Alþýðumaðurinn


Alþýðumaðurinn - 09.10.1945, Síða 3

Alþýðumaðurinn - 09.10.1945, Síða 3
Þriðjudagur 9. Október 1945. 3 ALÞÝÐUMAÐURINN Utgefandi: Alþýðuflokkslélag Akureyrar Ábyrgðarmaður: Erlingur Friðjónsson Blaðið kemur út á hverjum Þriðjudegi Af greiðslumaður: Jón Hinriksson, Eiðsvallagötu 9 Árgangurinn kostar kr. 10.00 Lausasöluverð 30 aurar Prentsmiðja Björns Jónssonar h.f. TIL MINNIS Opinberar skrifstofur opnar: Baejarfógetaskrífstofan 10—12 og 1—3 Skrifstofur bæjarins 10—12 og 1—5 — byggingafulltrúa 11—12 —- framfœrslufulltrúa 4 %—5% — jarðrsektarráðunauts 1—2 Skömmtunarskrifstofan 10—12 Vinnumiðlunarskrífstofan 2—5. Póststofan: Bréfastofan 10—6 Bögglastofan 10—12 og 1—5 Bankarnir opnir: Landsbankinn 10%—12 og 1%—3 Búnaðarbankinn 10%—12 og 1%—3 Útvegsbankinn 10%—12 og 1—4. Viðtalstími lœkna: Héraðsleknirinn 10%—11% Sjúkrasamlagslæknirinn 11—12 Ámi Cuðmundsson 2—4 Jón Geirsson 11—12 og 1—3 Pétur Jónsson 10—12 og 5—6 Stefán Guðnason 12%—2 og 5—6 Helgi Skúlason, augnl. 10—12 og 6—7 Friðjón Jensson tannl. 10—12, 1—3 og 4-6 Gunnar Hallgrímss. tannl. 10-12 og l%-4 Berklavarnastöðin 2-4 á Þriðju- og Föstud. Sjúkrasamlagið 10—12 og 3—6. Gufubaðstofa sundlaugarinnar: Fimtud. Konur 8—11.50 og 5—7 Karlar 2—4.50 Laugard. Konur 3—4.50 Karlar 8-11.50 og 1-2.50 og 5-7. Kaupgjald og vísitala: Almennt kaup karla .... kr. 6,95 á klst. Almennt kaup kvenna .. kr. 4,31 á klst. Kaup ungl. 14—16 ára .. kr. 4,59 á klst. Vísitala framfærslukostnaðar 278 stig. Alþýðublaðið kostar 5 krónur á mánuði fyrir áskrif- endur. Hvert sérstakt blað 40 aura. Af- greiðslan í Lundargötu 5. Er selt á Ráð- hústorgi eftir komu hraðferðanna á kvöld- in. Er einnig selt í Bókaversl. Gunnl. Tr. Jónssonar, Versl. Baldurshagi og Kaupfél. Verkamanna, nýlenduvörudeild. Alþýðumaðurinn er seldur í lausasölu í Vérsl. Baldurs- hagi og í Kaupfél. Verkamanna. — Af- greiðslan er í Eiðsvallagötu 9. Árroði blað ungra jafnaðarmanna, er blað, sem allt ungt fólk þarf að kaupa og lesa. Rteðir áhugamál unga fólksins á prúðan og frseðilegan hátt, en af fullri einurð og hreinskilnl. Blaðið kenr út mánaðarlega að vetrin- um. Árroði fœst á afgr. Alþýðublaðsins hér, Lundargötu 5. Skulull, blað Alþýðuflokksins á Vestfjörðum, fæst keypt á afgreiðslu Alþýðublaðsins hér í bænum. — Skutull er vel ritað blað og fjölbreytt að efni. Hver sá, senr fylgj- ast vill með landsmálum, verður að lesa Skutul. Vestfirðingar hafa lengi staðið framarlega í baráttu þjóðarinnar fyrir auknu frelsi, umbótum í atvinnumálum hennar og heilbrigði í félagsmálum. ALÞÝÐUMAÐURINN ---- V......... og önnur Balkanlönd. Orðin „sósíalismi" og „sósíalisti“ eru á sömu leið. Rússneska kúgunar- hagkerfið er kallað ,.sósíalismi“, og svokallaðir ungir hagfræðing- ar hérlendis blekkja þjóðina með því að halda slíku að henni í „lærðum“ ritgerðum. í raun og veru er ekkert jafn fjarlægt sósíalisma en rússneski ríkis- reksturinn sem að verulegu leyti byggist á ánauðugu fólki líkt og lénsskipulag meira „bú- mannsvit“ í því að fóðra þræl- ana betur og fata þá skár og veita þeim meiri hvíld, svo þeir endist