Alþýðumaðurinn - 23.10.1945, Side 3
Þriðjudaginn 23. Október 1945
3
ALÞÝÐUMAÐURINN
Utgefandi:
Alþýðuflokksfélag Akureyrar
ÁbyrgðarmaSur:
Erlingur Friðjónsson
Blaðið kemur út á hverjum Þriðjudegi
Af greiðalumaður:
Jón Hinriksson, Eiðsvallagötu 9
Árgangurinn kostar kr. 10.00
Lausasöluverð 30 aurar
Prentsmiðja Björns Jónssonar h.f.
TIL MINNIS
Opinberar skrifstofur opnar:
B»jarfógetaBkrifstofan 10—12 og 1—3
Skrifstofur bæjarins 10—12 og 1—5
— byggingafulltrúa 11—12
—- framfasrslufulltrúa 4%—5%
— jarðrektarráðunauts 1—2
Skömmtunarskrifstofan 10—12
Vinnumiðlunarskrifstofan 2—5.
Póststofan:
Bréfastofan 10—6
Bögglastofan 10—12 og 1—5
Bankarnir opnir:
Landsbankinn 10%—12 og 1%—3
Búnaðarbankinn 10%—12 og 1%—3
Útvegsbankinn 10%—12 og 1—4.
Viðtalstími lækna:
Héraðslrknirinn 10%—11%
Sjúkrasamlagslœknlrinn 11—12
Árni Guðmundsson 2—4
Jón Geirsson 11—12 og 1—3
Pétur Jónsson 10—12 og 5—6
Stefán Guðnason 12%—2 og 5—6
Helgi Skúlason, augnl. 10—12 og 6—7
Friðjón Jensson tannl. 10—12, 1—3 og 4-ð
Gunnar Hallgrímss. tannl. 10-12 og l%-4
Berklavarnastöðin 2-4 á Þriðju- og Föstud.
SjúkrasamlagiS 10—12 og 3—6.
Gufubaðstofa sundlaugarinnar>:
Fimtud. Konur 8—11.50 og 5—7
Karlar 2-4.50
Laugard. Konur 3—4.50
Karlar 8-11.50 og 1-2.50 og 5-7.
Kaupgjald og vísitala:
Almennt kaup karla .... kr. 6,95 á klst.
Almennt kaup kvenna .. kr. 4,31 á klst.
Kaup ungl. 14—16 ára .. kr. 4,59 á klst.
Vísitala framfærslukostnaðar 278 stig.
Alþýðublaðið
kostar 5 krónur á mánuði fyrir áskrif-
endur. Hvert sérstakt blað 40 aura. Af-
greiðslan f Lundargötu 5. Er selt á Ráð-
hústorgi eftir komu hraðferðanna á kvöld-
in. Er einnig selt í Bókaversl. Gunnl. Tr.
Jónssonar, Versl. Baldurshagi og Kaupfél
Verkamanna, nýlenduvörudeild.
Alþýðumaðurinn
er seldur í lausasölu í Versl. Baldurs-
hagi og í Kaupfél. Verkamanna. — Af-
greiðslan er í Eiðsvallagötu 9.
Skutull,
blað Alþýðuflokksins á Vestfjörðum,
frst keypt i afgreiðslu Alþýðublaðsins
hér í bænum. — Skutull er vel ritað blað
og fjölbreytt að efni. Hver sá, sem fylgj-
ast vill með landsmilum, verður að lesa
Skutul. Vestfirðingar hafa lengi suðið
framarlega f barittu þjóðarinnar fyrir
auknu frelsi, umbótum í atvinnumilum
hennar og heilbrigði f félagsmálum. —
flokka til samvinnu, undir for-
ystu Moskva-þjálfaðra kommún-
ista, sem svo er beitt til að
tryggja Rússum öll yfirráð í
þeim löndum, sem hægt er að
koma þessu við.
ALÞÝÐUM
Skæðadríta
„HALELÚJA“ STALIN.
