Austfirðingur - 27.09.1930, Qupperneq 3

Austfirðingur - 27.09.1930, Qupperneq 3
Stjettir og flokkar SUMARIÐ, sem nú er að líða, heiir verið hið erfiðasta til lands og sjávar. Aðeins á litlum kafla á Suðvesturlandinu mun hey- skapur hafa gengiö stórskemda- laust. Allsstaðar annarsstaðar hafa atvinnurekendur orðið fyrfr stór- hnekki af völdum tíðarfarsins. Hey hafa hrakist og stórskemst, og mest af því sem náðst hefir er ljett fóður og stopult. Fiskur hefir verkast seint og illa og ligg- ur sumstaðar undir skemdum. Of- an á alt þetta bætist svo alment verðfall á erlendum markaði á öll- um útfluttum afurðum landsmanna. Hvergi hefir tíðarfarið verið stirðara en á Austfjörðum og eng- ir máttu síður við erfiöu árferði en Austfirðingar. Hin síðustu ár hefir fjórðungurinn orðið fyrir hinum mestu áföllum. Aldrei hef- ir Austfirðingum eins og nú ver- iö þörf á að standa saman um áhugamál sín. Öngþveiti það sem í er komið á að knýja menn tii sameiginlegra átaka. Því verður ekki neitað, að Austfirðingar hafa orðið nokkuð afskiftir um framlag af hálfu ríkisins til þess að efla atvinnuVegi fjórðungsins beint eða óbeint. Ekki verður heldur fyrir það synjað, að nokkuð hafi bólaö á reipdrætti milli einstakra sveita- og sýslufjelaga innbyrðis. Þeir, sem vinna vilja af einlægum hug að viðreisn fjórðungsins, verða að vera yfir það hafnir, að láta smá- smuglegan hreppakrit og sveita- drátt ráða aðgerðum sínum. Verk- efnin, sem leysa þarf, eru ekki bundin viö neinn sjerstakan stað. Þau eru allsstaðar. Samgöngumál fjórðungsins eru fjarri góðu lagi. Ótalmargt má gera til að bæta at- vinnuskilyrðin. Viðfangsefni þessi verða ekki leyst í einu vetfangi. Menn verða að líta með sanngirni á þarfirnar og ráðast fyrst til end- urbóta þar sem skórinn kreppir mest að. Nokkrir áhugasamir Austfirð- ingar hafa gengist fyrir því að gefa út blað það, sem hjer kem- ur fyrir almenningssjónir. Erblað- inu fyrst og fremst ætlað að berj- ast fyrir áhugamálum fjórðungs- ins, en auk þess mun haldið uppi umræðum um landsmálin alment °g eru skoðanir ritstjórans á þeim málum mönnum nokkuö kunnar hjer eystra. Um leið og „Austfirðingur" hef- ur göngu sína, vil jeg þakka fyr- irrennara mínum, Sigurði Arn- grímssyni ritstjóra, sem um und- anfarin ár hefir gefið út blaðið „Hæni“ og bætt þar með úr þörf- inni á almennu málgagni fyrir fjórðunginn. Árni Jónsson frá Múla. Erlendir menn, sem til íslands koma og hafa tækifæri, vilja og getu til að líta opnum augum á íslenska þjóðarhagi, eru allir á einu máli um það, að eftirtektarverð- asta einkenni íslensks þjóðlífs sje að hjersjeminni mannamunur en annarsstaðar, meiri stjettajöfnuð- ur, — að íslendingar sjeu „demo- kratiskariu en allar aðrar þjóðir. Jafnframt því, að líta á þetta sem ríkasta sjereinkennið, telja þeir það einnig heilbrigðasta þáttinn í fari þjóðarinnar. Ástæðurnar til þessa eru auð- fundnar. Fámenniö hefir altaf veitt sjerstök skilyrði til náinnn kynna manna á meöal hjer á landi. Ætt- vísin hefir altaf lifað hjer. Menn hafa vitað ekki einungis hver um