Vikuútgáfa Alþýðublaðsins - 15.01.1930, Page 4
4
VIKUÚTGÁFA ALÞÝÐUBLAÐSINS
Húsbruni í Reykjavik.
Að kvöldi 12. þ. m. kl. á 11.
timanum kviknaði í húsi Hjálp-
ra>ðishersins á horninu milli
Tjarnargötu, Kirkjustrætis og
Suðurgötu. Eldsins varð vart
rétt um kl. 10% á efstu hæð
hússins. Þar var mikið af spón-
um og lausum trjávið, því að
verið var að byggja ofan á hús-
ið. Veður var geysi hvast af
norðauslri og neistaflug ákaft
mjög er bálið magnaðist. Næstu
hús eru flest úr timbri og voru
þau um tíma í allmikilli hættu,
einkum Ásbyrgi.
Slökkviliðið var þegar til
kvatt. Kom það á vettvang rétt
eftir kl. 10%. Alt fólk var kom-
ið úr húsinu nema einn maður,
Jón Helgason, er þar var gestur.
Hann var í herbergi á miðhæð-
inni í horninu milli Tjarnar-
götu og Kirkjustrætis og var
eldur mikill kominn í glugga-
búnaðinn Tjarnargötumegin. —
Slökkviliðsmcnn settu stiga að
glugganuin Kirkjustrætismegin,
brutu hann og náðu manninum
þar út. Fór hann sér að engu
óðslega, týndi saman bækur
sinar og fatnað, áður hann lét
hjálpa sér út um gluggann. —
Yfirleiti gekk slökkviliðið ágæt-
lega fram. Tókst því á skömm-
um tima að vinna svo bug á
eldinum að sýnt þótti að takast
myndi að verja húsin í kring.
Var siðan allri orku beitt til
þess að kæfa eldinn í húsinu.
Það sorglega slys vildi til með-
an á slökkvitilraununum stóð,
að aðalstiginn hrökk i sundur.
Brotnaði ofan af honum hub.
1% metri. Einn slökkviliðs-
manna, Sigurþór Þórðarson,
Geirssonar lögregluþjóns, stóð
efst i stiganum. Féll hann til
jarðar úr mikilli hæð og meidd-
ist á höfði. Var það hið mesta
lán, að hann ekki beið bana af.
Hann var tafarlaust borinn inn
til Árna Péturssonar læknis og
fluttur þaðan í sjúkrahús. —
Leið honum eftir vonum á mánu-
dagsmorgu' inn og erhann úrallri
hættu. — Rétt um miðnætti féll
þakið og var þá séð að takast
myndi að varna því, að eldurinn
breiddist út. Skömmu síðar varð
eldurinn slökktur að mestu. Var
þá þakhæðin öll brunnin, alt
brunnið innan úr næstu hæð og
hinar 2 allmjög skemdar af eldi
og vatni.
Gestur Árskóg, foringi Hjálp-
ræðishersins, segir svo frá:
Samkoma hófst hjá okkur
kl. 8. Var henni lolcið um kl.
10. Fór ég þá og aðstoðarmaður
minn inn i kaffistofuna, og sát-
um við þar nokkra stund. Kom
þá ein af stúlkunum hlaupandi
til okkar og hrópaði að kvikn-
að væri i spónum á efsta lofti.
Var þá kl. um 10%. Við hlup-
um undir eins út til að ná í
slökkviliðið, en þá var eldurinn
kominn upp úr þakinu og fólk
tekið að safnast á götuna. Var
okkur sagt að búið væri að
kalla á slökkviliðið, og kom það
rétt í þessu. Árni Jóhannsson
var háttaður, klæddist hann í
skyndi. Alt annað fólk í húsinu
vár á ferli. Byrjuðum við strax
að bera út húsmuni og annað
þessháttar úr herbergjunum á
miðhæðinni og gátum bjargað
mestu, en flest hefir það skemst
mikið í flutningunum og af
vatnsganginum.