lengur, sem nú kemur fram í rússneska hagskipulag- inu, en kom fram hjá þræla- höldurum bændaánauðarinnar fyrr meir. Sósilalismi er það ekki frekar en nationalsósíal- ismi Hitlers sáluga var sósíal- ismi. Orðið „sósíalisti“ er blátt áfram að verða skammaryrði síðan kommúnistar stálu því og fóru að flagga með því bæði hér heima og erlendis. Að kommún- istar séu sósialistar er algerlega rangt því sósíalistar stefna og hafa stefnt að auknu frelsi al- mennings á öllum sviðum, en kommúnistar stefna að aukinni kúgun sama almennings á öllum sviðum. Nú er komin til valda i breska heimsveldinu stjórn sósíalista — sósíal-demokrata — manna, sem raunverulega eru sósíalistar og munu starfa samkvæmt því. Þess mun ekki langt að bíða að þeir menn verði svívirtir af kommúnistum og taldir „fasist- ar“ og „auðvaldsþý“, á sama tíma sem „rauðu fasistunum“, sem Churchill svo nefndi, eða þessari „nýju einræðistegund“ sem Bevin talar um verður hoss- að hér í „Þjóðviljanum“ sem „frelsisher" og „endurlausnur- um“ eins og gert hefir verið að undanförnu með glæpaflokka þá; sem sumstaðar — s. s. í Danmörku — hafa vaðið uppi eftir fall Þjóðverja. Það mætti segja mér það, að það yrði jafn erfitt „utanríkis- mál“ milli Rússa og Breta áður en lýkur að fá úr því skorið hvað sé „sósíalismi" eins og það reynist nú að fá nokkurn botn í það hvað sé „lýðræði“. Rússar munu halda því fram að kommúnisminn sé hinn eini „fullkomni sósíalismi" eins og þeir halda nú fram að kommún- istaeinræðið í Rússlandi sé „hið eina sanna lýðræði“. V. Hvað finnst mönnum nú um annað eins og þetta, að það skuli geta komið fyrir á sameig- inlegum fundi þriggja ráða- mestu manna í heiminum — og það fund eftir fund — að gefn- - ar séu út sameiginlegar yfirlýs- ingar, sem blekkja íbúa jarðar- innar, byggðar á algjörlega and- stæðum skilningi á grundvallar- hugtaki yfirlýsingarinnar? Á þessum yfirlýsingum stór- veldanna byggja svo smáþjóð- irnar von sína um frelsi sem svo reynist ekki annað en hrein blekking. Ollum Balkanríkjun- um hefir verið lofað „frelsi“ og „lýðræði“. Nú fá þau „rúss- neskt frelsi“ og „rússneskt lýð- ræði“. Sama verður sagan með Pólland. Og Rússunum er alveg sama um „viðurkenningu“ Bret- lands og Bandaríkjanna á þess- um ríkjum. Þegar þau einu sinni hafa verið hneppt í þjóðafang- elsið rússneska eiga þau aldrei afturkvæmt þaðan fyrr en fang- elsismúrarnir verða sprengdir. Baltisku löndin, Estland, Lett- land og Lithauen, eru öll horfin inn fyrir fangelsismúrana án þess Bretland og Bandaríkin, hafi „samþykkt“ hvarf þeirra. Það sem því fer fram nú í Evrópu er í mínum augum bæði grátlegt og hlægilegt. Það er eins og hin miklu vestrænu stór- veldi, Bretland og Bandaríkin, séu nú fyrst að átta sig á því, að þau hafa verið á loddarasam- kundu þar sem leikið hefir ver- ið á þau hvað eftir annað. Hver maður sem af raunsæi lílur á málefni Evrópu nú, hlýtur að sjá að hin miklu vestrænu stór- veldi hafa afhent hvorki meira né minna en 10 þjóðlönd (Est- land, Lettland, Lithauen, Pól- land, Tékkóslóvakíu, Rúmeníu, Búlgaríu, Ungverjaland, Júgó- slavíu og