Brynjólfur er nú farinn að
láta íslenska útvarpið leika
söngva um Stalin. A þetta lík-
lega að vera kynning á nútíma
rússneskri tónlist. Ætti útvarps-
sljóri að semja lofgjörðaróð fyr-
ir kommúnista, undir þessum
lögum, sem þeir gætu raulað á
samkomum sínum í stað örega-
söngsins, sem eitt sinn var í fullu
gildi í Rússlandi en hefir nú
orðið að víkja þar fyrir sönn-
um um marskálk Stalin, svona
á hærri stöðunum, þótt alrnúg-
inn megi raula hann ennþá sem
minningarsöng frá þeim tímum,
þegar rússneska alþýðan hélt að
hún væri frjáls.
Utvarpsstjóri ætti að semja
viðbót við fyrri línur sínar —
íslenskan söng um Stalin. Gæti
hann þá með heimilisfólkinu í
útvarpinu setið hin löngu, ís-
lensku vetrarkvöld, syngjandi
því venslafólki lof og dýrð, sem
útvarpið virðist nú orðið vera
helgað að mestu leyti.
★
E. A. M.
er eitt af gáfnaljósum kommún-
ista á Siglufirði, sem oft lætur
ljós sitt skína í blaði flokksins
á átæðnum — Mjölni. 17. þ. m.
ritar fangamarkið grein í hlaðið
undir fyrirsögninni „Margt er
líkt með skyldum“. Er þar sagt
að norskir Alþýðuflokksmenn
hafi stöðvað útkomu kommún-
istablaðsins „Friheten“ af því
þeir hafi haft yfirráð í prent-
smiðjunni, sem hlaðið var prent-
að í. Svo teygir E. A. M. vírinn
Segir að svona sitji Alþýðu-
flokksmenn alltaf á svikráðum
við hina dygðugu kommúnista.
Og ekki muni þetta eiga sér síð-
ur stað hér á landi. Og mikið
happ sé það að velunnarar Þjóð-
viljans hafi séð honum fyrir
eigin prentsmiðju. Margt fleira
þessu líkt segir hinn frómi E.
A. M. — En svo kemur athuga-
semd frá ritstj. Mjölnis, sem
segir, að reyridar sé allt þetta
lygi. Blað kommúnista komi á-
fram út, prentað í sömu prent-
smiðju og áður, en komi nú að-
eins út sem kvöldblað í stað þess
að það var áður morgunblað!!
★
HÁLMSTRÁ DAGS.
í raunum sínum hefir ritstj.
Dags slegið sér upp á skakkri
prentun á einu orði í fréttadálki
síðasta Alþýðum. Þar stendur
ólíkt ríflegri, en átti að standa,
samkvæmt handriti, eitthvað ríf-
legri. Er Dagur svo sem ekkert
öfundsverður af þessu, svo fá
flothylki hefir hann í afurða-
sölumálunum.
★
AÐURINN
í ERLENDUM FÖÐURHÚSUM
Það hefir vakið athygli, að
þegar gæðingar kommúnista, sem
hér heima heita sósíalistar,
koma út fyrir pollinn, eiga þeir
aldrei tal við menn með sama
pólitísku nafni þar ytra. Nei,
Einar Olgeirsson („Minister
01geirsson“) talar sem „félagi“
á útifundi kommúnista í Osló.
Kristinn Andrésson situr komm-
únistaþing í Danmörku, og flyt-
ur kveðju frá samstarfsbræðr-
unum heima? „Félagarnir“ Ein-
ar og Björn strika framhjá öllum
sósialistasamtökum á megin-
landinu alla leið í náðarfaðm
kommúnista í Moskvu, og „sósí-
alistarnir“ heima á íslandi geta
ekki haldið þing sitt fyrr en
drengirnir eru komnir heim frá
„mömmu“. •
KOSNINGARNAR í
FRAKKLANDI
Síðastliðinn Sunnudag fóru
fram þingkosningar í Frakk-
landi, hinar fyrstu, síðan ófriðn-
um lauk. Konur höfðu nú í fyrsta
sinn kosningarrétt. Miklar breyt
ingar liafa orðið á styrkleik
flokkanna frá því fyrir stvrjöld-
ina. Þannig hefir Róttæki flokk-
urinn, sem eitt sinn var stærstur
franskra stjórnmálaflokka svo
að segja þurrkast út. Hefir hann
nú aðeins 19 þingsæti. Yfirleitt
hafa vinstri flokkarnir unnið
mikið á. Kommúnistar eru
stærsti flokkur þingsins og hafa
hlotið 151 þingsæti, Næstur þeim
er nýr flokkur Alþýðlegi lýð-
veldisflokkurinn (Repuhlicaius
populairs) með 142 þingsæti og
Alþýðuflokkurinn (sósíalistar)
með 139 þingsæti. (Ófrétt er enn
um ca. 100 þingsæti). Báðir síð-
artöldu flokkanna eru stuðnings-
flokkar De Gaulle, hafa að
mörgu leyti mjög svipaða stefnu
og eru t. d. báðir mjög andslæðir
kommúnistum. Hafa þessir
flokkar sameiginlega meirihluta
í þinginu. Úrslit kosninganna
eru því talin mikill sigur fyrir
De Gaulle.
