm
við öll að leita að því sama, það er að
fá að upplifa ísland - hið raunvem-
lega ísland.
albertin@hi.is
990kkur á Gamla garði kemur vel saman enda erum við
öll að leita að því sama, það er að fá að upplifa ísland -
hið raunverulega (slandíí
Sterklegir
kjálkar
En hvernig finnst þér
Íslendingarnir vera?
„Mjög hlédrægir! Þegar ég
kom héma fyrst þá fannst
mér fólk eiginlega vera hálf
dónalegt. Hins vegar þegar
ég fór að kynnast fólkinu
héma komst ég að því að
þið emð allt öðmvísi, miklu
opnari en þið virðist vera
við fyrst sýn. í Kanada
emm við dugleg við að
hlæja að sjálfum okkur og
tölum mikið um veðrið. En
fólk hér á íslandi heldur
ömgglega að ég sé eitthvað
klikkuð út af því að ég er
alltaf brosandi og veifandi
eins og ég er vön heima, en
það er bara ég, stelpan sem
brosir og veifar. íslensku
strákamir em líka virkilega
flottir. Hvemig er hægt að
mislíka ljóshærða, blá-
eygða, flotta stráka með
sterklega kjálka? Hins
vegar hef ég ekki kynnst
neinum íslenskum strákum
persónulega þannig að ég
veit í rauninni lítið annað
um þá en það að þeir líta vel
út.“
Hvað með skemmtanalífið í
Reykjavik? Við íslendingar
hreykjum okkur af því að
eiga merkilegt skemmtanalíf i
borginni okkar, hefurðu eitthvað
kynnst því?
Já, það er gaman að skemmta sér í
Reykjavík en í Kanada loka allir
barir og skemmtistaðir klukkan 2
þannig að ég á oft erfitt með að halda
mér vakandi þangað til að fólk fer út
hér í Reykjavík, en ég er að læra á
þetta. Til dæmis veit ég að hér ferðu
ekki út klukkan 22 á kvöldin út af því
að þá er enginn úti. Annað sem er
ólíkt frá Kanada er að fólk hér klæðir
sig meira upp og næturlífið á
götunum er meira en heima þar sem
fólk er meira inn á bömnum eða
skemmtistöðum.
Heima er líka meira „Cat
Calling" sem ég hef ekki heyrt hér.
Fólk hér virðist líka vera dmkknara
en ég er reyndar ekki viss um að svo
sé í raun og veru. Eitt sem kom mér
líka mjög á óvart var að hér sést fólk
æla út á götu eða að pissa í næsta
mnna, þetta sést ekki heima en þetta
var eitt af því sem ég sá fyrsta
kvöldið sem ég fór að djamma í
Reykjavík. Þið drekkið líka öðmvísi.
Ég sakna einmitt kanadíska bjórsins,
ykkar bjór er ekki jafn góður og hann
er líka veikari en okkar bjór í
Kanada. Það er reyndar hægt að
kaupa eina tegund af kanadískum
bjór hér, Moosehead sem er ágætur.
Við Kanadabúar emm mjög stolt af
bjórnum okkar og erum miklir
bjórdrykkjumenn. Hins vegar er
súkkulaðið ykkar mjög gott, betra en
heirna."
Nú verð ég að spyrja þig um eitt,
hvað er „ Cat Calling "?
„Við notum þetta orð yfir það til
dæmis að blístra á eftir manneskju
sem labbar framhjá þér á bamum eða
kalla „Hæ, sæta eða sæti,” á eftir ein-
hverjum. Ég hef ekkert orðið vör við
þetta hér.“
Nú hafa Islendingar sumir kannski
svolítið staðlaða mynd af erlendum
nemum, til dœmis hef ég heyrt að þið
skiptist í tvo hópa: Þá sem koma
bara til að lœra og þá sem koma
bara til að djamma. Hvorum hópnum
mundir þú segja að þú tilheyrðir?
„Ég er virkilega að reyna að tilheyra
báðum hópunum. Ég er að vonast til
að verða kennari þegar ég er búin í
námi og mín reynsla sem manneskja
er alveg jafn mikilvæg eins og
skólalærdómurinn þannig að ég er að
reyna að kynnast íslensku menn-
ingunni og djamma smá. Það er líka
gaman að fá að kynnast hinum erl-
endu nemunum og þeirra löndum og
menningum. Það er líka öðruvísi
reynsla fyrir mig sem krakkamir sem
em bara í Kanada öðlast ekki. Það
lítur vel út að hafa öðlast á þennan
hátt ákveðna víðsýni. Ég held reynd-
ar að flestir í mínum sporum hér séu
sama sinnis, séu að reyna bæði að
læra og djamma.“
Allir að prjóna
Hvernig er þessi dœmigerði dagur
hjá þér?
Ósköp svipaður og hjá öðrum held
ég. Ég vakna, fæ mér múslí og
jógúrt, út af því að mjólkurvörur hér
em frábærar. Ég er bara í tímum
snemma á morgnana og er yfirleitt
99Ég sakna kanadíska
bjórsins, ykkar bjór er
ekki jafn góður og
hann er líka veikari en
sá kandíski44
^^Hvernig er hægt að
mislíka Ijóshærða,
bláeygða, flotta stráka
með sterklega
kjálka?46
55Í Kanada loka allir
barir og skemmtistaðir
klukkan 2 þannig að ég
á oft erfitt með að
halda mér vakandi?66