Albaniu) und- ir hið rússneska ,,lýð- ræðisskipulag“, sem þau eru nú fyrst að „uppgötva“ að er að- eins „ný tegund af einræði“. Þetta er stærri „fasteignasala" en dæmi eru til áður í veraldar- sögunni. Er það ekki meira en grátlegt að þetta skuli vera á- vöxturinn af stórkostlegasta sigri, sem hin vestrænu lýðrœð- isríki liafa nokkru sinni unnið? í stað frelsis og mannréttinda, lýðræðis og lýðstjórnar kemur „nýtt einræði“ — en „í Rúss- landi fagna menn afrekum Pots- damráðstefnunnar“, segir Þjóð- viljinn. J. G.“ Nýlega fól dómsmálaráðu- neytið sakadómara í Reykjavík að höfða mál gegn stjórnendum og framkvæmdastjórum heildv. O. Johnson & Kaaber h. f. fyrir verðlagsbrot. Hafði rannsókn leitt í ljós að ólögleg álagning hlutafélagsins myndi nema kr. 369,855,23. Laglegur skildingur það! Vafalaust koma mál fleiri heildsala á eftir, en töluverðan tíma þarf til að rannsaka þau svo öruggt sé að enginn sleppi betur en hann hefir unnið til. Frá Alþingi er fátt að segja ennþá. Við for- setakosningu í sameinuðu þingi skeði það, að Sjálfstæðið hafn- aði Gísla Sveinssyni sem forseta, og mun hafa viljað með því sýna, að brigður hans á trúnaði við flokkinn og stjórnarsam- vinnuna, yrðu honum ekki fyrir- gefnar. Var Jón Pálmason, þing- maður Austur-Húnvetninga kos- inn forseti. í neðri deild var Barði Guðmundsson kosinn for- seti, en í efri deild Steingrímur Aðalsteinsson. Enn hafa þingstörfin aðallega gengið í að fjalla um bráða- byrgðalög ríki'sstjórnarinnar, sem settt hafa verið milli þinga. Þá hafa verið haldnir lokaðir þingfundir, þar sem búist er við að hafi verið fjallað um utan- ríkismál, með tilliti til hins breytta viðhorfs, sem skapast hefir við það hvernig málum lauk á utanríkisráðherrafundin- um í London í síðustu viku. KNATTSPYRN UMÓT NORÐLENDINGA í meistaraflokki hófst Laugard. 29. f. m. — 5 félög tóku þátt í mótinu að þessu sinni. Völsung- ar frá Húsavík, Magni úr Höfða- hverfi, Knattspyrnufélag Siglu- fjarðar og Akureyrarfélögin K. A. og Þór. — Urslit leikja urðu sem hér segir: K. A. vafhn Völsung 2 : 1 Völsungur vann Þór 3 : 2 Völsungar jafntefli við Magna 1 : 1 K. S. vánn K. A. 1 :0 K. S. vann Magna 2 : 0 K. S. vann Völsung 4 : 2 Þór vann Magna 2 : 0 Þór vann K. S. 3:1 Þór vann K. A. 3:1 Magni vann K. A. 2 : 1 K. A. hlaut 2 stig, Völsungar og Magni 3 stig hvort, K. S. 6 stig og Þór 8 stig. Þór vann því mótið og vann tréknött á útskorn um fæti til eignar. Sá knöttur var gefinn af K. A. 1940. Áður hafði K. A. unnið hann 2svar og Þór 2svar og nú í þriðja sinn. s Dómarar mótsins voru þeir: Friðþj. Pétursson, Sigm. Björos- son, Kári Sigurjónsson, Jakob Gíslason og Helgi Sveinsson. Á Þriðjudagskvöldið bauð K. A. öllum knattspyrnumönnunum ásamt formanni í. B. A. o. fl. til kaffidrykkju að Hótel KEA. Var þar sýnd kvikmynd frá Landsmóti Skíðamanna á Siglu- firði og ein norsk skíðakvik- mynd. Knattspyrnufélag Akureyrar sá um mótið að þessu sinni.

x

Alþýðumaðurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðumaðurinn
https://timarit.is/publication/597

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.