Alþýðumaðurinn - 26.09.1931, Qupperneq 2
2
alÞýðumaðurinn
Þökkum innilega öllum þeim, sem auðsýndu okkur samúð við
fráfall föður okkar, Jóns Jónatanssonar fyrrum pósts, og heiðr-
uðu útför hans með nærverusinni eða á annan hátt.
Börnin.
hann úr glasi — kaupi mjólkina í
glasatnli.
Fyrir nokkru sagöi kaupmaður einn
mér þessa sögu, sem gerðist seint á
stríðsárunum: Kaupm. pantaði vörur
frá Kaupmannahöfn. Innkaupsverðið var
1000 krónur. Eftir 6 vikna flæking
og aliskonar kostnað fékk hann vör-
urnar, og þegar hann var búinn aö
setja á þær venjulegt útsöluverð, var
vöruslattinn kominn upp i tæpar 3000
krónur, Þelta var nú eitt af því versta,
sem þektist á striðsárunum, og við
skulum gera ráð fyrir að framleiðandi
varanna, (þær voru framleiddar i Dan-
mörku) hafi ekki fengið nema 2/s hluta
þess verð, sem þær kostuðu í Kaup-
mannahöfn, þá er útkoman þó ekki
teljandi verri, en á mjólkinni, sem
framleidd er svo sem hálftíma bíl-
keyrslu frá Akureyri.
Eitthvað hlýtur nú að vera meira
en liíið bogið við þelta.
Er þess að vænta, að forstöðumenn
Mjólkursamlagsins skýri málið, svo
hið sanna og rétta komi i Ijós.
Mjólkurvinur.
„Tíða koma Hallgerði
hitllngar".
»Verkam.< 22. þ. m. ritar af sinni
vanalegu glöggskygni um atvinnu-
málin. Farast blaðinu svo orð:
»Akureyrskur verkalýður, sem sér
fram á mikla neyð á komandi vetri,
eftir tekjurírt sumar, hlýtur að gera
þá kröfu til stjórnarvaldanna í bæn-
um, að þau sjái henni fyrir vinnu,
þegar skjólstæðingar þeirra, atvinnu-
rekendurnir, hafa svikist um það*.
Nú viia það allir, að allir stærri
atvinnurekendur í Akureyrarbæ hafa
á þessu sumri veitt jafnmikla at-
vinnu og áður, og sumir meiri,
nema Söltunarfélag verkalýðsins. Til
stjórnar þessa atvinnufyrirtækis
hlýtur því »Verkam.« að beina þess-
um orðum. Eina atvinnurekandans
hér í bæ, sem í gegn um Björn
Grímsson, lofaði bæjarbúum minst
50—60 þús. króna atvinnu í sum-
ar, en hefir svo »svikist« um það.
Víða koma Hallgerði bitlingar,
þegar »Verkam.« er farinn aðsnopp-
unga vesalings Björn og aðra sam-
herja hans fyrir svikin við verka-
lýðinn.
a■ b. c.
Vínveitingarnar
á Hótel Borg.
Reykvíkingar eru ekki skildir við
dómsmáiaráðuneytið og vínveitingarn-
ar á Hótel Borg. Á Mánudagskvöld-
ið voru haldnir tveir borgarafundir í
Reykjavik um málið. Sóttu þá um
þúsund manns. Samþyktar voru —
svo að segja mótatkvæðalaust —
áskoranir á ríkisstjómina um að af-
neraa breytinguna á vínsölutímanum,
segja upp Spánarsamnignum og fi. —
Enginn mælti stjórninni bót á fund-
unum.
Atvinnubótamálin í
bœjarstjórn.
Tillögnr þær, sem Verkamannafélag-
ið gerði i atvinnubótamálunum á fundi
sínum á Sunnudaginn var, og birtar
voru í síðasta blaði. komu fyrir bæj-
arstjórnarfund á Þriðjudaginn. Var
tiilögunum öllura vísað til atvinnu-
bótanefndar og fjárhagsnefndar í sam-
einingu. Einnig bar Karl Magnússon
fram nokkrar viðbótatill. frá kommún-
istasellunni hér, sem látnar voru fara
sömu leið. Þar á meðal var sú till.,
að bærinn sjái um að þeir verkamenn,
sem ekki fái stöðuga aívinnubótavinnu,
>séu lausir við allar greiðslur á skött-
um til bæjar og ríkis<!!!
KauphöIIin í London var opnuð
á Miðvikudagsmorguninn. Sama og
engin verðlækkun átti sér stað.
Utdráttur
úr dagskrá ríkisútvarpsins 27/9—S9/í
1931.
Fastir liðir dagskrárinnar eru:
Kl. 19.30 Veðurfregnir
— 21 Veðurspá og fréttir.
Sunnudaginn 27. Sept.:
Kl. 10 Prestvígla í Dómkirkjnnní
— 20,15 Erindi, Guðm. Friðjónss-
— 20,50 Samleikur.
— 20,55 Óákveðið.
— 21,25 Danslög.
Mánudaginn 28. Sept.:
Kl. 20,30 Alþýðulög, f>. G., K. M.^
f>. Á. og E. Th.
— 20,50 Grammof.hlj.,
— 21,25 Grammof.hlj.,
Priðjudaginn 29. Sept.:
Kl. 20,30 Hljóml., E. Th.
— 20,50 og 21,25 Grammof.hlj,
Svo er áætlað, eftir skýrslumc"
söfnuðum þar um, að konur í
Bandaríkjunum í Norður-Amerík»
beri á á sig 16 þúsund smálestir af
andlitsfarða yfir árið, 2 þús. smá-
lestir af varafegurðarlitum, og noti
svo 8 þús. smálestir af fegurðar-
vainasöltum til að ná þessu draslr
af sér aftur. Hvað alt þetta kostar
mikið fé fylgir ekki sögunni, en
það mun vera blessaður skildingur
Stokkhólmsborg hefir tekið 30
miljóna kr. lán til að standast út-
gjöld, er stafa af kreppunni.
Eftir áætlun sambands verklýðs-
félaganna í Bandaríkjunum í Norð-
ur-Ameríku, mun tala atvinnuleys-
ingja þar fara í vetur upp í 7 millj-
ónir, eða strax og uppskerustörf-
um er lokið.
til leigu með Ijósi og
hita, á Klapparstíg 1.
Stofa