Vikuútgáfa Alþýðublaðsins - 12.01.1927, Síða 1
Gefið út af Alfiýðuflokknum.
I. árgangur.
Reykjavík, 12. janúar 1927.
1. tölublað.
Til iesenda.
Oígefendur AlþýÖublaðsins hafa
ákveðið að gefa auk dagblaðsins
út vikuútgáfu af því, og er hún
sérstaklega ætluð aiþýðufólki úti
á landsbyggðinni, því, sem gjarna
vill halda alþýðublað, gefið út í
Reykjavík, en þykir dagblað of
dýrt eða kærir sig ekki um það
lesmál, sem eingöngu varðar
Reykjavíkurbúa. í vikuútgáfu
þessari munu bfrtast flestallar
helztu greinir og tíðindi, sem dag-
blaðið flytur, og auk þess grein-
ir, er sérstaklega eiga erindi til
iesenda vikublaðsins. Kemur 1.
tölublað þessa vikublaðs hér fyrir
almenningssjónir. Vænta útgef-
endur þess, að það verði aðnjót-
andi sömu vinsælda með þjóð-
inni, sem dagblaðið hefir áunnið
sér og nýtur.
Frá sambandsþinginu.
Skýrsla sambandsforseta.
Stutt ágrip.
Málin, sem sambandsstjórn hefir
til meðferðar: 1) Verklýðsmál, og
þar undir fellur útbreiðslustarf-
semi.siofnun nýrra verklýðsfélaga
og beinn stuðningur við verklýðs-
félögin í kaupdeilum þeirra og
öðrum vandamálum, sem úr þarf
að greiöa. 2) Stjórnmálastarfsemi,
en þar undir heyrir útgáfa blaða,
kosningar, þmgstarfsemi og margt
annað, sem teljast má til stjórn-
málastarfseminnar.
Hjá jafnaðarmönnum í ná-
grannalöndunum er yfirstjórn
verklýðsmála og stjórnmála að-
greind. Þar hafa sérstakar stjórn-
jr verklýðsmá'in til meðferðar, og
verklýðsfélögin hafa sérstök þing
til þess að ræða hin eiginlegu
verklýðsmál, og á sama hátt eru
háð þing jaínaðarmanná, |)ar sem
rædd eru löggjafarmáiin og þar
senr mörkuð er stefnan í dag-
skrármálum alþýðuflokkanna.
Jafnvel þó fáment sé hjá okk-
ur móts við aðrar þjóðir, þá er
vafalaust hiutfailslega meira starf
ætlað sambandsstjórn íslenzka Al-
þýðuflokksins með sameiginlegri
yfirstjórn stjórnmá'a- og ve.klýðs-
nrála-félaga hcldur en þar, sem
þetta er aðgreint. En hvort þetta
fyrirkomulag er heppilegt eða
ekki, verður ekki enn sagt með
neinni vissu. Nokkur breyting á
þessu fyrirkomulagi eru fjórð-
ungssambönd, sem aðallega munu
hugsa um verklýðsmálin, um sam-
vinnu verklýðsfélaga i kaupdeil-
um og þess háttar, en meira um
þetta síðar.
Löggjafarmálin,
sem komið hafa til kasta sam-
bandsstjórnarinnar á umliðnu
starfstímabili, eru æðimörg. Full-
trúum sambandsþingsins munu
þau mál flest kunn og afdrif
þeirra, en hér þykir þó hlýða að
víkja að hinum helztu.
Alþýðuflokkurinn hefir ekki á
alþingi atkvæðamagn til að ráða
úrslitum mála, þar sem flokkur-
inn fram að þessum tíma hefir að
eins átt eitt sæti í þinginu, en
þótt svo-sé, verður þó talsvert
vart við áhrif Alþýðuflokksins á
löggjafarstarfsemina, er kemur til
af því, að sá mildi kjósenda-
fjöldi, sem Alþýðuflokkurinn hefir,
og biöð hans hafa svo sterk áhrif
á almenningsálitið, að alþingi
verður að taka tillit til þess í
löggjöfinni.
