Alþýðumaðurinn - 28.02.1933, Blaðsíða 1
ALÞYDUMAÐORINN
III. árg.
Akureyri, t'riðjudaginn 28. Febrúar, 1933.
12. tbl.
ÍVí var lofað í siðasta blaði, aö
birtur skyldi útdráttur úr samning-
unum milli Noregs og íslands í þessu
blaði. Þetta verður gert, þó ágrip
það, sem birt var í grein Halldórs
Friðjónssonar: *Framtíð síldarút-
vegsins*, í undanfarandi blöðum, sé
í öllum aðalatriðum rétt.
Et'tir samningsuppkastinu eiga
Norðmenn að fá þessa aðstööu hér
við land: —
a) Norskar síldarverksmiðjur meg2
kaupa 60%^ af síld, er þær bræða, af
útlendum skipum.
b) Norsk veiðiskip mega gera að
veiðarfærum sínum og öðru er þeir
með þurfa við síldveiðarnar í landi
á íslandi. — Þar á meðal þurka
nætur sínar og net, Umskipa síld,
leggja tunnur í land o. s. frv.
c) Norsk veiðiskip þuría ekki að
greiða hafnargjöld eöa ljósagjöld á
íslandi, nema þegar þau f}7rst koma
frá útlöndum.
d) Norsk veiðiskip mega ótak-
markað selja bræðslusfld í land á
íslandi.
e) Norsk skip, sera veiða og salta
í sig sjálf, hafa leyíi til að selja
500 — 700 tunnur af síld í land, en
skip, sem leggja síld upp í bræðslu,
eftir samningi, mega selja í land
700 — 1200 tn.
f) Norsk skip, sem leita hafna á
íslandi vegna óveðurs, veikinda um
borð o. s. frv. þurfa ekki að greiöa
hafnargjöld ect.
' g) Norsk veiðiskip skulu ekki sótt
til sakar þó þau hittist að veiöum
-eða aögerð aíla innan landhelgislín-
unnar, ef þau geta afsakað sig með
því, að þau hafi hrakið vegna storms
eða straums inn fyrir línuna, eða
séu þar stödd vegna ókunnugleika.
h) Ekki má kyrsetja norskt veiði-
skip, þar til mál þess er dæmt,
heldur sleppa því þegar í stað gegn
tryggingu.
Fetta er í aðalatriðum innihald
samninganna, hvað viðkemur veiðum
Norðmanna héi við land, Þarf ekki
mörgum orðum að því að eyöa, að
ef þetta verður samþykt af Alþingi,
er síldveiði landsmanna til söltunar
búin að vera.
Margir munu spyrja hvernig í ó-
sköpunum geti á þvi staðið að full-
trúar íslendinga skyldu ganga inn á
þetta. —
Val samningamannanna skýrir
þetta. Annar er og telur sig aðeins
fulltrúa bænda, og erindi hans til
samningageröarinnar sé einungis
það aö fá kjöttolliun lækkaðan, hvaö
sem pað kostar annars. Á síldar-
útvegsmálum heíir hann enga þekk-
ingu eða vit. Hinn maðurinn er
stórútgerðarmaöur, sem ekki saltar
síld, en er í þörf fyrir að fá ódýra
bræðslusíld, til aö græða á henni.
Fái Norðmenn þá aðstöðu hér við
Iand, sem samningarnir veita þeim,
geta þeir selt síld í íslenskar síldar-
bræðsluverksmiðjur fyrir miklu
lægra verð en íslendingar. Samn-
ingarnir eru því persónulegur gróði
fyrir síldarverksmiðjueigandann Ólaf
Thors, Það lítur því frekar út fyrir
að hann hafi verið fulltrúi Kveldúlf9
við samningana, en fulltrúi síldarút-
vegs íslendinga.
Líklegt er, aö þegar íslenskir
síldarútgeröarmenn hafa nú samn-
ingana íyrir framan sig, vakni þeir
NYJA BIO
Miðvikudagskvöld kl. 9
Spanskflugan
Tal- og hljómmynd í 9 þátt-
um. — Aöalhlutverkin leika
þekktustu og vinsælustu leik-
arar Þjóðverja, svo sem:
Fritz Schu/tz, Oscar
Sabo, Betty Byrd, Ralp
Arthur Roberts, Lizzi
Waldmuiler (Spanskflugan)
Myndin er með afbrigöum
skemmtileg og fjörug, listavel
leikin og með ágætum hlj'óð-
færaslætti.
til sjálfsvarnar í þessu máli. Sjó-
menn og landvei'kafólk hér nyrðra
er líka sett í gapastokkinn með
þessu. —
Krafa þessara aðila — og yfirleitt
allra hér nyrðra — hlýtur því að
verða sú, að samningarnir við Nor-
eg — í þeirri mynd sem þeir nú eru
— verði ekki samþyktir af Alþingi.
Verði ekki hafin hrein og bein
uppreist í landinu gegn samr.ingun-
um, er sameinuðu stórlaxa- og
bændavaldinu i þinginu fyllilega trú-
andi til að leggja blessun sína ýfir
ósóma þennan.
Barnaskólabörnin efna til hinnar
árlegu skemtunar sinnar, til ágóða
fyrir ferðasjóð sinn, nú um komandi
helgi. Undanfarandi skemtanir barn-
anna hafa þótt hinar bestu og mun
því enn verða gestkvæmt hjá þeim.
— Skemtiskráin verður fjölbreytt.