Stúdentablaðið

Volume

Stúdentablaðið - 01.10.2002, Page 25

Stúdentablaðið - 01.10.2002, Page 25
Náttúrufræðihús í uppnámi? Stjóm SHÍ lýsti yfir miklum von- brigðum sínum á fundi þann 10. október sl. að í fjárlagafrumvarpi ársins 2003 skuli ekki vera veitt nægjanlegu fjármagni til þess að ljúka við byggingu náttúmffæðihúss í Vatnsmýrinni. í ályktun ráðsins, sem send var til ráðherra og alþingismanna, segir að skv. ffum- varpinu verði smíði hússins ekki lokið fyrr árið 2004 eða 8 áram eftir að bygging þess hófst. Forsvarsmenn Háskólans höfðu sagt að þeir myndu afhenda húsið til notkunar 23. ágúst 2003. Fréttir þessar valda stúdentum miklum vonbrigðum því ffamkvæmdir við húsið hafa gengið eins og í sögu undanfama mánuði og því mun það valda þeim skoram, sem ætlunin er að fari inn í húsið og búa við hús- næðishallæri, þ.e. líffræði-, jarðfræði- og landafræðiskor, óþægindum. í viðtali við Tómas Inga Olrich, sem birt er í Stúdentablaðinu í dag, segir menntamálaráðherra að húsið verði tekið í noktun að hluta á næsta ári. Stúdentagarðar afhentir í lok september lauk ffamkvæmdum við námsmannaíbúðir í Amarási í Garðabæ. Ásdís Halla Bragadóttir bæjar- stjóri afhenti talsmönnum stúdenta íbúðimar, Garðabær er eigandi íbúðanna 14 en FS sér um rekstur og útleigu. Miðvikudaginn 9. október sl. flutti Magnús Þorkell Bemharðsson, lekt- or í nútímasögu Mið-Austurlanda og Islam við Hofstra háskólann í New York, fyrirlestur í Hátiðasal í Aðalbyggingu Háskóla íslands und- ir heitinu: „Af hverju hatar Bush Saddam? Stjómmálaafskipti írak og Bandaríkjanna í sögulegu ljósi.“ Fullt var út úr dyram á fyrirlesturinn eins sést hér til hægri og komust færri að en vildu. Magnús Þorkell Bemharðsson lauk BA-prófí í stjómmálaffæði og guðffæði ffá Háskóla íslands, MA- prófi í trúarbragðaffæði ffá Yale Di- vinity School 1992 og Ph.D.-gráðu í sagnfræði ffá Yale University árið Af hverju hatar Bush Saddam? 1999. Hann gegnir nú stöðu lektors í nútímasögu Mið- Austurlanda og Islam við Hofstra háskólann í New York og hefur sérhæff sig í nú- tímasögu írak. Á næsta ári kemur út bók Magnúsar, Re- claiming a Plund- ered Past: National- ism and History in modem Iraq 1921- 1941, á vegum Há- skólaforlagsins í Texas, en þessi bók er að mestu leyti byggð á doktorsritgerð hans. Hann hefur einnig ritstýrt bók um heimsendafræði (apoca- lypticism) f hinum mis- munandi trúarbrögðum (London 2001) og öðra riti um menningartengsl Bandaríkjanna og Mið- Austurlanda (New Haven, 2002). Um þessar mundar ritar hann menningar- og stjómmálasögu írak 1941- 1991 með sérstöku tilliti til samskipta þeirra við Bandaríkin og Bretland. Gunnþóra hlýtur Arkímedesarverðlaunin Á dögunum var það tilkynnt að Gunnþóra Ólafsdóttir, nemandi í landfræði og ferðamálafræðum við jarð- og landfræðiskor HÍ., verður á meðal þeirra sem munu hljóta Arkímedesarverðlaun Evrópu- sambandsins þann 5. desember nk. Verðlaunin, sem eru að upphæð 34.000 evrur, eru fyrir verkefni hennar „The Nature Tourist; Analysis of tourist needs and views towards nature in the highlands of Iceland and implications for plann- ing of nature tourist destinations". Verðlaunin era æðstu verðlaun sem ESB veitir háskólanemum í grunnnámi og era þau hugsuð til að gefa verðlaunahöfum tækifæri til að íjármagna frekara nám eða rannsóknir. Markmið