Austfirðingur - 30.07.1932, Page 3
AUSTFIRfrlNQUR
3
AUSTFIRÐINGUR
Vik u bla ð
Ritstjóri og ábyrgðarmaöur
Árni Jónsson frá Múla.
Sími nr. 70.
Verð árgangsins 5 kr.
Bo<3s>oo<3s>oo<s>oo<ss>eo<asw
Einar Arnörsson veröur
Hæstarjettarddmari.
Ákveöið er að Einar Arnórsson
verði skipaður Hæstarjettardómarl.
í professorsembætti hans er til-
nefndur Bjarni Benediktsson,
Sveinssonar.
Þingkosningar í Reykjavík.
í Reykjavík verða aö fara fram
nýjar kosningar til Alþingis til
þess að kjósa mann í stað Einars
Árnórssonar um leið og hann
tekur við dómaraembætti.
Lögjafnaðarnefndin.
Sambandslaganefndin hefir nú
lokið störfum og eru dönsku full-
trúarnir farnir heim. Rædd voru
gjaldeyrismál og aukin viðskifti
en ekkert látið uppi um árangur.
Druknun.
Nýlega druknaði í Skaftárósi
ungur maður, Jón Vigfússon frá
Geirlandi, efnlsmaður 25 ára. Var
að silungsveiðum.
Krossanesdeiluuni Iokiö.
Vinnudeilunni vlö Krossanes-
verksmiðjuna er nú lokið. Kaup
13.60 fyrir 12 stunda vinnu hvort
heldur sem er á nótt eða degi.
Kommunistaóeirðirnar teknar
til rannsóknar.
Rannsókn stendur yfir út af
Kommunistaóeirðunum hjer og er
Ólafur þorgrímsson skipaður
rannsóknardómari. Kommunistar
ætluðu fyrst að neita að svara.
En hafa þá verið settir í gæslu-
varðhald og við það losnað um
málbeinið. Ekkert verður sagt um
árangur rannsóknarinnar að svo
stöddu.
Ríkisverksmiðjan á Siglufiröi
hefir tekið á móti 40000 málum
til bræðslu og er það 10000 mál-
um meira en í fyrra.
Dr. Páll Eggert Ólason
hefir verið kosinn í bankaráð Út-
vegsbankans í stað Magnúsar
Torfasonar.
Yfir Vatnajökul.
Dr. Max Kell fór hjeðan snemma
í júní síðastl. landveg austur í
Hornafjörð. Þar hafði hann mælt
sjer mót viö dr. Verleger frá
Hamborg og var ferðinni síðan
heitið upp á Vatnajökul. Þeir
lögðu af stað frá Hoffelli í Horna-
firði. 17. júní og fylgdu þeim 7
menn upp á jökul til þess aö
bera farangurinn og var meðal
þeirra Guðmundur bóndi í Hof-
felli. Þeir höfðu riieðferðis tjald,
sleöa, skíði svefnþoka úr íslensk-
um gæruskinnum og matvæli til
fimm vikna, því að dr. Verlegar
heldur áfram rannsóknum þarna.
Er komið var upp á jökul, skildu
fylgdarmennirnir við þá fjelaga,
en þeir hjeldu áfram þvert yfir
jökulinn og voru 7 daga norður
yfir, að Kverkfjöllum. Ætluðu síð-
an upp á Kverkfjöll, en hreptu
illviðri og biðu í fjóra daga.
Sneru síðan sömuleið til baka og
voru tvo sólarhringa yfir jökulinn.
Jökullinn var góður yfirferðar að
nóttu til, en illfær á daginn; þeir
gengu altaf á skíðum. Útsýni af
jöklinum var hið fegursta. Dr.
Verleger er í þann veginn að
leggja af stað í annan leiðangur
norður yfir jökul og fær með
sjer tvo fylgdarmenn úr Horna-
firði. Hann ætlar upp á Snæfell
og rannsaka það. Sex Englend-
ingar dvelja uppi á Vatnajökli,
fóru upp á jökul úr Suðursveit
og búast við að dvelja á jöklinum
5—6 vikur við rannsóknir.
(Mbl.).
Hjúskapur.
Um síðústu helgi voru gefin
saman í Reykjavík ungfrú Karen
Georgsson (læknis á Fáskrúðs-
firði) og Jens Sigurðsson vjel-
fræðingur (sonur Sigurðar Jóns-
sonar kaupm. á Sf.).
Innflutningurinn
í júní nam samkv. tilkynningu
frá fjármálaráöuneytinu kr. 3.026.-
748,00. Þar af tíl Reykjavíkur
2.232.2200,00.
í bankaráð Útvegsbankans
var kosið á framhaldsaðalfundi
bankans 22 þ. m. Gengu þrír
fulltrúar úr samkvæmt hlutkesti:
Eggert Claessen, Magnús Toifa-
son og Lárus Ejeldsteö. Var Lár-
us endurkosinn, en í stað hinna
Guðmundur Ásbjörnsson kaupm.
og Dr. Páll Eggert Ólason. Fyrir
voru í bankaráöinu Svavar Guð-
mundsson og Stefán Jóhann Stef-
ánsson. Fjármálaráðhera var ein-
ráður um kosninguna.
Seyðisfjöröur
heitir rit, sem verslunarmanna-
fjelag Seyðisfjarðar hefir gefiö út.
Segir þar frá legu staðarins, höfn-
inni, veðráttufari o. s. frv. Þá er
lýsing á bænum, atvinnuháttum
bæjarmanna og öðru því lfku.
