Alþýðumaðurinn - 26.06.1940, Side 3
ALPÝÐUM AÐURIN N
3
Slldveiðarnar
eru að hefjast.
Síldarverksmiðjur ríkis-
ins taka á móti síld fyrir
12 krónur má/ið — fyrsta
greiðsla fyrir málið —
og uppbót síðar, efsamn-
ingarnir við Breta gera
það kleytt. Alit óvist um
sí/darsöltun enn, — Hvað
verður um sumaratvinnu
Glerárþorpsbúa ef Krossa
nesverksm. startar ekki.
Síldveiðaskipin eru að leggja út
á veiðar. Síld hefir sést vaða í
stórum torfum austur við Langanes.
Ríkisverksmiðjurnar hafa ákveðið
að taka á móti síld nú þegar og
greiða 12 krónur fyrir málið við
móttöku, og uppbót síðar ef hag-
kvæmir samningar nást við Breta
um kaup þeirra á síldarafurðun-
um.
Allt er óvfst enn um verkun og
sölu á sallsíld. Verið er að reyna
að selja matjessíld til Ameríku.
Sala til Svíþjóðar, Finnlands og
Rússlands hefir líka verið reynd,
en allt er óvíst um endalok þess-
ara mála enn. Tunnur og salt
vantar inn í landið. Útflutningur
síldar austur um haf verður máske
ómögulegur vegna siglingatálmana
eða máskealgers banns.
Þegar þessi mál eru rædd vakn-
ar eðlilega sú spurning: Síarfar
Krossanesverksmiðjan, og ef ekki,
hvað verður þá um sumaratvinnu
þeirra manna, sem þar hafa
unnið undanfarin sumur og af-
komu þess íólks, sem hefir haft
lífsuppeldi sitt frá verksmiðjunni?
Hér er alvarlegt mál á ferðinni,
sem varðar afkomu Glerárþorpsins,
sem myndast hefir utan um verk-
smiðjuna. Enn sem komið er mun
ríkið ekki treystast til að starfrækja
verksmiðjuna. Bæði er enn ekki
bundinn endi á samningana við
Breta, og togararnir, sem aðallega
kæmu til greina að leggja síld upp
hér innra, munu flestir sigla með
ísfisk til Englands í sumar. Um
norsk skip er ekki að ræða í ár,
en þau hafa fóðrað Krossanesverk-
smiðjuna að ‘U hlutum undanfarin
ár. Verður að gera ráð fyrir að
einkis verði látið ófreistað til að
bæta úr vandræðum þessa fólks.
Mjög veltur á að síldveiðin lán-
ist vel í ár. Enn, sem fyrr, getur
hún bjargað landinu. Þess vegna
fylgja góðir hugir allra manna síld-
veiðiflotanum, er hann lætur nú úr
höfn, með ósk um að hann megi
verða fengsæll og fiskimennina
hendi engin óhöpp.
Ábyrgðarmaöur.
Erlingur Friðjónsson.
Prentamiðja Bjöma Jóuaaoaar.
Sunlight^sápa
Lux-sápa
Vim í dósum
Radion
Rinso
Kom með e. s.
Brúa»-fossi.
Kaupfél. Verkamanna
Blikkbalar og Blíkkfitur
koma með Súðinni. —
Kauptél.Verkamanna
Myndavél tapaðist á Tang-
anum fyrir nokkrum dögum. Skilvís
finnandi er vinsamlega beðinn að
skila Iienni til Þorst. Svanlaugsson-
ar, Norðurgötu 15.
Tilkynning.
Vegna mikillar verðhækkunar á lyfjym og daggjaldahækk-
unar á sjúkrahúsum, hefir stjórn sjúkrasamlagsins ákveðið
að iðgjöídin hækki 1. júlí næstkomandi úr kr. 3.00 í
kr. 3.50 á inánuði.
Sjúkrasamlag Akureyrar.
A kureyrarka upsta ð ur
Tilkynnmgum innheimtu útsvara
Þar sem bæjarstjórn Akureyrar hefir samþykkt að haga
innheimtu útsvara í Akureyrarkaupstað samkvæmt á-
kvæðum laga nr. 23, 12. febr. 1940, er hér með vak-
in athygli útsvarsgreiðenda á því, að frá næstu mán-
aðarmótum verða útsvör fastráðinna starfsmanna og
launþega, sem ekki hafa þá greitt fyrri hluta útsvars
síns fyrir yfirstandandi ár, krafin hjá þeim, sem hafa
með höndum kaupgreiðslur þeirra. — Ber kaupgreið-
endum þá skylda til að halda eftir af hverri launaút-
borgun hluta af útsvarinu samkvæmt nánari kröfu bæj-
argjaldkerans.
Bæjarstjórinn á Akureyri, 20. júní 1940
Ste/nn Steinsen.
i