annars hagi persónulega, heldur auk þess getað rakið upprunann og ættarmótið. Á þennan hátt hafa verið tök á að meta manninn sjálfan án tillits til umbúða lífs- kjara eða lífsstöðu. Slík þekking hefir stuðlað að því, að draga úr þeim hleypidómum, sem annars- staðar hafa orðið til þess, að hækka manninn eða lækka úr hófí, eftir því hver staða hans í þjóðfjelag- inu hefir verið. Hjer á landi hefir aldrei verið þjóðhöfðingi með „guðlegu“ valdi. Konungurinn hef- ir altaf setið í öðru landi og al- menningur hefir lítið annað vitað um hann, en að hann hjeti ann- aðhvort Friðrik eða Kristján. At- vinnuhættirnir hafa til skamms tíma verið þannig, aö verkamað- urinn og atvinnurekandinn hafa átt við mjög lík æfikjör að búa. Bóndinn hefir verið verkamaður, embættismaðurinn bóndi. Kot- ungssonurinn hefir orðið prestur og prestssonurinn farið í verið. Menn getur greint á um það, hvort heppilegt hafi verið fyrir ræktun landsins, að óðalsrjettur hefir ekki verið hjer, en hitt er augljóst, að það á sinn þátt í stjettajöfnuðinum. Erlend kúgun hefir þjáð landslýðinn öldum sam- an. Eldgos og hafísar hafa eytt bjargræði hærri sem lægri. Drep- sóttir og sultur hafa ekki farið í manngreinarálit. Þau sameiginlegu skipbrot hafa sorfið af ýmsa agnúa, sem öðrum þjóðum ama. Loks vita menn, að íslendingar eru svo náskyldir, að ef rakið er einar fjórar aldir aftur í tímann, mæt- ast allir, bóndinn, verkamaðurinn, kaupmaðurinn, biskupinn og ráð- herrann í sama ættföðurnum. — * * Einn af mestustjórnmálamönn- um Breta sagði fyrir hundrað ár- um síðan, aö í Bretlandi byggju tvær þjóðir, hinir ríku og hinir fátæku. Nokkur hiuti þjóðarinnar fæddist, lifði og dó í auði og alls- nægtum. Allur þorrinn fæddist í örbirgð og dó í örbirgð. Milli þessara tveggja „þjóða“ var djúp staðfest. Arfgeng auðlegð skapaði „yfirstjettar-tilfinningu" annarar „þjóðariunar“, en „undirstjettar- tilfinningu11 hinnar. Hvorug skeytti um hinnar hag. Auðmennirnir sátu að sumbli og fóru á dýra- veiðar. Fátæklingarnir þrælkuðu meira en þrekið leyfði. Konurnar urðu að standa í hverskonar erfiðisvinnu og börnin, jafnvel fjögra og fimm ára gömul, voru látin vinna í námum og verk- smiðjum. Ylirstjettin leit niður á verkalýðinn, sem óæðri verur. Verkalýðurinn leit upp til yfir- stjettarinnar í hatursfullri auömýkt. Um nána kynningu stjettanna var ekki að ræða. Þær höfðu enga þekkingu hver á aiinari, engan skilning, enga samúð, — töluðu naumast sama mál. Og ástandið var tæplega verra í Bretlandi en víða annarsstaðar erlendis. Hvar sem borið var niður varö nálega þaö sama uppi á teningnum. Hrokafull og haröneskjuleg yfir- stjett. Kúguð og bæld undirstjett. Slíkt ástand hlýtur að leiða til stjettabaráttu, enda er hún úr þessum jarðvegi sprottin. * * * Getur nokkur maður haldið því fram, að ástandið hjer á landi hafi nokkurn tíma verið slíkt, sem nú var lýst? Vissulega ekki. Og þó er alið hjer á stjettaríg, hatri og hleypidómum árið út og árið inn eftir fullkomnustu erlendum fyrrr- myndum.Verkamönnunum er kent, að hagsmunir þeirra