Alþýðumaðurinn - 07.11.1933, Side 1
ALÞÝÐUMAÐURINN
III. árg.
Akureyri, þriðjudaginii 7. Noveinber 1933.
58. tbl.
Alþingi.
Alþingi kom saman á Fimtudag-
inn var eins og til stóð. Allir þing-
menn voru mættir. Kæra lá fyrir
yfir kosningu Bjarna Snæbjörnssonar.
Töldu kærendur að Kjartani Ólafs-
syni, frambjóðanda Alþvðuflokksins,
bæri þingsætið í Hafnarfirði, þar
sem hann hafði fengið 19 fleiri, lög-
lega greidd, atkvæði á kjördegi, en
úrslitum kosninganna réðu atkvæði,
greidd hjá bæjarfógeta fyrir kjör-
dag, en þau voru ðll með þeim á-
galla, að þau voru ekki vottfest,
eins og lög raæla fyrir. Voru at-
kvæði, greidd hjá bæjarfógetanum í
Hafnarfirði, með þessum ágalla,
dæmd ógild af kjörstjórnum út um
land. Meiri hluti þingsins tók þó
kosninguna gilda, sem auðsjáanlega
var alrangt, og einungis til þess að
ala trassahátt og ólöghlýðni upp í
þeim lögreglustjórum, og öðrum,
sem um kosningar siga að sjá, og
kemur niður á kjósendum, þar sem
atkvæði þeirra eru gerð ógild á
sumum stöðum vegna ágalla á frá-
gangi atkvæðaseðlanna.
Forseti sameinaðs þings var kos-
inn Tón Baldvinsson með 21 atkv.,
Jón Þorláksson fékk 20. Forseti e.
d. Einar Árnason á Eyrarlandi, með
hlutkesti milli hans og Péturs Magn-
ússonar. Forseti n. d. var kosinn
Jörundur Brynjólfsson.
Skipun deildanna er þannig nú,
að í e. d. sitja 7 Sjálfstæðismenn,
6 Framsóknarmenn og 1 jafnaðar-
maður, en í n.d. 13 Sjálfstæðismenn,
11 Framsóknarmenn og 4 jafnaðar-
menn, en í þinginu eru, eins og
kunnugt er, 20 Sjálfstæðismenn, 17
Fi amsóknarmenn og 5 jafnaðar-
menn.
Fyrir þingið voru Sjálfstæðismenn
mjög kampagleiðir og blöð þeirra
heimtuðu að fá tvo menn í ríkis-
stjórnina. Nú mun s\o komið, að
Sjálfstæðið sættir sig við að fá að
lafa á Magnúsi eii um. Mikið hefir
verið talað um samsteypustjórn, er
Framsókn og jafnaðarmenn stæðu
að, en ekkert virðist slíkt vera á
veg komið. Héðinn Valdimarsson
ritar í »Alþýðublaðið« 1. þ. m. grein
um möguleika fyrir slfkri samvinnu
um stjórnarmyndun, og skilyrðí þau
er jafnaðarmenn verði að setja fyrir
þátttöku í stjórn með Framsókn. —
Segir þar, meðal annars :
»Alþýðuflokkurinn hefir skýra af-
stöðu Hanti mun berjast á móti
íhaldsstjórn í hvada mynd sem er,
hvort heldur sem er hreinni flokks-
stjórn Sjálfstæðisflokksins eða sam-
steypustjórn hans við Framsókn,
hvort heldur sem er ákveðinni póli-
tískri stjórn þeirra, eða svo nefndri
ópólitískrh Alþýðuflokkurinn telur
einræðisstjórn konungs á þessum
tímum mjög hættulega. Hann mun
jafut vantreysta hreinni Framsóknar-
stjórn til valdatöku. En til þess að
geta öfluglega barist gegn ofbeldis-
steinu íhaldsins og fyrir málum al-
þýðunnar, uns næstu kosningar leiða
þau mál til lykta fyrst um sinn, vill
Alþýðuflokkurinn taka þátt í stjórn-
armyndun með Framsóknarfokknum
með ákveðnum skilyrðum, er sýni
að hin nýja ríkisstjórn taki upp
nýja st/órnarstefnu gegn ofbeldi og
fyrir réttlátri, aukinni vinnu, réttu
kaupgjaldi og bættum hag alþýðu
til sjávar og sveita, eítir því sem
frekast verður unt án löggjafar, þvi
eins og þingið er skipað, getur í~
<
H NYjA B!0 H
Þriðjudagskvöld kl. 9;
Ný myrtd!
Eiginmenn
á glapstigum.
Eýzk gamanmynd í 9 þátium.
Aðalhlutverkið leikur hlægi-
legasti leikari Ejóðverja:
Ralp Arthur Roberts.
Hljómsveit Dajos Bela
spilar — Comedian Har-
monists syngja.
Hlægilegasta mynd, sem lengi
hefir sést.
Miðvikudagskv. kl. 9
Sýnd í síðasta sinn.
haldið eitt felt öll lagafrumvörp í
annari deild þingsins■ Þá yrðu og
þeir menn að skipa stjórnina, sem
vænta mætti að framfylgdu slíkri
stjórnarstefnu, og stjórnin yrði að-
eins til bráðabyrða fram yfir kosn-
ingar.«
Sjálfsagt rignir frumvörpum inn á
þingið, þótt það í raun og veru eigi
ekki að fjalla um önnur mál en
stjórnarskrárbreytingarnar og kosn-
ingalögin. Auk þessara frumvarpa
liggja nú þegar fýrir þinginu frv.
til laga um breytingar á þingsköp-
um — breytingar á útflutningsgjaldi