Húsið var að hálfu leyti í
smíðum. Um mánaðarmótin á-
gúst og september var byrjað á
viðbótabyggingu við gesta- og
sjómanna-hæli Hjálpræðishers-
ins. Var einni hæð og þakhæð
bætt ofan á húsið og viðbygg-
ing gerð að húsi Obenhaubts
við Suðurgötu. — Guðjón Sæ-
mundsson byggingarmeistari
hefir haft bygginguna með
höndum. Hygg ég að nýbygg-
ingin og efni hafi ekki verið vá-
tryggt sérstaklega. En húsmunir
Hjálpræðishersins voru vá-
trygðir og gamla húsið að sjálf-
sögðu líka.
Talsvert af gestum var hjá
okkur. Urðu þeir auðvitað allir
húsnæðislausir. — Ýmsir góðir
menn buðust strax til að hýsa
þá og starfsfólkið. Einn af gest-
unum, Magnús Mikkelsen,
norskur maður, meiddist dálítið
á höndum og höfði, en annars
kom elckert slys fyrir hjá okk-
ur. Magnús var fluttur á Hótel
Heklu og læknir sóttur til hans
þá þegar. Leið honum vel að
morgni.
Talið er sennilegast að eldurinn
hafi kviknað út frá reykháfn-
um. Verkamenn og smiðir, sem
vinna við bygginguna, höfbu ekki
komið í húsið síðan á laugar-
dag.
Meðan bálið var mest var all-
mikill geigur í mönnum. Storm-
urinn var svo mikill, að margir
óttuðust, að ekki myndi takast
að verja timburhúsin, sem næst
stóðu. (í einu þeirra kviknaði
sem snöggvast). Hefði þá orðið
hér ægilegur stórbruni, því að
húsin standa þarna mjög þétt.
— En fyrir góða framgöngu
slökkviliðsins tókst að hefta lit-
breiðslu eldsins.
Hörmulegt slys var það, að
stiginn skyldi brotna. Áhöld
slökkviliðsins verða að vera svo
örugg að þeim megi treysta.
Nóg er áhætta slökkviliðsmann-
anna samt. — Sjálfsagt er að
rannsaka til hlýtar, hvort stig-
inn hefir eigi verið nógu traust-
ur, eða hvort eitthvað annað
hefir valdið þessu.
Rrfend sfmskeyti.
„United Press“ tilkynnir:
Stjórnin i Portúgal fer frá.
Frá Lissabon er símað: Ivens
Ferraz hershöfðingi, forsætisráð-
herra i Portúgal, hefir lagt fyrir
Carmona forseta lausnarbeiðni
sína og a’.ls rábuneytisins. For-
setinn tók lausnarbeiðnina til
greina. Lausnarbeiðnin er afleið-
irig þess, að fjárhagsástandið í
Angola er mjög slæmt, en skoð-
animar mjög skiftar innan stjórn-
arinnar um, hvernig ráða beri
fram úr þvi.
(Angola er portúgölsk nýlenda
á suðvesturströnd Afríku, 1270000
ferkm. á stærð. íbúatalan er lið-
lega 4 milifónir, aðallega Bantu-
blökkumenn, en aJJ eins 20 þús.
hvítir menn eru búsettir í nýlend-
unni.)
Manntjón og skemdir í Banda-
rikjunum af ofviiöi.
Frá Chicrgo er símað: Óveður
hafa geysað í vesturfylkjum
Bandaríkjanna, í annað sinn nú
á skömmum tíma. Þrjátíu biðu
bana og margir meiddust. Skemd-
ir nema tugþúsundum dollara,
Mikil snjókoma og samgangna-
teppa.
Innlend tiðindi.
Búnaðarbankinn
Bankastjórar við hann hafa
verið skipaðir: Páll Eggert Óla-
son, prófessor i sagníræði, aðal-
bankastjóri, Bjarni Árgeirsson
alþm. og Pétur Magnússon lög-
fræðingur.
Útvarpssfjóri
hefir Jónas Þorbergsson, rit-
stjóri „Tímans", verið settur fyrst
um sinn.
Prófessor i sagnfræði
við háskólann hefir Barði Guð-
mundsson verið settur, í stað
Páls Eggerts Ólasonar bankastjóra.
He lsufarsfréttir.
