Alþýðumaðurinn - 09.10.1945, Page 1
|}l|)í|íiuma<>uruu\
XV. árg. Þriðjudagur 9. Október 1945. 41. tM.
FjársöínnoRanðaKrossIslands Norsku kOSnÍDDamar
til hjálpar bágstöddum íslendingum, seiií
dvalið hafa í ófriðarlöndunum.
Alþýðuflokkurinn hefir aukið fylgi sitt alstað-
ar. Er langstærsti flokkurinn. Hægri flokkarn-
ir hafa tapað stórlega. Hægrimenn mest. -
Kommúnistar minnsti flokkurinn. - Heildar-
úrslit verða kunn í dag.
Á Sunnudaginn var kallaði
formaður Rauða-Krossdeildar
Akureyrar, herra Guðm, Karl
Pétursson, sjúkrahúslæknir,
blaðamenn á sinn fund og skýrði
þeim frá ákvörðun Rauða-Kross
ins hér á jandi að stofna til fjár-
söfnunar handa íslendingum, er
dvalið hafa og dvelja enn í ófrið
arlöndunum. Beitir Rauða-Kross
deildin sér fyrir söfnuninni hér
í bænum og mun hún hefjast nú
þegar.
4. þ. m. sendi Rauði-Kross
íslands út ávarp til þjóðarinnar
í tilefni af söfnuninni. Og af því
það skýrir málið í öllum aðal-
atriðum verður það birt hér í
heild. Hljóðar það svo:
„Rauði korss íslands hefir á-
kveðið að beita sér fyrir fjár-
söfnun til bágstaddra íslendinga,
sem dvalið hafa í ófriðarlönd-
unum á undanförnum ái’um, eða
hafa í hyggju að dvelja þar á-
fram, en hafa orðið hart úti af
völdum ófriðarins.
Eins og kifnnugt er, sendi
Rauði krossinn fulltrúa til meg-
inlands Evrópu í sumar í þeim
tilgangi, að hafa upp á og lið-
sinna þeim löndum vorum, er
kynnu að vera hjálpar þurfi.
Hefir eftirgrennslan þessi reynst
mjög vandasöm, en nú þegar
borið eigi svo lítinn árangur.
Yfir 20 manns mun þegar komið
hingað til*lands fyrir milligöngu
fulltrúa Rauða krossins, Lúðvígs
Guðmundssonar skólastjóra, og
eru fleiri væntanlegir. Er Lúð-
víg nú sem stendur á ferðalagi
í Tékkóslóvakíu í þeim tilgangi
að komast í samband við þá ís-
lendinga, er þar dvelja. Meðal
þess fólks, sem komið er hingað,
eru íslenskar konur með böm
sín. Eiginmenn þeirra dvelja á-
fram erlendis. Hafa sumar af
fjölskyldum þessum verið mjög
illa leiknar af völdum ófriðar-
ins, misst aleigu sína oftar en
einu sinni og eru nú loks hafn-
aðar í föðurlandi sínu, fyrir-
vinnulausar og sumar án að-
standenda, í þeim tilgangi, að
forða sér og börnunum frá
hungri og kulda, sem líklegt má
telja, að ríki í heimkynnum
þeirra fyrst um sinn.
Þá standa yfir samningar milli
Rauða kross íslands og Danska
rauða krossins um reglulegar
matvælasendingar til bágstaddra
landa vorra, er dvelja áfram á
meginlandi Evrópu næstkomandi
vetur.
Þessi starfsemi Rauða kross-
ins hefir orðið mjög kostnaðar-
söm og mun hafa áframhald-
andi útgjöld í för með sér. Þess
vegna hefir hann ákveðið að
snúa sér til þjóðarinnar og hefja
fjársöfnun handa hinu bág-
stadda fólki. Mun öllu því fé,
er safnast kann nú, verða varið
einvörðungu til þessarar starf-
semi Rauða krossins.
íslenska þjóðin hefir oft á
undanförnum árum sýnt ó-
trúlegt örlæti, er til hennar hefir
verið leitað í fjársöfnunarskyni.
