Austri - 02.06.1931, Blaðsíða 1

Austri - 02.06.1931, Blaðsíða 1
I. ár. Seyöisfiröi, 2. júnf 1931. 18. blað. Húsböndahollusta „Jafnaðarmannsins“ og hrossakaupin. Einkunnarord: Þeir, sem af lýginni lifa, en látast um sannleikann skrifa treysta á trúgirni hinna, sem tala og hugsa enn minna. Plaussr. Þessi staka Plausors kom mér í hug, er ég leit 10. tbl. „Jafnaöarmannsins" frál.þ. m. Slíkur hátíðardagur sósíalista mátti ekki í gleymsku falla, þótt kröfuspjöldin vantaði og „skrúðgangan" færist fyrir. þess vegna varð ritstjórinn, Jónas Quðmundsson, að fara á stúfana og skreyta dálítið hátíðar- númer blaðsins. Hann þurfti að votta yfir- boðurum sínum — íhaldshetjunum — hús- bóndahollustu, kvitta fyrir kaupsamninginn um kjördæmin nýju og leita að tálbeitu fyrir lítiltrúaða samherja. Þetta viðfangsefni reifar J. G. í ritsmíð- um þrem sama daginn og heita þær: „Fram- sóknarflokkurinn og þingræðið", — „Þeir, sem lifa á lýginni" og „Nauðsyn". Allt eru þetta heróp fyrir kosninga-lífróðri, sem J. Q. verður nú að hefja á fúafleytu, undir forustu fornra fénda, en kominn nú í auðmýktarstöðu til þeirra. Ber hann nú fram undir rós kröfuna um kosningaíylgi alþjóðar við flatsængurfélag þeirra íhalds- sósíalista og útskúfun Framsóknar. Qætir í ritsmiðum þessum hjá J. Q. nokk- urrar herkænsku í rangfærslum staðreynda, en meira þó óskammfeilni og sérgæðings- háttar. Hann hefir réttilega til þess fundið, að lýgin ein og falsháttur gátu hrúað það pólitiska kviksyndi, sem hann og samherj- arnir eiga yfir að ganga í kosningunum. Ljósastur vottur um innræti ogsannleiks- ást J. Q. eru ummæli hans um Framsókn og þingrofiö, ástæður ráðherra fyrir þing- rofinu og einkunnir flokksins. Engum dylst að þar er á borð borið fyrir auðtryggnina og fákænskuna. Alveg tel ég óþarft að svara þeirri fávís- legu illkvittni og ranfærslum," sem fram koma hjá J. Q. í fyrstnefndri ritsmíð, enda hefir flestu því verið af öðrum svarðað; aöeins vil ég spyrja J. Q. fárra spurninga, út af þeirri fullyrðingu hans, að Framsókn sé flokkur rangsleitni og afturhalds í öll- um greinum. Var það af rangsleitni og afturhaldi, að Framsókn knúði fram vökulögin svo nefndu, og mannúðlegar réttarbætur fyrir sjómenn? Var það af rangsleitni og afturhaldi, að Framsókm aftraði handahófslegri beitingu gerðardóma og varalögreglu í vinnudeilum, með því að knýja fram lög um sáttasemj- ara í vinnudeildum? Var það rangsleitni af Framíókn, að ýta fram og lögfesta lánadeild við Búnaðar- banka íslands fyrir lítil grasbýli við kaup- staði og kauptún, eöa að koma á lögum um verkamannabústaði og vildarkjörum um byggingu þeirra? Um margt fleira mætti spyrja, sein Fram- sókn hefir til betri vegar snúið fyrir þá, sem J. Q. læzt vinna fyrir, þótt af hæpnum heilindum virðist, svo sem faðmlög hans við íhaldið votta; en hér skal að sinni horfið frá 1. þætti ádeilu blaðsins og vikið að 2. þætti. J. Q. virðist þar ætia að leggjast djúpt, þótt mistekist hafi og eigi verði séð, hvort falsháttur eða fljótfærni olli. Hann segir: . . . „Einmitt af því Fram- sókn vissi að ný stjórn mundi verða mynd- uð og kjördæmaskipunin afgreidd í fyrra sinn af Alþingi — einmitt þessvegna rauf hún þingið". Með þessari blekkingu ætlar þá J. Q að hlunnfæra lesendur blaðsins og láta þávill- ast á því, að kjördæmaskipunin sje liður í stjórnarskrárbreytingu, sem tvennar kosn- ingar þurfi til að lögfesta, og þessvegna hafi saklaust verið að lofa svikamylnunni að snúast. En allir, sem þessi mál þekkja, vita það gjörla, að bæði má töíu þing- manna og kjördæmaskipun breyta, án þess að hreifs við stjórnarskránni, og hrossa- kaupin um þetta áttu að takast með svika- mylnunni áður til kosninga kæmi og kjós- andur landsins fengju að átta sig. Austfirðingafjórðungur, sem nú hefir 7 kjördæmakosna þingmenn, átti að fórna 3 og fá að halda 4 hlutfallskosnum fulltrúum, en þar bjóst J. G. við að ná 3. eða 4. sæti með röskum V? atkvæða, sem J. Q. mundi telja sér öruggan. Heipt J. G. í garð þeirra, sem stöðvuðu svikamylnuna og báru fyrnefnda- slgurvon hans út á gaddinn, er að vísu skiljanleg, en ekki að sama skapi drengileg. Hann hrópar á réttláta kjördæmaskipun, og rétt- lættiskennd hans virðist fullnægt, ef honum sjálfum er Ieiðin rudd að þingsæti, hvað sem högum sambor^ara hans líður. Þeirra er þá að fórna, hans að þiggja. Og í dupt- ið vill hann krjúpa fyrir þeim nýju hús- l>«ndum og fornu andstæðingum, til að ná markinu þráða. Mætti um þá auðmýkt heim- færa orð hins gamla Skálholtsprédikara: „Margur hefir lotið djöflinum fyrir minna". Lokaþátturinn hjá J. Q. í nefndu blaði, sem hann nefnir „Nauðsyn", er grímulaus árás á mig, vegna afskifta minna af land- kaupamáli Neskaupstaðar, þótt greinin að yfirvarpi sé svar til annars manns, um hlut- laust efni. Meir en litla óskammfeilni þarf til að fara með það mál svo, sem J. Q. gjörir, og heföi ég ekki að óreyndu ætlað honum svo áráövandlega efnismeðferö, sem þar kemur f ljós. Aðeins lífróður til kosninga getur skýrt þá framkomu hans. Sögu þessa landkaupamáls er óþarft að rekja hér, en eðlilegt er að spurt verði um það, hvað ég hafi í málinu gert og hvers hafi verið af mér krafist. því má í fám orð- um svara þannig: Ég hefi, með aðstoð flm., komið málinu í það horf, að þingið gat gengið að þvf, að heimila stjórninni jarðarsöluna með ákveðnum skilyröum og aðgengilegum. Ennfremur hefi ég liðkað samninga milli ráöherra og bæjarstjórnar á þann veg, að nú er ríkishluti jarðarinnar hænum falur, að því er ég bezt veit, fyrir lágmarksverð það, sem heimildarlögin tiltaka og með auðveldum greiðsluskilyrðum. — Kaupum

x

Austri

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Austri
https://timarit.is/publication/593

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.