Alþýðumaðurinn - 23.03.1937, Blaðsíða 1
OrO og athafnir Alþjrðnflokksins.
AlþýðutlokksfuIItrúarnir flytja á Alþingi frumvörp til laga um
uppgjör Kveldúlfs og breytingar á stjórn Landsbankans, til að
komaí vegfyrir hið svartasta bankahneyksli, semfulltrúar Sjálfstfl.
og Framsókn eru að makka um að framkvæma í sameiningu.
Sjálfstæðisflokkurinn kallar þetta ofsóknaræði éegn
Thorsfjölskyldunni en Framsóknarflokkurinn veit
ekki enn í hvern fótinn hann á að stíga, —
AlhíSuflokkarifln hefir þjóðina á bak við sig.
Pað er ekki að ástæðulausu að
ekki er um annað taiað í landinu
bessa síðustu daga en Kveldúlfs-
hneyksiið svokailaða. — Pað er
ekki nóg með það, að öli við-
skifti Kveldúlfs og bankastofnana
landsins eru reginhneyksii, heldur
iítur út fyrir að tveir stærstu
fiokkar iandsins ætli að dragast
svo inn í þessi mál að fullkomið
stjórnmálalegt hneyksli sé að.
Útvegsbankinn hefir nú höfðað
víx imál á hendur Kveldúifi. í Út-
vegsbankanum átti þetta fyrirtæki
-"víxla í óreiðu upo á ca. 1 milj.
króna. Verði Kveldúlfi ekki bjargað
frá þessu máli, liggur ekkert annað
en gjaldþrot hans fyrir, en nú þykir
það nokkurnvegin vitað að þeir
Thorsarar og , Landsbankastjórnin
séu að makka um að Landsbank-
jnn bæti þessari skuld ofan á
skuldasúpu Kveldúlfs við Lands-
bankann, ásamt fleiru, sem síðar
verður minnst á í þessari grein.
Viðskifti Kveldúlfs við Lands-
bankann hafa verið opinbert hneyksli
i mörg ár. Alþýðublaðið í Reykja-
vík hefir flett ofan af þvt svo að
það er nú kunnugt allri þjóðinni
og sýnt með óhrekjandi rökum
fram á eftirfarandi staðreyndir um
rekstur þessa mesta fjársvikafyrir-
tækis, sem þekkst hefir hér á landi,
að dregnar hafa verið út úr fé-
laginu á undanförnum árum stór-
kostlegar fjárupphæðir, að minnsta
kosti 2 miljónir króna, sem sum-
part hafa verið lagðar í önnur
braskfyrirtæki, en sumpart farið í
lúxushús og óhófseyðslu fram-
kvæmdastjóra Kveldúlfs;
að Thor Jensen hefir verið greidd
sem eítirlaun, eftir að hann hætti
að starfa við fyrirtækið, upphæð,
sem nemur með vöxtum allt að 7s
miljón króna;
að 5 framkvæmdastjórar fyrir-
tækisins, bræðurnir Thors, skulda
því upphæð, sem með vöxtum
nemur einnig að minnsta kosti Vs
miljón króna;
að Kveldúlfur skuldaði Lands-
bankanum fyrir jólin rúmar 5 milj.
króna og að allar skuldir hans til
samans væru nú komnar hátt á 7.
miljón króna.
Flestar þessar ákærur hefir Ól-
afur Thors orðið að játa opinber-
lega og það stendur ómótmælt af
háifu hans og bankanna, að félagið
vanti nú minnst tvær miljónir kr.
til þess að eiga fyrir skuldum.
Á sama tíma, sem Landsbankinn
innheimtir skuldir miskunnarlaust
hjá hinum smærri lántakendum
sínum og stöðvar hlutfallslega vel
stæð fyriríæki, þá ætlar hann blygð-
unarlaust að halda áfram að ausa
miljónum af fé þjóðarinnar í þetta
fjárglæfrafyrirtæki, sem ekki einasta
hefir sóað fé þjóðarinnar, heldur
einnig látið skip sín liggja að-
gerðalaus um hábjargræðistímann
og þannig- svift fjölda manns at-
vinnu af pólitískum ástæðum.
Það er sannað að forráðamenn
þessa fyrirtækis, sem sannanlega
eiga ekki lengur einn einasta eyri
í því, hafa leyft sér að taka af því
fé, sem þjóðbankinn hefir lánað
því til atvinnustarfsemi, til eigin
þarfa, og það er upplýst af sjálf-
um samherjum þeirra, að þeir hafa
notað það fé til þess að kaupa upp
heil kjördæmi og til annarar póli-
tískrar starf-semi.
Pað myndi nú mörgum finnast,
að lengra en þetta væri ekki hægt
að ganga. En það lítur út fyrir að
stjórn Landsbankans og banka-
stjórar telji bikar hneykslanna hvergi
nærri barmafullan. Eins og áður
er getið, hefir Útvegsbankinn höfðaðr
víxilmál á Kveldúlf.