Austri - 02.06.1931, Qupperneq 5

Austri - 02.06.1931, Qupperneq 5
AUSTRI 5 Yfirlýsing. Rvík 27/5 1 931. Aö gefnu tilefni lýsir miðstjdrn Framsdknarflokksins yfir þvf, aö af hálfu Framsdknarflokksins, hefir ekki veriö stofnað til neinna samnlnga né nein tilboö gerö, tll neinna flokka, um breytingu á núverandi kjördæmaskipun. Miöstjdrnin. Þingrofið. Eftir Halldór Stefánsson. Kunnara en frá þurfi að segja eru hróp og óspektir stjórnarandstæðinga út af þingrofinu og í sambandi við það fortölur þeirra um stjórnarskrárbrot, þingræðisbrot og þjóöræðisbrot, sem þeir kalla lýðræðis- brot, en það stafar [aftur af því, að for- kólfar og blaðamenn beggja flokkanna hugsa íér kjósendur sem lýð (sbr. flökkulýð), sem eigi að veita sér auðmjúka þjónustu. Það þarf ekki Jangt [mál til að hrekja villur stjórnarandstæðinga í þessu máli. Þingrof táknar það, eins og menn vita, að umboö þingmanna er felt úr gildi frá þeim tíma, sem ákveðið er í þingrofsúrskuröin- um. Það, sem um er deilt, út af þingrofinu, er ekki svo mjög það, hvort heimilt hafi verið að rjöfa þingið, heldur hitt, hvort stjórninni, eftir stjórnarskránni, hafi verið heimilt að rjúfa það þá þegar. Þegar það kemur fyrir, að stjórn, sem setið hefir við völd á þingræðisgrundvelli, kemst vitanlega í minnihluta, þá er það á- greiningslaust viðurkent af stjórnarvenjum allra nálægra landa, og af öllum stjórn- málamöunum og öllum stjórnmálaflokkum, — nema núverandi stjórnarandstæðingum á íslandi, — að stjórnin' á1 völ tveggja leiða. Önnur leiðin er aó beiðast lausnar þá þegar og leggja umboð sitt í hendur þings- ins. Hin leiðin er að rjúfa þingið og leggja umboð sitt í hendur kjósenda.' Stjórnirnar eru hvarvetna annarsstaðar/algerlega óátald- ar hvora leiðina sem þær óska að fara. Að leggja umboðið í hendur þingsins það er að virða þingræðið meira en þjóð- ræðið. Aö le 'gja umboðið í hendur þjóð- arinnar, það er að virða þjóðræðið meira en .þingræðið. Hvort er þir.gið yfir þjóðinni, eða þjóðin yfir þinginu? — Það er ekkert vafamál. — Þingið hefir fengið umboð sitt frá þjóðinni. — Þjóðin er það, sem er fullvaldinn, en ekki þingið. Að tala um þjóðræöisbrot, í sambar.di við þingrofið, er þessvegna beint öfugmæli. Að tala um þingræðisbrot, þó umboðið sé lagt í hendur fullvaldans í málinu, er að lítils- virða þjóðina og kjósendurna. — Þing- raðisbrot er það eitt, að virða ekki lög- lega afgreidd mál þingsins. Þá er að minnast á þá ástæðuna, sem stjórnarandstæðingar bera fyrir því, aö þingrofið hafi verið stjórnarskrárbrot. Þeir byggja þessa skoðun sína á því, að í 18 gr. stjórnarskrárinnar segir að þingi megi ekki slíta, fyr en fjárlög hafa verið sambykkt. Þeir rökræða ekki þenna skoðunarhátt verulega, en bera aðeins fyrir sig, aö próf. E. Arnórsso.i álíti þetta og hafi haft þessa skoðun áður en þessir umræddu atburðir komu fyrir. Það ætti nú að gefa rangri skoðun gildi að hún væri gömul!! Þess er því næst að geta, að til þess að reyna að verja þessa skoðun hefir próf. E. A. orðið að bera fyrir sig bæði ósann- indi og ranga tilvitnun í rit annara nianna. Enda hefir E. A. hlotið maklega lítilsvirð- ingu, sem þjóðrjettarfræðingur og vísinda- maður, innanlands og utan, fyrir þenna skoðunarhátt sinn og rökstuðning sinn fyr- ir hann. Það, sem 18. gr. stjórnarskrárinnar ræð- ir um, það er aðeins venjuleg seta þingsins jiegar þing er ekki rofið