Alþýðumaðurinn


Alþýðumaðurinn - 26.06.1945, Qupperneq 2

Alþýðumaðurinn - 26.06.1945, Qupperneq 2
2 ALÞÝÐUMAÐURINN Þriðjudaginn 26. Juní 1945 Átökin í Kaupfélagi Siglfirð- inga voru ekki á enda með það sem sagt var frá í síðasta blaði og kemur betur og betur í ljós með hverjum degi sem líður, að það er flokksforusta kommún- ista í höfuðstaðnum, sem stend- ur á bak við hinar fádæina að- farir kommúnista í K. S. Brottrekstrum úr félaginu hef ir haldið áfram. Auk þeirra 29 fulltrúa, sem sagt var frá í síð- asta blaði,hafa kommúnistar rek ið 41 mann úr félaginu. Einnig hafa þeir rekið framkvæmda- stjóra félagsins og sett í hans stað nýjan mann — Framsókn- .armann — sem sýnt hefir „skiln ing“ á nauðsyn þess, að hefja þær framkvæmdir, sem þeir Þór oddur og Jörgensen að til í félaginu. Meiri hluti hinna löglega kosnu fulltrúa á aðalfund félags ins, og viðurkennda af stjórn og fyrsta aðalfundi, hafa haldið honum áfram, kosið stjórn og fulltrúa á aðalfund S. í. S., sem hafa þar verið teknir gildir full- trúar félagsins, og ráðstafað mál um félagsins til bráðabirgða, eftir því sem við hefir átt á því stigi málsins. í öðru lagi hefir kommúnista- partíið haldið fundi í þeim deildum, sem þeir urðu í minni- liluta í hinum löglegu kosning- um og hafa kosið þar nýja full- trúa á aðalfund!! Hafa fundir þessir verið afar illa sóttir, enda litið á þá sem markleysu, líka af fylgismönnum kommúnista. Síð an hafa þeir kommar haldið sinn aðalfund, og kváðu enn hafa „hreingerningar“-störf í undirbúningi enn víðtækari en áður. Hefir Áki Jakobsson, at- vinnumálai-áðherra komið á stað inn til styrktar „félögunum“, lit- ið yfir verk þeirra og séð að þau hafa verið harla góð. Vafalaust eiga þessi mál eft- ir að fara til dómstólanna. Einn- ig mun S. í. S. tilneytt að rann- saka þau. Það er því fullvíst að frétta er að vænta frá Siglufirði á næstunni og mundi þó mörgum þykja ærið nú þegar. Gaman er að athuga skrif kommúnistablaðanna í sam- bandi við þessi mál. Þar gefur að líta kommúnistafjólur eins og „skemmdarverkamenn“, ,?breið- fylkingu“, „fasista4 ‘ og annað það, sem kommúnistar skreyta mótstöðumenn sína með. Er reynt eftir megni að breiða yfir það, sem er undirstaðan undir hinum fáheyrðu aðförum of- stopamannanna í K. S. en það er skefjalaus einræðishneigð og pólitísk fantatök, sem kommún- istar beita alstaðar, sem þeir þykjast geta komið því við. Aðfarir kommúnista á Siglu- firði eru ekkert annað en það, sem þeir ætla að beita alstaðar, bæði í samvinnufélagsbreyfing- unni og í verklýðshreyfingimni og í verklýðsfélögunum hvar sem þeir eiga klæki sína að verja. Það þarf enginn að vera svo eiijfaldur að halda að þeir virði lýðræði, félagslög eða ein- staklingsrétt. Einræði og hnefa- réttur er það, sem þeir ætla sér að beita. Og einmitt þetta er það sem er undirstaðan undir þeirri I samvinnu milli kommúnista og þess hluta Sjálfstæðisflok-ksins, sem á sínum tíma hallaðist að nasismanum á áberandi hátt. Sama vanda- lálið og áður Fyrir styrjöldina var það eilt erfiðasta vandamálið, sem við var að glíma á atvinnumálasvið- um, að fá atvinnu fyrir unglings- pilta frá 15—18 ára aldurs. Or- sakir til þessa hafa oft áður ver- ið skýrðar hér í blaðinu, en þær voru aðallega þær, að piltarnir á þessum aldri eru of gamlir til að vera léttadrengir í sveit, en of ungir til að standast samkeppni við fullorðna menn í algengri erfiðisvinnu. Á kreppuárunum fyrir stríð voru gerðar tilraunir til að bæta úr þessu böli — því böl er það, að æskumenn skuli skorta verk- efni — með því að efna til sér- stakrar vinnu handa þessum pilt um, helst við vegagerð og þess- háttar. Þegar setuliðið kom hingað til lands og fjör hljóp í atvinnu- vegina, skapaðist vinna fyrir piltana, enda eftirspurn eftir vinnukrafti víðast í landinu allt fram á síðari hluta síðasta árs. Nú virðist þetta vandamál vera komið til sögunnar aftur. Ekki enn eins sorglega víðtækt eins og fyrir stríð, en sígur þó auðsjáanlega á ógæfuhliðina. Vinnumiðlunarskrifstofan hef ir í vor ekki getað útvegað pilt- um á þeim aldri, sem fyr ræðir um, vinnu, þrátt fyrir töluvert starf í þá átt og hjálp bæjarverk- stjórans að taka unglinga í bæj- arvinnu