Þjóðaratkvæðagreiðsla fór
fram í sambandi við kosningarn-
ar. Voru kjósendur um það spurð
ir, hvort þeir vildu, að þing það,
er nú kæmi saman yrði stjórn-
lagaþing með takmörkuðu um-
boði, og hvort stjórnin skyldi
vera óháð því, þar til nýjar
kosningar liefðu farið fram. —
Yfirgnæfandi meirihluti kvað já
við báðum spurningunum og galt
þannig stefnu De Gaulles já-
kvæði sitt.
Það, sem mönnum kemur
mest á óvkrt við þessar kosning-
ar, er fylgi kommúnista. Höfðu
ýmsir búist við, að Rússadekur
myndi minnka þar í landi, eftir
að Molotov liafði staðið gegn
kröfum Frakka á ráðherrafund-
inum í London í haust. En þess
ber að geta, að fylgi kommún-
ista hefir jafnan verið mikið í
Frakklandi.
x.
ATH.
Vafalaust byggist fylgi komm
únista mikið á því, að fasistar,
sem ekki fengu að bjóða fram
við kosningarnar, hafa farið yfir
til þeirra. Þessir tveir flokkar
stóðu saman í byrjun styrjaldar-
innar gegn lýðræðisflokkunum
og nú hafa fasistar ekkert annað
að flýja en í faðm kommúnista.
Þetta átti sér stað í Finnlandi
og Noregi og nú í Frakklandi.
Sama mun líka eiga sér stað
hér við næstu kosningar, ef Sjálf-
stæðisflokkurinn verður ekki áð-
ur búinn að taka íslensku fasist-
ana í faðm sér í annað sinn.
Ritstj.
Fregnir á Sunnudaginn hermdu,
að rússneska setuliðið á Born-
hólmi í Danrhörku væri nú sem
óðast að byggja sér vetursetu-
skála og ætlaði auðsjáanlega að
sitja sem fastast. Einnig væri
orðrómur á sveimi um það, að
Rússar ætluðu að hafa þarna
flotadeild í vetur, en eins og
munað er hafa Rússar oftar en
einu sinni lýst því yfir, að land-
ganga þeirra á Bornhólmi hafi
verið gjörð til að hrekja Þjóð-
verja þaðan, sem þó var óþarft
því Þjóðverjar voru yfirunnir
þegar Rússar komu þangað. Eins
og von er, er kurr í. Dönuiri yfir
þessum ruddalega yfirgangi, því
aldrei hafa Rússar leitað samn-
inga við dönsku stjórnina um
dvöl þarna. Hafa Danir nú gefið
vikapiltum Stalins í Danmörku
nýtt nafn óg kalla þá Bomhólm-
ara, og þykir það lítið virðingar
heiti nú um stund.
KVENKJÓLAR
Kvensloppar
Kvensokkar, ódýrir
Silkinærföt kvenna
Náttkjólar kvenna
Náttjakkar kvenna
Barnakjólar
Barnasokkar nr. 6—9^/2
Bandprjónar
Títuprjónar
nýkomið,
KaupféL Verkamanna
Vef naða rvörudeild
SNYRTIVÖRUR
— mikið úrval —
nýkomið
Kaupfél. Verkamanna