Alþýðumaðurinn

Útgáva

Alþýðumaðurinn - 05.05.1931, Síða 2

Alþýðumaðurinn - 05.05.1931, Síða 2
9 alÞýðumaðurinn auðvelt að lofa Framsóknarstjórn- inni hlutleysi. Jafnaðarmenn gátu því setið hjá og horft á þessa tvo flokka eigast við í þinginu án þess að hafast nokkuð að. Framsókn var einfær um að verjast vantrausti frá íhaldinu af því að hún hafði 3 þingmönnum fleira í þinginu en það, en hefði íhaldinu aftur á móti komið til hugar að mynda stjórn, þá hefðu Framsóknarþingmennirnir getað velt henni fyrirvaralaust. í þeim kosningum, sem nú standa fyrir dyrum, er sýnilegt að barátta stærri flokkanna verður um það, hvers um sig, að ná hreinum meirihluta, og ef það tekst ekki, að verða þá sá sterkari í þinginu- Aðstaða jafnaðarmanna í þinginu getur tæplega orðið önnur en sú, að láta Framsókn og íhald eigast við um stjórnarmyndun upp úr kosningunum og koma þar hvergi nærri, og leiðir þá að sjálfu sér, að sá flokkurinn, sem fjölmennari verður að þingmannatölu, myndi stjórn, Forsætisráðherra Tryggvi Pór- hallsson hefir haldið því mjög á lofti í ræðu og riti, að kosningarn- ar 1927 hafi sýnt það að jafnaðar- menn og Framsóknarmenn ættu að standa saman móti íhaldsflokknum í þinginu, og viil með því sanna að jafnaðarmannaþingmennirnir hafi þar brugðist sínum kjósendum með því að segja upp hlutleysi við Framsóknarstjóinina. Til þess að þessi ályktun forsætisráðherrans geti staðíst, hefði flokkur ráðherr- ans orðið að halda jafn ákveðinni andstöðu gegn íhaldinu í þinginu eftir kosningarnar 1927 eins og hann gerði meðan flokkur hans var í minnihluta og í andstöðu við stjórn Jóns Þorlákssonar fram að kosningunum 1927. En það mun allra mál að flokkur láðherr- ans hafi ekki gjört það, og skal þó engu um það spáð að hann geti ekki bætt ráð sitt í þessum efnum í framtíðinni, ef straumur sá utan af landinu, sem velti íhalds- stjórninni 1927, nær að hafa þau betrandi áhrif á þingflokk ráðherr- ans, er komi honum aftur á réttan kjöl. Úr bæ otj bygð. Á fyrra Sunnudag lést í Kaup- mannahöfn ungfrú Hólmfríður Sig- valdadóttir Porsteinssonar kaupmanns hér í bænum, mesta myndarstúlka á tvítugsaldri. Banamein hennar voru berklar. Geysir kvaddi veturiun með söng í Samkomuhúsinu síðasta vetrarkvö'd. Var söngurinn ígætlega sóttur, enda stóð meira til en vant var. Geysung- um er n.I. farið að leiðast karllifið og höfðu smalað saman um 25 blóma- rósum bæjarins og gert þær samstiltar sér — í söng. Söng þessi blandaði kór þriðjung söngskrármnar. Kórið söng aftur næsla Sunnudagskv. við góða aðsókn. Hjónabönd. Ekkjufrú Vilheimina Sigurðardótt'r ogjónas Pór verksmiðju- stjóri. Ungfrú Ingibjörg Halidórsdótt- ir Magnús B|arnason smiður. Ungfrú Laufey Lilliendahl símamær og Einar Pálsson bankaritari á Selfossi. Rauðakrossdeildm hér fékk sjúkra- bifreið með »Drotningunn;« síðast.— Tekur hún einn sjúkling í rúm og einn farþega auk b freiðarstjóra. Maður slasaðist i tunnuverksmiðju Hjalta Esphólíns á Miðvikudaginn var. Misti tvo fingur hægri handar. Hann> heitir Geir Geirmundsson. Árla morguns síðasta Fimtudags lagði varðskipið »Oðinn« í Græn- landsleiðangur, og hafði með aðra flugvélina. Átti »Óðmn« að flytja fluguna vestur að ísnum og bíða hennar þar, meðan hún flygi inn yfir Grænlandsjökla og svipaðist eftir ensk- um leiðangursmönnum, er þar eru taldir í hættu staddir. Átti flugan að láta falla niður íil þeirra matvæli og fi. ef hún fyndi þá og gefa skýrslu um hvar þeir væru staddir. Var leiðangurinn hafmn eftir beiðni ensku stjórnarinnar. Ferðin gekk vel vestur í ísinn, Veður var hið besta, og fult útlit fyrir góðan árangur af ferð- inni. En þegar allt var búið til flugs- ins inn yfir jökulinn, var hætt við alt saman og »Oðinn« snéri heimleiðis og kom til Reykjavíkur kl. 8 í gær- morgun. Kom sú fregn á u'ndam honum að flugan hefði bilað, en það mun ekki rétt vera, he'dur hafi deila er upp kom milli fararstjórans og flugmannsins, valdið því, að heim var sriúið. Á Sunnudagsnóttina var, réri mót- orbáturinn »íslendingur« frá Eyrar- bakka. Er hann hafði lagt línuna silgdi hann undir Krísuvikurbjörg Og lá þar, því þar var betra veður en úti. En svo óheppilega vildi til, að bátur- inn tór upp á sker og brotnað'. — Komust sk'pverjar — fjórir — nauð- lega upp í bjargið og héldust þar við í. 12 tíma, er mótorbátur, er þar fór fram hjá, tók eft r þeim og bjarg- aði þe'm. Gagnfræðaskólanum verður sagt upp á Laugardagskvöldið kemur. Stjómmálaræðurnar hófust í gær- kvöldi og stóðu yfir í þrjá tíma. — Ræðumenn voru Jón Baldvinsson, Tryggvi Pórhallsson O' Jón Porláks- son. Ræðurnar halda afram í kvöld og annað kvö d. I kvöld byrjar Framsókn, svo Ihaldið og 4lþýðu- flokkurinn siðast. Um ræðumenn hefir ekki verið getið. Björgvin Guðmundsson tónskáld og söngstjóri í Winnipeg er væntan- legur hingað til bæjarins til dvalar. Er hann ráðinn söngkennari við skól- ana hér. Ætti þetta að verða ærinn fengur fyrir sðnglífið í bænum, því Björgvin er þegar orðinn dáður tón- listamaður. Kaupdeila á Ísafirðí. Á almennum verklýðsfundi á ísa- firði 26. Apríl s.l. var samþ. taxti fyrir verklýðsfélögin þar. Hefur kaup verið frcmur lágt á ísafirði, og er ekki enn nema kr. 1.20 á kl.st. í dag- vinnu fynr karlmenn samkvæmt þess- um nýja taxta, og eftirvmna og helgi- dagavinna ekki nema kr. 2,00 á kl. st. Kolavinna og uppskipun á salti er þó kr. 0,40 hærri en þetta. Aftur á móti hefur kaup kvenna verið hækkað mik- ið í tímavinnu og er nú, eftir þessum nýja taxta Isafirðinga, kr. 0,85 á kl.st. í dagvinnu, en akkorð á fiskþvofti er lágt og ekki nema kr. 0,50 á 50 kg. vigt af stórfiski og kr. 0,42 á 50 kg. vigt af vorði.

x

Alþýðumaðurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðumaðurinn
https://timarit.is/publication/597

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.