Hettusóttin gengur enn þá
svo að segja að eins hér
á Suðurlandi. Á Norðurlandi hafe
að eins 7 veikst af henni, 1 á
Austurlandi og enginn á Vestur-
landi. Mest ber á kvefsóttinni á
Suðurlandi og Vesturlandi, en á
Norður- og Austur-landi er hún
miklu minni. (Eftir dezember-
skýrslum lækna.) 1 dezembeT hef-
ir verið óvenjulega mikið um
gigtsótt, bæði hér og annars
staðar á landinu. Veiktust alls
89 af henni, þar af 15 í Reykja-
vík. Að þessum farsóttum frá-
töldum hefir verið lítið um önnur
umferðaveikindi. (Frá landlækn-
inum.)
Hver ber ábyreðina?
Einhver „N.“ skrifar í „Vísi“
og læzt vera guðhræddur
mjðg. Hneyksast hann afskap-
lega á þvi, að Alþýðublaðið skuli
vilja láta tala um hreinlegar göt-
ur, holl húsokynni og bætt kjör
alþýðu á nýjársdegi. Virðist „N.“
þessi vi’ja láta guð bera ábyrgð-
ina á kjallarakompunum röku og
loftlausu og köldu og súgmiklu
sútarheTbe;gjunum, sem auð-
va’.dið hér neyðir fátæklinga með
fjölda barna til að hafast við í
fyiir okur’elgu. Yfirleitt er svo
að sjá sem „Vísis-Ennið” vilji
láta guð bera ábyrgðina á öll-
um óhæfuveikum íhaldsins, fé-
flettirgu verka'.ýðsins, „Pólum"
bæjarstjómarinnar, fátæktinni og
heilsuleysinu. Hátíðasníkjur og
íjlmusubetl handa þeim á að vera
jólagleði fátækra. — Ekkert er
til svívirðilegra en að hafa guö
að skálkaskjóli og reyna aö
koma á hann ábyrgðinni af ó-
hæfunum, sem menn fremja hver
við annan. Heldur „N.“, að meist-
aranum frá Nazaret myndi geðj-
ast vel að „Pólunum” og kjall-
aiakytrunum, sem bæjarstjórn og
b.oddborgarar úth uta fátækling-
um? Heldur „N.“, að Kristur
hefði verið sammála Knúti unj
að lækka bamsmeðlögin niður í
270 krónur á ári og vilja taka á
sig ábyrgðina af þeirri óhæfu?
Lubbalegastir allra hræsnara eru
þeir, sem sífelt eru með nafo
Kústs á vörunum, en breyta á-
valt þvert á móti kenningum
hans.
Ritstjóraskifti
eru orðin að »Tímanwm«. Heflr
Jónas Þorbergsson latið af rit-
stjóminni, en við tekið Gisb Guð-
mundsson, ritstjóri »Ingólfs*. kosn-
ingablaðs »Fxamsóknar«-flohksin8.
Bifreiðaferðir á vorin.,
Samkvæmt heimild í vegalög-
unum heíir atvinnumálaráðherra
hdmilað veg .miksljóra að tanna
bifreiðaferðir um vegi þá, er nú
skal greina, á tímabilinu 7. marz
til 7. júní, pegar talið er, að veg-
urinn liggi mjög undir skemdum
vegna bleytu eða holklaka, en
þó má bannið aldrei ná yfir fleiri
daga í senn en þrjá: Stykkis-
hó msveg frá vegamótum hjá
Bo:garr.eú, þjóðveginn um Húna-
vatns- og Skagafjarðar-sýslur,
Vaðlaheiðarveg frá Eyrarlandi
upp í Steinsskarð, þjóðvegina um
Þingeyjarsýslur báðar og Múla-
sýslur, þjóðvegina um Nes í
Ho:na£irði og um Mýrdal og
sýsluvegi í Austui-Húnavtnssýslu.
Banri þetta nær þó ekki til bif-
reiðaferða til lækndsvitjana.
ísland og Þjóðabandalaoið.
Frá Genf er símað: Fram-
kvæmdaráð Þjóðabandalagsins
hefir ákveðið, að ekkert sé þvf
til fyrirstöðu, að samvinna tak-
ist milli lslands og Þjóðabanda-
lagsins í vissum fjármálaefnum.
(Á þessa ákvörðun fram-
kvæmdaráðsins mun mega líta
sem dálítið spor í áttina til þes*
að Is’.and fái upptöku í Þjóða-
bandalagið). í
-________u_________________
Ritstjéri og óbyrgðarmaöur:
Haraldur Guðmundsson.
Alþýðuprentsmiðjan.