Alþýðumaðurinn - 08.05.1945, Qupperneq 1
uriusx
XV. árg.
Akureyri, Þriðjudaginn 8. Maí 1945
19. tbl.
Styrjðldioiii í Errðpu lokið
Herveldi nasismans V - - — ----T-r
Wmm- hrunið í fústii : .:
Hver undirokaða þjóðin af annari endur-
lieinita frelsi sitt. .
TÍMI FRIÐARINS FRAMUNDAN
þúsunda, gefast upp fyrir B.anda eigin hendur framkvæmd þess. mönnum. Dómstólar vorir verða að fjalla 2. þ. m. fóru Bretar inn í um málin. Ilér er réttarríki.“ Hamborg — stærstu hafnarborg Breskar hersveitir komu loft-
CHURCHILL jorsœtisráðherra Bretlands Þýskalands — án mótspyrnu leiðis til Kaupmannahafnar á frá Þjóðverja hálfu. Svo kom til- Laugardaginn og á Sunnudaginn
Það hefir ekki verið auðvelt
að rita niður erlendar fréttir
undanfarna viku. Hver stórvið-
burðurinn hefir rekið annan, og
varla hefir blekið verið orðið
þurt úr pennanum þegar nýir
viðburðir hafa gert það úrelt,
sem áður hefir verið ritað.
Eitt er þó staðreynd, sem í
bili stendur óhaggað. Vopnavið-
skiftum er lokið hér í álfu. Hrun
herveldis Hitlers-Þýzkalands er
algert. Og undirokuðu þjóðirnar
heilsa fagnandi endurheimtu
frelsi.
Máske væri rétt að láta hér
staðar numið. Viðburðirnir eru
stærri og áhrifaríkari en það, að
orðin túlki þá til fullnustu. En
rás viðburðanna hefir, í stórum
dráttum verið þessi:
27. f. m. gafst Ítalía upp fyrir
fullt og allt. Mussoline og nán-
ustu fylgifiskar hans teknir af
lífi.
2. Maí féll Berlín fyrir fullt
og allt fyrir Rauða hernum. For-
ingjar nasista hverfa af sjónar-
sviðinu. Sagðir hafa framið
sjálfsmorð. Nöfn eins og Hitler,
Göring, Göbbels, Himler, og
hvað þeir nú allir heita, nasista-
glæpamennirnir, tilheyra liðna
tímanum — að því er upp er
gefið.
Svo fylgja á eftir sömu frétt-
irnar svo að segja á klukkutíma
fresti. Þúsundir þýskra her-
manna, tugir þúsunda, hundruð
kynning um kvöldið 4. þ. m.:
Þýski herinn í Norðvestur-
Þýskalancli með úteyjum, Norð-
ur-HoUandi og Danmörku hefir
gefist upp fyrir Bretum. Sama
kvöldið var mynduðu stjórn í
Danmörku. Forsætisráðherra er
jafnaðarmaðurinn Buhl, sá er
tók við er Stauning andaðist.
— Utanríkismálaráðherra er
Christmas Möller. Morguninn
eftir ávarpaði konungur þjóð
sína. Einnig forsætisráðherrann.
Afskaplegur fögnuður var með-
al íbúa Danmerkur. Allt kvöld-
ið og alla nóttina var krökkt af
syngjandi og fagnandi fólki. —
Máske túlka eftirfarandi orð úr
ræðu forsætisráðherrans best
undirölduna í gleði fólksins,
næst vissunni um það, að stjórn-
arfarslegt frelsi var endurheimt.
Honum fórust meðal annars
orð á þessa leið:
„Landið stendur í skrúða og
sundin eru blá. Þjóð vor altekin
innilegum fögnuði. Vér höfum
öðlast frelsið eftir fimm þung-
bær ár. Oss býr ekki hatur í
brjósti, heldur gleði og þakkar-
gjörð.“
Þau eru látlaus þessi orð, en
segja þó meir en yfirborðs-
mælgi. En Danir krefjast rétt-
lætis, og ætla að beita því gagn-
vart þjóðníðingum og morðingj-
um. Um það sagði ráðherrann:
„Réttlætið verður að fram-
kvæma gegn þeim, sem svikið
hafa þjóð sína á þungbærum
stundum, en enginn má taka í
landhersveitir frá Þýskalandi. í
gær var búið, að vinna bug á
síðustu mótspyrnu S.S.-manna í
Danmörku. Á Sunnudaginn fékk
útvarpið fyrsta fréttaskeytið frá
K.höfn síðan Danmörk var her-
numin. í því stóð að engin ís-
lendingur hefði biðið tjón í síð-
ustu átökunum þar.
í gær var opnað skeytasam-
band milli íslands og Danmerk-
ur, og íslands og Frakklands.
* Danir telja að hernámið hafi
bakað landinu 12 miljarða og
5 hundruð miljóna króna út-
gjöld.
í gærmorgun var tilkynnt að
eftirmaður Hitlers hefði kallað
alla kafbáta Þýskalands heim
og fyrirskipað þeim að hætta að
herja.
Kl. 14 var aftur tilkynnt frá
London, að Þjóðverjar í Noregi
hefðu gefist upp fyrir þríveld
unum, skilyrðislaust. Var þá
aðeins barist í hluta af Tjekko
slóvakiu. Neituðu þýskar her
sveitir að gefast upp fyrir Rúss
um, þrátt fyrir skipanir yfirher
stjórnarinnar að leggja niður
vopn.
I dag er sigurdagur í Eng-
landi. Kl. 13 flytur Vindson
Churchill stutta ræðu. Kl. 19
flytur Bretakonungur útvarps-
ræðu.
í gærkvöldi lá stór bresk
flotadeild úti fyrir Oslóarfirði.
Þegar tilkynnt hafði verið á
Laugardagsmorguninn, að Dan-
mörk væri orðin frjáls, voru
EISENHOWER
yfirmaður herja Bandamanna í Evrópu
dregnir fánar að hún í öllum
kaupstöðum landsins. Hér á Ak-
ureyri var flöggunin svo alger
að varla mun hafa fundist auð
fánastöng í bænum. A tveim
stöðum á landinu voru haldnar
hátíðasamkomur í tilefni af þess
um atburði. Þegar tilkynnt var
í gær, að Noregur væri frjáls,
voru fánar samstundis dregnir
að hún, og víða var búðum og
skrifstofum lokað það sem eftir
var dagsins, og frí gefið í skól-
um landsins.
Forseti Islands hefir sent kon-
ungi Danmerkur samfagnaðar-
kveðju vegna frelsunar lands og
þjóðar, og utanríkismálaráð-
lierra hefir sent utanríkismála-
ráðherra dönsku stjórnarinnar
samskonar kveðju.
Danska þingið kemur saman
til fundar á morgun. Almennar
kosningar eru ráðgerðar svo
fljótt sem við verður komið.
„Þá er nú eftir, þyngst hvað
er, og það er að standast reikn-
inginn“ stendur í gömlu vísunni
Hitlers-Þýskaland er úr sögunni.
Hakakrossfáninn, teikn hins
svartasta ljlóðveldis heimsins,
blaklir ekki lengur yfir neinni
þjóð. En hvernig gengur friðar-
og uppbyggingarstarfið að ó-
veðrinu slotuðu?
Þannig spyrja nú þjóðirnar,
og, því miður, er útlitið allt ann-
Framhald á 4. síðu.