Loks er getið hinna helstu stofn-
ana, sjúkrahússins bankans, upp-
lýsingar um verslun og siglingar
inn- og útflutning. Rit þetta er
ætlað þeim, sem viðskifti vilja eiga
við Seyðisfjörð á einn og annan
hátt, utanlands og innan. Það er
á 4 tungumálum, íslensku, ensku,
þýsku og norsku. Fjöldi mynda
er í ritinu og auglýsingar frá
fjölda atvinnurekenda. Allur frá-
gangur ritsins, pappír og prentun,
er framúrskarandi góður og er
ritið tii fylsta sóma bæði útgef-
endunum og prentsmiðjunni.
Sjúkradagur.
Fyrir forgöngu S. Fougners-
Johansens bókbindara hefir und-
anfarin sumur veriö haföur hjer
á Seyðisfirði einn fjársöfnunar-
dagur fyrir sjúklinga. Á laugar-
daginn var, var sjúkradagur þessa
sumars. Voru merki seld á götun-
um um daginn, en um kvðldið
var mjög fjölsótt skemtun í skól-
anum. Setti S. Fougner-Johansen,
samkomuna, en sfðan söng frú
Björg Guðnadóttir nokkur lög.
Hefir frúin hreimmikinn og styrk-
an messosópran, vel þjálfaðan og
var söng hennar tekið hið besta.
Þá flutti Haraldur Guðmundsson
ræðu. Loks söng Bragi nokkur
lög — og svo var auðvitað dansað.
„Dana“,
danska hafrannsóknarskipið lá
hjer inni nokkra daga nú í vik-
unni. í fyrirdrætti út hjá Vestdals-
eyri fengu þeir nokkra laxa og er
það sjaldgæf veiði hjer um slóðir.
Merktur fugl.
Hinn 25. þ. m. náðist hjer dúfa.
Merktur. Hægri fótur málmhringur
5; LM N D 16391 N U R P. Vinstri
fótur. Merktur. Gúmmíhringur 885.
Hafði Fyrst sjest 21. þ. m.
Frjettir
af Kveonafundinum. sem hald-
inn var á Hallormsstað 8—10 þ.
m. koma í næsta blaði.
Framleiðir:
Síðstakka, tvöfalda, úr striga.
Talkumstakka, tvöfalda, úr ljerefti.
Drengjastakka, tvöfalda, úr ljerefti.
Hálfbuxur, tvöfaldar, úr striga.
Kvenpils, tvöföld, úr striga.
Kvenpils, tvöföld, með tveimursmekkj-
um.
Kvenkjólar (síldarstakkar).
Svuntur, tvöfaldar, úr striga.
Svuntur, einfaldar, úr ljerefti.
Kventreyjur, tvöfaldar, úr ljerefti.
Kurlmannatreyjur, tvöfaldar, úr Ijerefti.
Karlmannabuxur, tvöfaldar, úr ljerefti.
Drengjabuxur, tvöfaldar, úr ljerefti.
Sjóhatta (enska fagið).
Ermar, einfaldar, úr sterku Ijerefti.
Vinnuskyrtur („Bullur"), úr striga.
Ullar-slðstakka („Doppur").
Ullar-buxur (,,Trawl-buxur“).
Svartar kápur, á fullorðna og unglinga.
Vörurnar mjög vandaðar
að efni og frágangi.
Austfirðingar, styðjið ís-
lenskan iðnað.
Nánari upplýsingar hjá
Gesti Jöhannssyni.
Fridagur verslunarmanna
er á mánudaginn. Fer fjöldi
fólks upp f Hjerað þessa tilefnis.
Margir fóru með Novu í gærmorg-
un. Eu flestir fara í dag, gangandi
og ríðandi. Eru samkomur í Hjer-
aöinu á morgun, bæði í Skriðdal
og á Fossvölium, auk þess sem
fyrirhugaður er pólitfskur fundur
á Egilsstöðum.
Dánardægur.
Sfðastliðinn sunnudag andaðist
á Norðfirði Páimi Pálmason,
kaupmaður eftir langvinn veikindi.
Þessa vinsæla manns verður nán-
ar getið síðar hjer í blaðinu.
A þriðjudaginn vatð bráökvödd
að heimili sínu hjer á Seyðisfirði
Sigþrúður Þorkellsdóttir, 61 árs
að aldri. Hún var merk kona og
vel látin af ölium, sem hana þektu.
Það hefir verið, er og verð-
ur óþarfi að flytja til lands-
ins neðantaldar vörur, þvf aö
H.f. Hreinn f Reykjavík
framleiöir þær jafngóöar og
ódýrar og þœr erlendu. —
H.f. „Hreinn“ framleiðir:
krystalsápu, handsápur, rak-
sápu, baðsápu, stangasápu,
þvottaduft, kerti, stór og smá,
skóáburð, gólfáburð, vagna-
áburð, fœgilög, ræstiduft,
kreolin-baðlyf.
Gleymið ekki að vátryggja.
Vátryggingarfjelagið
NORGE h.f.
Stofnaö í Drammen 1857.
Brunatrygging.
Aðalumboð á íslandi:
Jdn Ólafsson, málaflm.
Lækjartorgi 1, Reykjavík.
Sími 1250.
Duglegir umboösmenn gefi
sig fram, þar sem umboös-
menn ekki eru fyrir.
Ksru húsmæðurl
Til að spara fje yðar, tímaog
erfiöi þá notið ávait:
Hansion gólfgljáa
og
Clterry Blossom
skóáburð.
Fæst í öllum helstu verslunum
á Ausfurlandi. í heildsölu hjá
Kr. Ú. Skagfjörð
Reykjavík