Hér er um að ræða að styrkja
hrakta og hrjáða landa vora, er
hafa, sumir hverjir orðið að líða
meiri hörmungar á undanfarandi
stríðsárum en orð fá lýst, og
koma í veg fyrir harðrétti og
hörgulsjúkdóma meðal þeirra,
er enn dvelja þar, sem ófriður-
inn hefir geysað.“
Fyrst um sinn verður söfnun-
inni hér hagað svo, að bókabúðir
bæjarins og skrifstofur blaðanna
taka á móti gjöfum. Mun enginn
vafi á því leika, að fólk muni
sýna sama örlæti .og við undan-
farnar safnanir handa bræðra-
þjóðunum. Munið, að ef fjöld-
inn lætur eitthvað af mörkum
(hver maður) verður söfnunin
rífleg, þótt ekki sé há upphæð
frá hverjum einum.
Skömmtun á mjólk hefir
verið fyrirskipuð í Reykjavík
og Hafnarfirði. Skammturinn er
1 lítri á dag handa barni 14 ára
og yngri og ca. 1. handa full-
orðnum. Er mjólkin afhent eftir
skömmtunarseðlum. Að þeim
afgreiddum má síðari hluta dags
selja mjólk hverjum sem er.
Kosningar til norska ríkis-
þingsins fóru fram á Sunnudag-
inn var. Voru þetta fyrstu kosn-
ingarnar síðan 1936. Fréttir í
gærkvöldi hermdu að kjörsókn
hefði verið dræm fyrri hluta
dagsins, en fór vaxandi er á leið.
Fréttir í morgun hermdu, að Al-
þýðufl. hefði aukið fylgi sitt
stórlega í sveitunum. Er þar þeg
ar orðinn stærsti flokkurinn
sumstaðar. Þá hefir kristilegi
þjóðflokkurinn aukið fylgi sitt.
Þær tölur sem lágu fyrir í morg-
un sýndu að Alþfl.hafði 112 þús
atkv. af um 300 þús. sem kunn
voru. Hinir flokkarnir hefðu frá
15—55 þús. hver. Kommúnist-
ar lægstir. Fengu ekkert atkv.
í sumum kjördæmunum, en
buðu þó alstaðar fram. ókunn-
ugt var um úrslitin í borgum og
stærstu bæjum þegar fréttir voru
sagðar í morgun.
Er auðséð að Alþýðuflokkur-
inn verður langstærsti flokkur-
inn í landinu, eins og hann var
áður, ög jnun framvegis fara
með stjórn landsins, þó hann
máske fái ekki hreinan meiri
hluta.
Góðir gestir
eru væntanlegir hingað nú í vik-
unni, ef ófyrirsjáanlegar tálm-
anir standa ekki í vegi. Eru það
þau hjónin Dóra og Haraldur
Sigurðsson, en þau eru nýlega
komin til landsins og hafa haft
hljómleika í Reykjavík undan-
farið við mikinn fagnað áheyr-
enda.
Ráðgert er að þau hjónin hafi
hér að minnsta kosti tvo hljóm-
leika og mun vera farið að selja
aðgang að þeim nú þegar. Þarf
ekki að efa að fjölmenni muni
sækja þenna einstæða listavið-
burð.
Á Sun(nudaginn andaðist á
Vífilstaðahæli Jón skáld frá
Ljárskógum. Jón var þjóðkunnur
fyrir fagra ljóðagjörð, og var
listamaður á fleíri sviðum.
Eimskipafélag íslands er nú
að semja um smíði 5 skipa til
millilandasiglinga. Munu þau
verða fullbúin á þremur næstu
árum.
o—o
Það tilkynnist vinum og vandamönnum, að fósturdóttir mín
Friðrika Jónsdóttir
andaðist á sjúkrahúsi Akureyrar Sunnudaginn 7. þ. m.
Jarðarförin tilkynnt síðar.
Sigurlaug Jónsdóttir.
Jarðarför föðursystur okkar
Kristjönu Jónatansdóttur
fer fram frá Akureyrarkirkju fimmtudaginn 11. okt.
kl. 1,30 e. h.
Gerður Jónsdóttir, Helga Jónsdóttir, Hlín Jónsdóttir,
Guðrún Jónsdóttir.