Alþýðumaðurinn

Tölublað

Alþýðumaðurinn - 02.04.1946, Blaðsíða 3

Alþýðumaðurinn - 02.04.1946, Blaðsíða 3
Þriðjudaginn 2. Apríl 1946 ALÞÝÐUMAÐURINN 3 ALÞÝÐUMAÐURINN Utgefandi: AlþýSujlokksjélag Akureyrar ÁbyrgðarmaSur: Erlingur Friðjónsson BlaðiS kemur út á hverjum Þriðjudegi Afgreiðslumaður: Jón Hinriksson, Eiðsvallagötu 9 Árgangurinn kostar kr. 10.00 Lausasöluverð 30 aurar Enn frá Dagsbrnn. Dagsbrún er höfuðvígi konnn únista í verklýðshreyfingunni síðan Sjálfstæðisflokkurinn hóf þá til valda í félaginu. Þangað á að sækja fyrirmyndina um rekstur eins verklýðsfélags og þar á að vera að finna traust og samúð í baráttu verkalýðsins fyrir bættum kjörum. Og félagið á að vera enn meira. Það á að vera sönnun fyrir hverjir snillingar komm- únistar eru við að stjórna verk- lýðsfélögum. Fyrir skömmu var sýnt fram á það hér í blaðinu hversu ó- hönduglega Dagsbrún hefði far- ist kaupbaráttan upp úr síðustu áramótum og hve herfilega fé- lagið hefði verið svikið af kqmmúnistaforystu'nni. Þá var þó ekki vitað hve mörgum af binum upphaflegu kröfum fé- lagsins var kastað í það aftur án þess það fengi þær uppfyllt- ar. Það er ekki fyr en nú ný- skeð að skýrsla Vinnuveitenda- félagsins liggur fyrir, en þar eru taldar og reifaðar þær kröf- ur Dagsbrúnar, sern engar leið- réttingar fengust á. Er þar ekki um að ræða minna en 9 mikil- væg kauphækkunaratriði, þar á meðal sú krafa Dagsbrúnar, að eftirvinnan væri afnumin, en næturvinna teldist frá kl. 5 að kvöldi. Hin atriðin voru 30 aura grunnkaupshækkun á klst. fyrir ákveðnar tegundir vinnu, sem greiddar eru með hærra kaupi en í almennri vinnu. Einhverntíma hefðu kommún istar gert hróp að Alþýðuflokks- forustunni í Dagsbrún, ef hún hefði skilað slíkum samningum í hendur félagsins. Svo er rekstur félagsins s. 1. ár kapítuli út af fyrir sig. Fé- lagið telur gjaldskylda félaga 3060. Þar af eru yfir 900, sem ekki hafa greitt árgjöld sín. Þarna er ekki um minna en 45 þús. kr. að ræða. Þó hefir félagið haft 2—3 hálaunaða kommún- ista í sinni þjónustu undanfarið, sem aðallega hafa átt að starfa að innheimtu árgjaldanna, og samkvæmt sanmingum eru at- vinnurekendur skyldir að halda eftir árgjaldinu af vinnulaun- um verkamanna, ef þess er kraf- ist og þarf þá ekki annað en sækja þau til atvinnurekend- anna. Þetta þætti nú fyrirmynd- arfrannnislaða iijá smáfélögun- um út um land! Aftur hefir Dagsbrúnarstjórn- in tekið og' innheimt full félags- gjöld lijá á níunda hundrað ut- anfélagsmönnum. Gjald þetta innheimtir Dagsbrúnarstjórnin lijá mönnum, sem vinna á félags svæði Dagsbrúnar, en eru í öðr- úm sambandsfélögum, og hjá börnum og unglingum, sem vinna verkamannavinnu um stundarsakir, en ekki fá inn- göngu í Dagsbrún sakir æsku eða af því að þeim er bægt frá inngöngu í félagið af stjórnmála ástæðum. Þetta gjald hefir verið inn- lieimt af méiri röggsemi en fé- lagsgjöldin. Dæmi eru til þess, að drengir, sem unnið liafa á fé- lagssvæði Dagsbrúnar einn eða tvo daga, hafa verið krafðir um fullt félagsgjald kr. 50.00 til fé- lagsins. Hefðu konmiúnistar fyr ir eina tíð kallað þetta blóðpen- inga eða ránsfeng, enda eru eng- in lög fyrir svona fjáröflun. Það mun teljast til undan- tekninga ef félagar í verklýðs- félögunum taka greiðslu fyrir íélagsstörf eins og endurskoð- un reikninga, enda