verðlaunanna er að auka og vekja athygli á rannsóknum í Evrópu, auka sam- vinnu milli Evrópulanda og hvetja ungt fólk í háskólanámi til að líta til rannsókna og vísinda þegar það \ Gunnþóra Ólafsdóttir, nem- andi í landfræði og ferða- málafræðum sem hlaut Ark- ímedesarverðlaun Evrópu- sambandsins 2002. hugar að starfsvali. Gunnþóra hefur aðstoðað Önnu Dóra Sæþórsdóttur, lektor í ferðamálafræðum við rannsókir hennar á þolmörkum ferðamennsku á íslandi. Verkefni Gunnþóru er að hluta til byggt á BS-ritgerð hennar og er að miklu leyti unnið úr gögnum sem söfnuð voru vegna þolmarkarannsóknarinnar í Land- mannalaugum og á Lónsöræfum. Gunnþóra sagði við Stúdentablaðið að hún muni nota verðlaunaféð til þess að fara í dokt- orsnám og lítur til Englands, Danmörku eða Svíþjóðar í því sam- bandi. Hún hefiir hug á að helga sig fræðistörfum í mannvistarlandfræði og ferðamálafræðum í framtíðinni. Hún sagði ennfremur að hún væri mjög þakklát fyrir þessa viður- kenningu og að þessi útnefning segði ýmislegt um gæði námsins í Háskóla íslands því ESB gerir mikl- ar kröfur til umsækjendanna. ft Einkennistákn Arkímdesar- verðlauna ESB. Sjá nánar: http://www.cordis.Iu/- improving/awards/- archimedes.htm. Námsmenn knýja fram hækkun námslána í síðasta mánuði felldi málskots- nefnd LÍN úr gildi úrskurð stjómar LÍN í skólagjaldamálinu svokallaða sem snerist um hámark skólagjalda- lána vegna framhaldsnáms í kjölfar gengislækkunar krónunnar árið 2001. Málið fjallaði um það hvort LÍN ætti að miða við hámark skólagjaldalána til námsmanna erlendis í erlendri mynt, eins og sjóðurinn vildi gera, eða í íslensk- um krónum. Námsmenn búsettir á íslandi gátu fengið að hámark 2.800.000 kr. lán til ffamhaldsnáms, þar sem viðmiðunin var í íslenskum krónum, en þegar gengi íslensku krónunnar var hvað lægst gagnvart erlendum myntum gátu námsmenn búsettir erlendis aðeins fengið 2,1- 2,4 milljónir kr. Námsmenn erlendis, undir forystu SÍNE, mátu það svo að þeir ættu að þá íslensku hámarksupphæð sem tiltekin var í reglum sjóðsins. Var fallist á sjón- armið námsmanna erlendis. Skrifstofa SÍNE hvetur alla lánþega eða aðstandendur þeirra, sem telja sig eiga ffekari rétt til skólagjaldalána vegna síðasta námsárs, að leita til sín eða á skrif- stofu LÍN fyrir 1. febrúar 2003. Orkuveitan veitir námsstyrki Orkuveita Reykjavíkur veitti ný- verið tveimur konum námsstyrki sem stunda nám á sviði verkffæði- og tæknigreina. Styrkina hlutu Brynja Baldursdóttir, MA-nemi í iðnaðarverkfræði við Georgia Institute of Technology í Atlanta í Bandarikjunum og fyrram stúdent við HÍ, og Ólöf Kristjánsdóttir, nemi á þriðja ári i umhverfis- og byggingaverkffæði við HÍ. Hvor styrkþegi fær í sinn hlut 225.000 kr. A. Kennslukannanir á netið Fyrir stuttu var tekin ákvörðun um að allar kennslukannanir verði framvegis á netinu en þær era mik- ilvægar til þess að stúdentar geti látið skoðanir sínar á kennslunni í ljós. Þær era jafnframt tækifæri fyrir kennara til að aðlaga kennslu að mismunandi aðstæðum og þör- fum nemenda. Stúdentaráð telur að nú sé tækifæri til að hafa fleiri, reglulegri og sérhæfðari kannanir. Það er von ráðsins að stúdentar eigi eftir að nýta sér þetta tækifæri til að tilkynna ef einhvað megi bæta og hrósa ef svo ber undir.

x

Stúdentablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.