eins og framast er unnt, enda er mörg erfiðisvinna alls Héðan \ og þaóan S. 1. Miðvikudag lagði m. s. Esja af stað frá Reykjavík, á- leiðis til Danmerkur. Er förinni aðallega heitið lil að sækja Is- lendinga, sem bíða heimferðar, flestir í Danmörku. Með skipinu voru 100 farþegar, en einnig var það hlaðið varningi frá Norðurlandasöfnuninni og um 3000 pökkum frá einstaklingum hér heima til vina og vanda- manna ytra. Á heimleið mun Esja koma við í Gautabórg. Er hennar von einhvern fyrstu dag- ana í Júlí, og þá með um 250 farþega. „Helsingi“ heitir blað, sem Steindór Sigurðsson, rithöfuríd- ur Kristneshæli er nýbyi'jaður að gefa út. Segir svo um stofnun og starf blaðsins í forspjalli þess: „Það mun aðeins fara und- ir einu merki — aðeins fylgja óskift og stöðuglega með einni grundvallarlínu — og gera það svo langt, sem geta þess og möguleikar frekast mega. Það er undir merki frjálsrar og fordómalausrar lmgsunar, sem það skipar sér.“ Einnig segir þar að blaðið telji sér ekk- ert „mannlegt óviðkomandi, hverju nafni sem nefnist ....“. Á þessu sést að blaðið er ekkert hversdagsfyrirbrigði. Undanfarið hafa mörg þing verið háð í höfuðstað landsins og í nánd við hann. Þing ungra Framsóknarmanna, Landsþing Sjálfstæðisflokksins og þing ungra Sjálfstæðismanna, Kenn- araþing, Stórstúkuþing, Ung- lingaregluþing, Aðalfundur Sambands íslenskra samvinnu- félaga, og fkindir ýmissa annara samkunda. ekki fyrir óharðnaða unglinga, sem koma frá skólaborði og eiga að setjast að því aftur á haust- nóttum. Það er engum vafa undirorp- ið, að það verður að vera hlut- verk hins opinbera að hugsa æskumönnunum fyrir starfi að sumrinu. Sú vinna getur verið og á að vera þáttur í uppeldis- og menningarmálum æskunnar. Það er viðurkennt af öllum nú orðið að atvinnuleysinu verði að bægja frá dyrum hvers full- vinnandi manns. Það sé hagur þjóðfélagsins ekki síður en ein- staklingsins. En hvað er þá um æskuna? Ekki leggst atvinnu- og athafnaleysið léttar á hana. Kvenfélagið „Framtíðin“ efndi til Jónsmessuhátíðar hér í bænum um helgina. Var hátíða- svæði búið á túnunum sunnan við sundlaugina með tjöldum, danspalli og alls-konar tilfær- ingum. Einnig var Gagnfræða- skólahúsið til afnota. Fóru þarna fram margskonar skemmtanir og veitingar seldar á Laugar- dagskvöldið og Sunnudaginn út- lærðar af ýmsum bestu skemmti- kröftum bæjarins. Sótti þetta fjöldi manns. Þeim ágóða af há- tíðahöldunum, sem mun hafa orðið all ríflegur ætlar félagið að verja til styrktar fjórðungs- ijúkrahúsinu, sem reisa á hér í bænum, ef bæjarstjórn finnur einhverntíma stað fyrir það. Sumarstarj fyrir ungar stúlkur — eldri en 12 ára — verður að þessu sinni að Litlutjörnum í Ljósa- vatnsskarði og hefst Laugardag- inn 30. þ. m. Nánari upplýsing- ar gefur Guðrún Sigurgeirsdótt- ir, Bjarmastíg 13, milli kl. 6 og 7 síðdegis. Dánardœgur Á Sunnudaginn var andaðist á sjúkrahúsinu hér ungfrú Karl- ína Einarsdóttir, útgerðar- manns, vel látin dugnaðarstúlka. Þá er nýlátinn Guðmundur Sig- urgeirsson, fyrrum bóndi að Dæli, háaldraður maður. 17. þ. m. voru 7 stúdentar brottskráðir úr Verslunarskóla Islands. Eru þetta fyrstu stú- dentarnir, sem þessi skóli út- skrifar. Barnakórinn Sólskinsdeildin hefir verið á söngför um norður- og austurland undanfarið. Hér á Akureyri söng „deildih“ tví- vegis við góða aðsókn og við- tökur. r r r Arsþing I. S. I, og Íslandsglíman fara fram á Akureyri í lok mán- aðarins eins og áður heí'ir verið auglýst. Þingið verður í Sam- komuhúsi Akureyrar, Bæjar- stjórnarsalnum — og verður sett kl. 2 e. h. Fimmtud. 28. þ.m. Íslandsglíman verður Föstudag- inn 29. þ. m. og hefst kl. 8,30 e. h. Fer hún fram á sýningar- pallinum á túnunum sunnan við sundlaugina, ef veður leyfir, annars í Samkomuhúsinu. 6 félög hafa tilkynnt þátttöku 15 keppenda samtals. Þar af eru 5 Þingeyingar. Meðal keppenda er núverandi glímukóngur, Guð- mundur Ágústsson. — Fulltrúar á ársþingið og keppendur frá Reykjavík koma væntanlega til Akureyrar á Miðvikudagskvöld.

x

Alþýðumaðurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðumaðurinn
https://timarit.is/publication/597

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.