Af löggjafarmálum, er írain
hafa verið borin af hálfu Alþýðu-
flokksins á síðast liðnum tveim-
ur árum, má telja merkust slysa-
tryggingalögin, er samþykt Voru
á alþingi 1925, frumvarp til laga
unr að banna næturvinnu að vetr-
inum til í Reykjavík og Hafnar-
firði og frumvarp til laga um að
ú'yggja muni lögskráðra skip-
verja. Slysaíryggingarlögin eru
engan veginn svo fullkomin, sem
við mundum óska, en segja má,
að með þeim sé lagður sá grund-
völlur, sem hægt verði að byggja
á fullkomnari tryggingar, þegar
fram liða stundir. Næturvinnu-
frumvarpið og frumvarp til laga
um að tryggja muni lögskráðra
skipverja komst hvorugt fram.
Var hið fyrra felt, en hinu síðara
vísað til stjórnarinnar.
Þá hafa verið borin fram af
hálfu Alþýðuflokksins ýms þjóð-
nýtingarfrumvörp og tillögur til
breytinga á eldri löggjöf, er að-
allega snertir mannréttindi.
Þá má nefna löggjafarmál, þar
sem Alþýðuílokkurinn að tilhlut-
un flokksstjórnarinnar hefir beitt
sér gegn, svo sem er um ríkis-
lögreglufrumvarp stjórnarinnar
1925, og óþarft er að lýsa hér
nánara. Hér má líka geta liinna
ranglátu skattafrumvarpa (um
verðtoll og gengisviðauka), sem
barist hefir verið gegn af hálfu
Alþýðuflokksins, — gegn breyt-
ingu kjördags o. fl.
Kosningar.
Á kjörtímabilinu hefir Alþýðu-
flokkurinn tekið þátt í fleiri kosn-
ingum en búist var við. Aukakosn-
ingar hafa farið fram í Gull-
bringu- og Kjósar-sýslu, í Reykja-
vík og auk þess landskjörið núna
síðast. Landskjörið í sumar 1. júlí
var sú eina kosning, sem gert var
ráð fyrir á síðasta sambandsþingi
að koma mundi fyrir á tímabilinu.
Og Alþýðuflokkurinn getur verið
ánægður með þann árangur, sem
orðið hefir af þátttöku hans í
þessum kosningum. Við lands-
kjörið komum við manni að og
sýndum með því, að við erum
þriðji sterkasti flokkurinn í land-
inu. Við aukakosninguna i Reykja-
vik kom Alþýðuflokkurinn að ein-
um rhanni, og hefir því alþingis-
mannatala f'okksins tvöfaldast. .
Alpýðuprentsmiðjan.
Nokkru fyrir síðasta sambands-
þing var hreyfing komin á það
rnál, en það var fyrst í dezember
1924, að gerð var gangskör að
því að safna fé til prentsmiðj-
unnar. Skrifaði þá sambandsstjórn
félögum úíi um land um málið.
En 1. febrúar 1925 var allsherjar-
söfnun hafin i Reykjavík. Megin-
hluti þess fjár, er safnast hefir til
prentsmiðjunnar, var héðan úr
bænum. Alls hefir safnast 17 309
kr„ og auk þess er 2090 króna lán
hjá einu sambandsfélaganna, svo
að safnféð telst vera 19 309 kr.
Þó þurf i að fá lán, 10 000 kr„ til
þess að geta keypt öll áhöld til
prentsm'ðjunnar, enda var gert
ráð fyrir í upphaíi, að samskotin
þyrftu að vera 30 000 kr. til þess
að hægt væri að kaupa prentá-
höldin án þess að taka lán.
Alpýðublaðið.
