Alþýðumaðurinn - 11.08.1936, Síða 4
4
alÞýðumaðurinn
í tíma.
Undanlarið hefir það reynst svo,
að þegar atvinnuleysi verkamanna
hér í bænum hefir verið sro áber-
andi mikið að bæiarstjórnin hefir
ekki getað horft á aðgerðalaus, hefir
meiri hluta þess tíma, sem vinna
þurfti að fara fram á, ef hún átti
að koma verkamönnum að gagni,
gengið í bollaleggingar um það
hvað ætti að vinna og hvar. T. d.
var það svo sl. haust, að meðan
tíðin var góð, var ráðslagað aftur og
íram um það hvar ætti að fram-
kvæma atvinnubótavinnuna. þar til
veðráttan spi’tist og ekkert var
hægt að aðhafast.
Nú í sumar gengur fjöldi verka-
manna hér í bænum atvinnulaus að
heita má. Um reytingsvinnu, stund
og stund úr degi, er aðeins að ræða.
Það er vitað að eitthvað verður að
gera að gagni fyrir þessa menn og
fl. nú í haust ef ekki á að farft illa.
En hvað á að gera? Væri nokkuð
úr vegi fyrir bæjarstjórnina að fara
að athuga það nú þegar og ákveöa,
svo haustið, sem vinnan verður að
framkvæmast á, gangi ekki allt í
undirbúning.
Þessu er slegið hér fram til að
minna á að tíminn líöur stanslaust,
þótt bæjarstjórinn sofi og bæjar-
stjórnin dotti.
Máske verður þó betur ytt við
þessum framkvæmdaöflum bæjarins
í næsta blaði.
Hitt og þetta.
»Verka.ri.« var nýskeð að þakka
kommmúnistum það, að Síldarsölt-
un Verklýðsfélags Akureyrar greiðir
1 krónu fyrir verkun sattsíldartunnu
í stað 95 aura, sem taxtinn ákveð-
ur. Verkam. skal sagt það, að
þessu er ekki þannig farið. Stjórn
Verklýðsfélagsins ákvað, ótilkvödd
og ósmituð af öllum kommúnistum
eða klíkufélögum þeirra, þessa
igreiðslu ofan við taxtann, bæði
af þvf að þetta var vel séð af fé-
lagskonunum og hægra í meðferð
en ákvæði taxtans hér að lútandi.
Verkam. og allir ritarar hans mega
slá því föstu, í eitt skifti fyrir öll,
að þeir og verk þeirra verða hvergi
tekin til fyrirmyndar.
Ritstjóri »ísl.« gengur í sínum
fögru nasistadraumum annað slagið,
og þá einkum þegar búið er að
króa hann svo af á ritvellinum að
hann má sig hvergi hræra, en þetta
kemur ekki ósjaldan fyrir. Tekur
hann þá til að tala upp úr draum-
um sínum um þörfina til að gera
andstæðingana >óskaðlega< taka þá
•réttum tökum*. »mýla« þá, o. s.
frv. — Allt eru þetta orðatiltæki úr
skrifum þýsku nasistanna, þegar
þeir voru að vinna sig upp, en við
þá og sögu þeirra dvelur nú allur
hugur íhaldsins, sem finnur að
alltaf sópast utan af því fylgið
með þjóðinni.
Atvinnuleysi er nú mikið í Rvík,
þrátt fyrir það að svo að segja
allar fleytur eru á sjó. íhalds meiri
hlutinn þumbast við að greiða úr
vandræðum verkamanna, en ukis-
stjórnin er þegar búin að leggja
fram meira fé til verklegra fram-
kvæmda en tiltekið er í fjárlögum,
til þess að bæta úr atvinnuleysinu.
Menn geta hugsað sér ástandið,
hvernig það væri, ef íhaldið réði
einnig í ríkisstjórninni.
Rækjuverksmiðjan á ísafirði eyk-
ur framleiðslu sína hröðum skref-
um, og þykja rækjur iar, hin besta
vara. Er eftirspurnin eftir þeim
vaxandi, bæði á innlendum og er-
lendum markaði.
Síldarafii hefir verið nokkur á
Austfjörðum undanfarið. — Verk-
smiðjan á Norðfivði hefir oft ekki
haft undan að bræða þá síld,
sem til hennar hefir borist. Talið
er að varðskipið »Pór« hafði í
sumar — á rannsóknarför sinni í
leit eftir nýjum fiskimiðum — fund-
ið góð karfamið fyrir Austurlandi.
Sé [svo, sem vonandi er, mun
þarna skapast ný atvinnugrein fyrir
Austfirðinga og nægilegt verkefni
fyrlr verksmiðjurnar á Norðfirði og
Seyðisfirði, en verið er nú að
byggja nýja verksmiðju á síðartalda
staðnum og á hún að verða full-
gerð í haust.
Úr bæ og bygð.
Útvarpið. í kvöld fiytur Þórhallur
Porgilsson áframhald af erindi þvl
er hann flutti í síðustu viku. Annað
kvöld talar Pétur G. Guðmundssou
um samgönguleið til Borgarfjaröar.
Á Fimtudaginn talar Óskar garðyrkju-
fræðingur Vilhjálmsson um jurtasjúk-
dóma. Á Föstudaginn flytur Björn
Sigfússon erindi um Sigurð slembi-
djákn og Sverri prest. Og á Laug-
ardagskvöldið verður lesið upp úr
bréfum Tómasar Sæmundssonar,
Alþj’ðumaðurinn vill enn skora á
fólk að útvega sér alþýðutrygginga-
lögin og kynna sér þau vel. Þau
eru að koma út í Alþýðublaðinu og
þaö fæst á afgreiðslu Alþýðumanns-
ins.
Um he'gina var síldveiðin orðin
yfir 900 þús. hl. í bræðslu og
143,420 tunnur i salt, Á sama tíroa
í fyrra var bræðslusíldin rösklega
500 þús. hl. og saltsíldin 29 þús.
Litil sild hefir veiðst síðustu daga.
Síldarútflutningsnefnd hefir upphafið
takmarkanir á verkun matésíldar af
hverju skipi og hækkað veiðileyfi
þeirra með því skilyrði að þau mat-
éssalti helming veiðinnar eða meira.
Línuveiðarann »0rninn« frá Hafn-
arfirði vantar. Eru menn hræddir
um að skipið hafi farist á Laugar-
daginn, en þá var hvasst og vond-
ur sjór fyrir Norðurlandi
Nýjar
Kartöflur
fást í
Kaupfél. Verkamanna.