og hættir störfum án þess að umboð þingmanna falli niður. Þá má ekki hamla þi'ni-inu frá aé halda áfram störfum, m. ö. o. slíta þingi, fyr en fjárlög hafa verið samþykkt. — Hefði stjórn- in slitið þinginu þ. e. látið þaö hætta störf- um dn þess að rjúfa það, — án þ;ss að leysa það upp, — fella niður umboð þing- manna, — þá hefði hún framið stjórnar- skrárbrot. Tuttugasta grein stjórnarskrárinnar ræðir svo aftur um þi.igrof og er það allt annar atburður en þingslit, eins og ég hefi áður sýnt. Nítjánda greinin ræðir svo enn um það, hversu fara skuli þegar þingi er frestað, — það kemur í raun og veru ekki þessu máli við, að öðru leyti en þvi, að það skýrir það, að hér er um þrjár sjálfstæðar, hverri annarí óháðar, greinar að ræða, sem setja reglur um sinn atburðinn hver. Eins og ég hefi getið um fyr, er það jafuan á valdi stjórnar, sem kemst í minni hluta, hvort hún kýs að leggja umboð sitt í hendur þingsins eða þjóðarinnar. — Ef hún kýs síðari leiðina, þá er það fyrst og fremst af því, að hún vill fá úr- skurð þjóðarinnar um það, hvort hún — þjóðin, — fellst fremur á málstað stjórnar- innar, eða þess þingmeirihluta, sem að vantraustinu stendur. f annan stað geta verið sérstakar ástað- ur fyrir hendi, sem til greina koma um, það, hvaða ákvörðun stjórnin tekur í þessu efni. Og þessar sérstöku ástæður voru fyrir hendi hér. — Þær eru teknar fram í for- sendum stjórnarinnar fyrir þingrofsúrskurð- inum og hafa verið birtar í blöðum og eru því kunnar. Veigamesta af þessum sérstöku ástæðum tel ág þá, að vitað var að stjórnarandstæð- ingar gátu ekki komið sér saman um stjórnarmyndunina á almennum þingræðis- legum grundvelii. Hvaða úrræði voru þá fyrir hendi? Þau ein, að fá skipaða ópólitíska bráða- byrgðastjórn. í því skjóli átti svo ýmist að samþ. stórpólitísk — og að dómi okkar Frams.manna — stórskaðlag einstök mál, og undirbúa önnur samskonar á dul. Það'var þetta, sem hindrað var með þingrofinu og það var aftur út af því — að þetta var hindraö — sem stjórnarandstæð- ingar urðu svo afarreiðir. Og hver voru svo þessi skemdarmál? — Það var, í einu orði sagt, að auka og efla pólitískt vald Reykjavíkur yfir þjóðmál- unum, en rýra að sama skapi pólitísk á- hrif hinna einstöku kjördæma annara, á Dann hátt, að í reyndinni hefði landið komist undir pólitísk yfirráð Reykjavíkur. Frá Norðfirði. Þegar fregnir bárust hingað um þingrofið, efndu þeir forkólfar bandamanna (fhalds- og Jafnaðarmanna) til fundar, til að mót- mæla því. Fundaráiyktun sú, sem þar var samþykt, var að mestu samhljóða því, sem íhaldið og Jafnaðarmenn sendu frá sjer um aað efni annarsstaðar frá og víða hefir ver- ið birt, og er því óþarfi að endurprenta :>að hjer. Eins og að líkum lætur, var mik- ið talað um þingrofið hjer um þær mundir, og létu forkólfar stjórnarandstæðinga það á sér skilja, að þeir, hvorir um sig, mundu eigi una málalokum nema stofnað yrði lýð- veldi nú þegar. Þeir, sem háværast töluðu um þetta, munu hafa veriö af Jafnaðarmanna hálfu <ristinn Ólafsson bæjarfógeti og Stefán Guðmundsson bæjarfulltrúi, en af íhaldsins hálfu þeir Páll Þormar, brezkur konsúll, fálkariddari, bæjarfulltrúi, kaupmaður etc. og Bern. B. Arnar, fyrverandi ritstjóri Ár-

x

Austri

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austri
https://timarit.is/publication/593

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.