Prentsmiðjan var stofnuð til
þess, að léttara yrði um rekstur
Alþýðublaðsins. En eins og kunn-
ugt er, hefir ávalt verið halli á
rekstri þess. Fyrstu 3 árin var sá
halii mjög mikill, en hefir farið
smáminkandi. En það verður á-
valt erfiðara og erfiðara ár frá
ári, bæði að svara vöxtum af
skuldum þeim, er safnast hafa,
og eins hitt að greiða árlegan
halla. Hefir sambandsstjórn mik-
ið rætt um þetta mál, og eftir
rækilega yfirvegun var að því íáði
horfið að mynda félag með á-
hugasömum alþýðumönnum til
þess að styðja Alþýðublaðið fjár-
hagslega. Var stofnað slíkt félag
á síðast liðnu sumri. Urðu nokk-
ur mistök á hinum fyrstu fram-
kvæmdum þess. Og þar sem sýni-
legt var, að ekki myndi takast
samvir.na rnilli stjórnar þess fé-
lagsskapar og sambandssíjórnar
en slík sámvinna var óhjá-
kvæmileg, ef nokkurt gagn ætti
að verða að þessu —, þá gengust
nokkrir menn fyrir því að nýtt
félag var stofnað með fullri sam-
vinnu við sambandsstjórn. Hefir
það félag, „Aðstoðarfélag Alþýðu-
blaðsins“, nú þegar frá 1. dez.
s. 1. tekið að sér rekstur Alþýðu-
blaðsins, en öll stjórnmálayfirráð-
in eru í höndum sambandsstjórn-
ar. Hefir nú og þeirri langþráðu
ósk rnargra flokksmanna verið
fullnægt, að stækka Alþýðublaðið
í broti, og væntir sambandsstjórn-
in, að því verði vel tekið af al-
þýðu, þótt nokkur hækkun á á-
skriftargjöldum hafi jafnframt
orðið á blaðinu.
Útbreiðslusíarfsemi
Á sambandsþingum hefir ávalt
verið lögð mikil áherzla á það,
að stofna ný verklýðsfélög. Á
umliðnu starfstímabiii hefir nokk-
uð verið að þessu unnið, sumpart
beinlínis af sambandsstjórn og
fulltrúum hennar eða af áhuga-
sömum flokksmönnum. í sam-
bandi við kosningar þær, er fram
hafa farið, hafa verið sendir menn
til ýmsra héraða á landinu og
ýmist lögð drög til stofnunar
verklýðs- og jafnaðarmanna-fé-
laga eða þau beinlínis stofnuð.
Þannig var í fyrra vetur sendur
maður af sambandsstjórninni til
Austur- og Norður-lands. Var þá
stofnað jafnaðarmannaféhg á
Seyðisfirði og lögð drög til stofn-
unar verklýðsfélags í Glerárþorpi
við Akureyri; þar hefir síðar verið
stofnað verkamannafélag. Um
Vestfirði hefir tvisvar verið farið
á þessu ári, og hafa nú verið
stofnuð 3 verklýðsfélög á þess-
um stöðum: I Bolungavík, á Flat-
eyri við Önundarfjörð og á Þing-
eyri við Dýrafjörð. Um það
má náttúrlega lengi deila, hvort
nægilega mikið hefir. verið unn-
ið að útbreiðslustarfsemi eða ekki,
en það verður þó að viðurkennast,
að nokkuð hefir verið gert. Einn-
ig má á það líta, að sambands-
stjórnin hefir haft lítið fé til um-
ráða í þessu skyni, en alt slíkt,
sérsiaklega íerðalög'in, kostar mik-
ið fé. Þegar á alt er Jitið, væntir
mig þess, að sambandsþingið telji
sambandsstjórnir.a hafa unnið
nokkuð í þessum efnum yfir tíma-
bilið.
Fjörðungssamböndin.
Á Norðurlandi og Austurlandi
eiu nú stofnuð fjórðungssambönd.
Eru i þeim nokkur félög, sem
enn eru eigi gengin í Alþýðusam-
bandið. Hefir stjórn Alþýðusam-
bandsins stuðlað að stofnun þess-
ara fjórðungssambanda, en þeim
er aðallega ætlað, eins og kunn-