og atvinnu- rekendanna hljóti altaf að rekast á. Bændunum er kent, að hags- munir þeirra og útgerðarmannanna geti aldrei fallið saman. Ráðandi stjórnmálaflokkarnir í landinu lifa á því, aö tefla stjett gegn stjett. En hvað hefir reynslan kent okkur í þessum efnum? Síðustu áratugina hafa orðið þær framfarir á sviði atvinnuveg- anna við sjóinn, að víöa má leita að sambærilegu dæmi. Frambjóðandi Alþýðuflðkksins við Iandskjöriö í sumar taldi að íslendingar ættu um tvö hundruð miljónir króna. Langsamlega mest- ur hluti þessa auðs hefir safnast síöasta mannsaldurinn. Ef kenn- ingar verkalýðsleiðtoganna væru rjettar ætti ranghverfan á þessari auösöfnun að vera sú, að fátækum einstaklingum hefði fjölgað ílandinu á þessum tíma. En allir vita, aö svo er ekki. Annar af forkólfum jafnað- armanna hjer á landi sagði fyrir nokkrum árum, að kaupgjald manna hefði hækkað svosíðanfyrirstríð— án tillits til peningagildis — að nú ynni verkamaöurinn á tveim dögum fyrir þeim lífsnauðsynjum, sem áður hefðu kostað þriggja daga erfiði. Síðan hefir kaupgjald hækkaö, en vöruverð farið lækk- andi, svo hlutfalliö Hefir enn breyst verkamönnum í hag. Útkoman verður því sú, að á sama tíma sem þjóðarauðurinn vex um tugi miljóna, fyrir framtak atorkusamra manna, batnar líka aðstaða verkamanna, svo að nem- ur þriðjungi eöa meiru. Þetta er óblandið gleöiefni öllum öðrum en þeim, sem hafa það að atvinnu sinni að troöa þeim kenningum í verkamenn, að þeir hljóti aö vera svarnir óvinir atvinnurek- endanna. — * * * Herferðir Tímans eru nákvæm- lega sama eðlis og herferðir banda- mannanna gegn atvinnurekendun- um. Bændum er talin trú um aö fjölmennasti stjórnmálaflokkurinn í landinu sje þeim andvígur og sitji á svikráðum við þá. Sann- leikurinn er sá að núverandi Sjálf- stæðismenn hafa ýmist átt frum- kvæði að, eða stutt með ráðum og dáð, öll þau mál sem til viö- reisnar horfa íslenskum landbún- aði. Langmerkasta málið, sem nú er á döfinni er raforkumálið. Fyrir þessu máli hafa Sjálfstæðismenn barist árum saman gegn stjórn og þingliði „bændaflokksins" og nú loks eru þeir að vinna nokkurn bug á beinum fjandskap stjórnar- innar við málið. Alt síðasta kjör- tímabil sátu íhaldsmenn við völd og í stjórnartíð þeirra fer löggjafar- valdið fyrst að hlaupa verulega myndarlega undir bagga með bændunum. Allar þær miljónir, sem runnið hafa úr vasa útgerðar- manna og annara atvinnurekenda við sjóinn, til viöreisnar landbún- aðinum hafa verið möglunarlaust greiddar, af því að menn skilja, að nauðsynlegt er fslenskri menn- ingu og íslensku þjóðerni, að skilyrði sjeu fyrir þróttmikla bænda- stjett í sveitum landsins. Bændur verða að láta sjer skiljast, að þeim er þaö lífsnauðsyn, að ekki sje þrengt kosti annara atvinnu- rekenda og það er blátt áfram ó- sæmilegt að flokkurinn, sem kenn- ir sig við bændurna, skuli leyfa sjer, að halda áfram sama rógn-

x

Austfirðingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austfirðingur
https://timarit.is/publication/594

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.