tekur það starf ekki langan tíma. En konnn únistarnir í Dagsbrún greiddu sjálfum sér árið 1945 átján hundruð krónur fyrir endur- skoðun félagsroikninganna, en það er álíka upphæð og fyrir- tæki, sem velta milljónum greiða fyrir endurskoðun reikninga. Dagsbrúnarmaður, sem ritar um frammistöðu kommúnista I félaginu sl. ár í Alþýðublaðið 22. f. m. endar orð sín á þessa leið: „Árið 1945 hefir orðið mjög lélegt starfsár á öllum sviðum fyrir Dagsbrún. Fjárreiður fé- lagsins eru slæmar. Félagslífið var mjög dauft. Félagið fylgdist ekki með öðrum verkalýðsfélög um í kjarabótum fyrir verka- mennina. Formaður sat á al- þingi um nokkurra mánaða skeið á árinu án þess að muna eftir því að liann var þar full- trúi verkamanna og sjómanna. Hann bar því ekkert mál fram á þingi, sem miðar til hagsbóta fyrir þessa umbjóðendur hans. Þetta allt er árangurinn af svikum Sigurðar Guðnasonar við Arna Kristjánsson og sam- hræðslu Sigurðar í Dagsbrúnar- stjórninni við -flokk stórat- vinnurekendanna, samfara hin- um sígilda slóðaskap kommún- ista í félagsmálum. Dagsbrúnarreikningarnir fyr- ir árið 1945 eru emi ein við- Héðan °9 þaðan_________ Afnotagjald af útvarpi fyrir yfirstandandi ár hefir ■ verið hækkað upp í 100 krónur. Féll gjald þetta í gjalddaga í gær. Karlmanoaskðr Spariskór Vinnuskór, hátir og lágir Barnaskór Skóhlífar, karlmanna Skóhlífar, kvenna Gúmmískór drengja Kaupfél. Verkamanna Vefnaðarvörucleild Bílstjórafélag Akureyrar held ur fund í Verklýðshúsinu Mið- vikudaginn 3. apríl kl. 9 e. h. Félagar fjölsæki. Fimmtug varð 17. f. m. frú Indíana Davíðsdótlir, Gránufé- lagsgötu 41 a hér í bænum. Á Sunnudaginn var átti sjötugsaf- mæli Steíngrímur Matthíasson fyrrum sjúkrahússyfirlæknir, nú starfslæknir í bænum Nexö á Borgundarhólmi í Danmörku. I gær átti 75 ára afmæli Sig- tryggur Helgason, Gránufélags- götu 28. Ferðafélag Akureyrar minn- ist 10 ára afmælis síns að Hótel KEA n. k. Laugardag kl. 9 e. h. Kaffidrykkja, myndasýningar, söngur, fræðslustarfsemi, dans. Félagar vitji aðgöngumiða að Hótel KEA milli kl. 5 og 7 á Fimtudag og Föstudag. Ekki samkvæmisklæðnaður. Kjðlatau ULLARTAU LÉREFT POPLIN KHAKI BARNAKJÓLAEFNI KVENBUXUR NÆRSKYRTUR TELPUBUXUR LEISTAR RENNILÁSAR, 10—50 cm. nýkomið. Kaupfél. Verkamanna Vfnaðarvörudeild i U » ♦ I p 1 I y ♦ Sunllghtsápa Lux sápa nýkomið Kaupfél. Verkamanna Hnriarskrár HAMRAR JÁRNSAGARBOGAR JÁRNSAGARBLÖÐ DÚKKNÁLAR HENGILÁSAR EGGJASKEIÐAR VÍRSVAMPAR ] STÁLULL RAKVÉLARBLÖÐ, ódýr SPRITTBRENNARAR SPRITTTÖFLUR og margt fleira. Kaupfél. Verkamanna Nokkrar stúlkur vantar til þvottahúss- og gangnastúlknaverka í Krist neshæli 14. maí næstk. — Hátt kaup. — Upplýsingar gefur skrifstofan og yfir- hjúkrunarkonan. Veggfóíur margar gerðir j nýkomið Kaupfél. Verkamanna Sportjakkar nýkomnir Kaupfél. Verkamanna Vefnaðarvörudeild. Kvenskórnir komnir. Mikið úrval. Lágt verð. Kaupfélag Verkamanna. Vefnaðarvörudeild. vörun til verkalýðsins um að trúa ékki kommúnistum fyrir velferðarmálum sínum, forusta þeirra leiðir ávallt til áfarnað- ar.“ Eldhússtúlkur vantar í vor í Sjúkrahú: Akureyrar. — Upplýsing ar hjá ráðskonunni eða Gunnari Jónssyni.

x

Alþýðumaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðumaðurinn
https://timarit.is/publication/597

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.